Fimmtudagur, 11. júní 2009
Var að koma af Helgafelli og nú á ég gönguskó sem ég þarf að ganga til áður en ég fer í lengri ferðir. Mér finnst æðislegt að eiga loksins góða gönguskó.
Þegar við vorum hálfnuð fengum við okkur sæti á steini og tókum eftir manni sem var að brölta upp hlíðina. Nema annað slagið þá fór hann alveg svakalega hratt áfram en þess á milli fór hann afar hægt. Þetta gerðist einmitt þegar hann fór framhjá okkur, kom í ljós að hann prumpaði svona svakalega að hann hálf feyktist áfram.
Má svona?
Á maður þá að borða kassa af rúsínum áður en maður leggur af stað næst?

Ójá.