www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
D day
Þriðjudagur, 23. júní 2009

Þau flýttu aðgerðinni. Klukkan 8:45 á eftir fæ ég fyrstu töfluna. Eða voru þær tvær. Ég man að þær voru þrjár allt í allt síðast. Fyrst.. tvær, minnir mig, svo ein hálftíma seinna.

Í gærkvöldi komst ég að því að sonur minn skilur hvað "compromise" er. Ég komst að því þegar við vorum að horfa saman á Monk þátt og aðstoðarstúlkan hans, eða öllu heldur líflína þessa multifóbic einstaklings, fékk stöðumælasekt vegna þess að Monk hafði ekki borgað í stöðumælinn eins og hann hefði átt að gera. Hún vildi að hann borgaði sektina og Monk svaraði: "let's make a compromise, you pay the ticket.. and I don't"

Það er ekki compromise, sagði Doddi, compromise er.. I'll pay 60% and you pay 40.

Mér finnst líklegt að ég sé að ala upp sambúðarhæfan einstakling. Maður verður að kunna compromise.

Ég var að lesa bloggið hennar Birnu og sé að hún hefur fallið í gildruna. Þú getur huggað þig við að þess meira sem þeir ljúga og svíkja þig, þess auðveldara er að henda þeim útúr hjartanu. Það finnst mér allavega. Það sem er verst er þegar þeir ljúga ekki, svíkja ekki - vita að þú ert hrifin og gefa þér alltaf örlitla von, en sleppa því að segja þér að þeir ætla sér aldrei neitt með þig.

Ég ætla ekki að útiloka að ég sé vangefin, en ég trúi ekki að allir karlmenn séu fávitar. Ég held hinsvegar að það sé ákveðið magn af fávitum í umferð, af báðum kynjum. Fólk sem ber ekki virðingu fyrir tilfinningum annarra, hugsar bara um eigið rassgat. Þetta fólk hefur venjulega massa issues sjálft og ég myndi ekki vilja skipta við það þó ég fengi borgað fyrir það. Ja.. kannski tímabundið og ef það væri verulega vel borgað, þetta tannlæknarugl er að fara með mig fjárhagslega, en grínlaust, hver vill skipta við útrásarliðið í dag? Langar þig að skipta á lífi þar sem þú getur keypt allt sem þú vilt, en ert fyrirlitinn af 98% þjóðarinnar sem þú tilheyrir? Mér finnst það ekki eftirsóknarvert.

Ég er búin að segja Chris að við erum ekki að fara að ferðast nálægt Heklu, og biðja hann um að sýna mér skilning þegar við förum uppá fjöll, því ég er að byrja á þessu. Hann segist ætla að sýna þolinmæði og miðað við þá þolinmæði sem hann hefur sýnt mér nú þegar held ég að hann eigi eftir að vera þolinmóður. Ég veit að það hljómar asnalega, en mér fannst galli hvað hann er út úr kortinu flottur maður. Mig langaði aldrei að eiga þannig mann. Ég var miklu spenntari fyrir að eiga mann sem mér finnst útúr kortinu flottur, en ekkert endilega öllum öðrum konum. En ég hef lært að það skiptir engu máli hvernig menn líta út. Að vera skíthæll er bundið við persónuleika, ekki útlit. Og þó mér sé búið að líða vel undanfarið þá verð ennþá einmana. Langar að tala við einhvern sem skilur mig - eða allavega reynir. Einhvern sem nennir að kynnast mér af alvöru og þykir vænt um mig. Elskar mig eins og ég er.. same old, same old, same old shit. Mér finnst eiginlega hlægilegt að skrifa þetta. Sérstaklega í ljósi þess að ég taldi mig hafa fundið nákvæmlega þetta!

Ég vona ennþá innst inni að hann sé Íslendingur.

Ég vona að ég verði algjörlega meðvitundarlaus á meðan læknirinn er að græða bein í kjálkann á mér á eftir.

Ég vona að ég verði fljót að ná mér.

Ég vona að allt gangi vel.

Ég vona.

Daginn sem einhver fávitinn drepur endanlega alla von, ætti ég að gefa honum stóra medalíu? Eða ætti ég frekar að útbúa margar litlar fyrir þá sem lögðu sitt af mörkum? Það er sennilega dýrara en verðlaunaathöfnin yrði miklu áhugaverðari þannig.

Ég ætti eiginlega að finna annað ljón, hann gat lagað margt af því sem aðrir höfðu skemmt. Það er í raun ekkert svo flókið að gera það.

Ég er farin að röfla, sem segir mér að ég sé orðin verulega þreytt, sem segir mér að ég muni örugglega sofna fast á eftir og lengi í tannlæknastólnum. FOKK! Af hverju er ég ekki búin að kaupa ullarnærfötin! Kalt í þessum helv tannlæknastólum alltaf..

Segir maður "sofna fast"?


| anna | 6:43 |
comments

Hugsa fallega til þín og kjálkans í dag.

Nr. 1 | posted by: Kristín | 23.06.2009 | 8:32:48 | [+] |

Gangi þér vel í þessari baráttu Anna!

Óska þess að þú verðir fljót að ná þér og getir smælað framan í heiminn með heila kjálka!

Nr. 2 | posted by: enginn | 23.06.2009 | 9:00:11 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web