Föstudagur, 19. júní 2009
Rétt áðan birtist mér strumpur sem sagði mér að í nótt mun Reykjavík brotna frá Íslandi og fljóta uppað ströndum Kanada innan þriggja mánaða. Það verða mikil fagnaðarlæti hjá Íslendingum þegar Kanadabúar segjast eiga þessa spildu - en - í kjölfarið blússar upp massa milliríkjadeila á milli Bretlands/Hollands og Kanada sem endar á því að Bandaríkjamenn fara í stríð við Norður Kóreu. On reflex.
Íslensk stjórnvöld munu grípa til aðgerða og sulta Svavar Gestsson en það verður of seint.
Uppúr því verður svo þriðja heimsstyrjöldin og þeir sem vinna hana verða Færeyingar sem munu taka yfir heiminn þegar þeir tefla fram mannýgum mávaher sem þeir eru búnir að vera að þjálfa upp þarna útfrá.
Það verður skammgóður vermir þar sem lífverur úr öðrum sólkerfum koma til að stela öllum fiskinum á jörðinni - eða sjónum.
Þetta verður one hell of a year!
Ég held reyndar að þetta hafi verið geðveiki strumpur svo ég tek þessum fréttum með nokkrum fyrirvara.
Sjá kort af svæði.