www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
1. júní
Mánudagur, 01. júní 2009



| anna | 11:00 |
comments

Samhryggist með brjóstin. Þeir sem guðirnir elska falla fyrst.

Nr. 1 | posted by: Vala G | 1.06.2009 | 12:02:51 | [+] |

Ekki hverfa alveg!

Nr. 2 | posted by: AlanHudson | 1.06.2009 | 12:08:17 | [+] |

smile

Nr. 3 | posted by: atviksorða-anna | 2.06.2009 | 23:24:31 | [+] |

Hvernig ferðu að þessu?! Hvað ertu að borða og hvernig ertu að hreyfa þig? Ég er að verða vitlaus á mínum 15 aukakílóum ... þau bara vilja ekki fara! weepy

Nr. 4 | posted by: Jóhanna | 4.06.2009 | 16:05:32 | [+] |

Og til hamingju með árangurinn!

Nr. 5 | posted by: Jóhanna | 4.06.2009 | 16:12:24 | [+] |

Takk Jóhanna,

Ég er ekki búin að fínpússa hvorki hreyfinguna né matarræðið, en það er ekkert leyndarmál hvað ég er að gera - og btw, ef þú ákveður að losa þig við þessi fimmtán kg, þá fara þau. En þú þarft hinsvegar að trúa því sjálf og gera raunhæfa áætlun. 0,5 - 1 kg þyngdartap á viku, ekki mikið meira - ef þú vilt halda þeim af.

Ég var 67-68 kg um síðustu áramót og byrjaði á því að ákveða hvað ég ætla að verða þung eftir 12 mánuði. Ég byrjaði reyndar á að ákveða 55 kg, en ég breytti tölunni. Mér finnst 55 of létt svo ég vil verða 57 kg. Ég var alltaf mjög fín þannig. Ef ég þekki mig rétt mun ég sennilega fara neðar en 57 er það er þyngdin sem ég mun reyna að halda mig við, plús mínus 2 kg.

Inner dialogue:
"Ég er 57 kg. Ég er 57 kg." Þetta er ég búin að hugsa alla daga frá áramótum, svona þegar ég man eftir því..

Þetta er sama ferli og þegar ég hætti að reykja.

Inner dialogue:
"Ég er reyklaus. Ég er reyklaus."

Það er kannski ótrúlegt, en þetta virkar. Prufaðu og ekki hætta eftir viku. Sjáðu hvað gerist eftir þrjá mánuði.

Næst fór ég í ástarsorg, sem tryggði mér allavega 2-3 kg í burtu hratt þar sem ég missi matarlyst þegar mér líður mjög illa tilfinningalega. Þetta hraðaði ferlinu aðeins en var ekki hluti af planinu, meira eins og.. the bonus plan. Verst að ég var ekki alveg kolfallin fyrir honum, það hefði þýtt 5-7 kg, easy hehehe.

Á móti kemur að þá hefði ég verið töluvert lengur að komast yfir hann svo þetta er ágætt svona.

Hreyfingin:

Það verður að taka með í reikninginn að ég vinn við að sitja á rassinum. Ég er yfirleitt fljót að taka við mér þegar ég byrja að hreyfa mig vs að sitja á rassinum og gera ekkert.

Ég er búin að vera að hlaupa, reyni að fara út að hlaupa allavega 3x í viku. Hleyp ekkert langt, mest 4 km en var lengi að hlaupa 2 km og fannst það alveg nóg (það er líka í lagi að labba, það telur). Ég fer líka að synda en ekkert oft, 1x í viku, þyrfti að gera meira af því og ég hef verið í world class annað slagið, samt ekkert til að tala um því ég átti ekki kort. Nú hefur það hinsvegar breyst svo ég mun byrja að fara í wc af alvöru núna í júní, 3x í viku. Ég er að æfa eftir prógrammi sem einkaþjálfari setti saman fyrir mig fyrir nokkrum árum sem hentar mér mjög vel, en ég er ekki hjá einkaþjálfara og ég er ekki lengur en ca 30 mín þegar ég fer.

Ætla að sjá til með hvort ég hlaupi á móti wc, hugsa að ég fari frekar að hjóla meira með krökkunum.

Maturinn:

Ég er forfallinn kókisti. Bara með því að skera það niður í 1-2 litlar dósir á dag er ég búin að nánast helminga hitaeiningainntöku mína yfir daginn. Og ég er ekki að djóka, svo þetta lá beint við. Ég tek inn grænt te í töfluformi til að ég sé með meðvitund yfir daginn (koffein), þar sem ég drekk ekki kaffi.

Ég forðast allt sem heitir diet eða light vörur. Ef ég drekk kók, þá drekk ég kók með sykri - annað eru helgispjöll.

Ég forðast að borða brauð og hveiti/ger (nota spelt) en á veitingastöðum borða ég brauð þó ég reyndar sleppi alltaf hattinum ef ég borða hamborgara (já ég borða hamborgara). Ég reyni að borða mikið grænmeti og fisk og ég skipti út súkkulaði og nammi í vinnunni sem nasl á milli mála í döðlur, súkkulaði rúsínur (maður verður að vera á jörðinni hehehe), vínber og spírur. Ég er í raun alltaf að borða eitthvað! Ég borða ennþá allan mat þannig lagað en ég borða minna í einu og er farin að vanda samsetninguna meira. Er reyndar búin að taka alveg út t.d. kokteilsósu, majones, hrásalat (mæjó) og þannig kransæðakítti.

Ég er búin að útbúa kornsafa sem ég drekk á morgnanna (sjá neðst), hann er viðbjóðslegur á bragðið en á að vera rosa góður fyrir meltinguna með allskonar ensímum sem brjóta niður erfiða fitu. Er ekki búin að drekka hann nógu lengi til að geta metið hvort hann er að gera eitthvað gagn (2 daga). Ég tek inn husk líka til að örva meltinguna (blandað útí kornsafann actually), tek líka inn Polarolje (hljómar eins og smurolía - fæst í apótekum) sem á að innihalda fullt af góðum fitusýrum sem maður fær ekki úr fæðunni. Drekk mikið af vatni.

Ég stefni á að útbúa e.k. orkusúpu ala Sollu í Grænum Kosti og drekka þannig á morgnanna. Það sem ég hef búið til so far er svo viðbjóðslega, óhugnanlega vont, að ég mun halda áfram að fikta mig áfram með það. Ef ég dett niður á eitthvða sem er drykkjarhæft (án þess að vera með klemmu fyrir nefinu) mun ég setja það á vefinn.

Fæðubótarefnin:

Ég tek 1/2 dl af próteindufti inn eftir æfingar (hlaup/sund - samt ekki alltaf) sem ég hræri útí vatn. (Elite Whey Protein - pro line)

Ég vil ekki gera þetta á fæðubótaefnum svo ég læt próteinið duga á meðan ég er að byggja mig upp. Tek eftir að ég er farin að borða meira af eggjum og hörfræjum líka. Þegar ég hugsa útí það þá er ég ekki að borða neitt mikið af kjöti, á sennilega eftir að borða meira af kjúkling þegar ég byrja í wc.

"Svindlið":

Vinkona mín á trimform tæki, sem ég er með í láni. Á kvöldin ligg ég stundum í sófanum að steikja mig, börnunum mínum til skemmtunnar (Doddi liggur í hláturskrampa á gólfinu þegar ég fer að kippast til) og sennilega er það að gefa svona góðan cm árangur strax smile
-----

Ég hef ekki nokkra einustu trú á því að stólpípa og svelti sé málið, ég held að hreyfing og hollara matarræði sé rétta leiðin. Ég er ekki í svelti og ætla ekki að svelta mig. Ég er ekki heldur í spreng að hreyfa mig á hverjum degi, en reyni að gera eitthvað allavega 3x í viku. Ég er líka að losa mig við "nýja" fitu og það gengur hraðar en ef þú ert að losa þig við gamla. Ekki gefast upp þó ekkert gerist alveg um leið og þú byrjar.

Ég vona að þetta gagnist þér eitthvað þó þetta sé ekki eitthvað heilstætt plan, ég er ennþá að fínpússa þetta. Í raun er þetta bara spurning um að taka ákvörðun um að verða einhvernvegin, undirbúa sig andlega í nokkra mánuði með heilaþvotti, trúa að þetta sé hægt og að það verði ekkert mál og þá gerist restin eiginlega af sjálfu sér. Ég hef tekið mig í gegn svona áður, hætti meira að segja alveg að drekka kók þá - ég er bara í þannig vinnu núna að ég þarf að vera með meðvitund OG heilastarfsemi, sem gerist ekki án koffeins smile

Ég ákvað að gefa mér heilt ár í þetta skipti til að koma mér í form og breyta matarræðinu. Ég mun birta mynd í hverjum mánuði fram í desember (sem mér finnst mjög gott aðhald). Ég er ennþá að tjasla mér saman eftir þessi veikindi á síðasta ári, auk þess er markmiðið að breyta matarvenjum mínum varanlega í þetta skipti.

Þú mátt alveg endilega láta mig vita ef þú ákveður að verða 15 kg léttari og hvernig gengur hjá þér!

Bestu kveðjur,
Anna

ps. kornsafi: http://is-is.facebook.com/note.php?note_id=92805074248
Þú færð allt sem þú þarft í Yggdrasil og þetta er frekar ódýrt.

[sæll... getur verið að ég sé ekki búin að blogga lengi.. ]

Nr. 6 | posted by: anna | 4.06.2009 | 20:51:34 | [+] |

Frábært! Takk kærlega fyrir allt þetta! smile Ég ætla klárlega að nýta mér þetta, mun kaupa kort í líkamsræktinni á mánudaginn (ég var reyndar að flytja þannig að ég er að skipta um stöð) og búin að fylla ísskápinn af grænmetinu og ávöxtum. Nú skal sko harkan sex vera tekin á þetta. Er búin að væflast með þessi 15 kíló í heilt ár núna og búin að fá upp í kok af litla sjálfstraustinu og vanlíðaninni sem þau færa mér. Ég ákvað það líka eftir að við maðurinn minn fórum í glasameðferð í síðasta mánuði sem mistókst; að sumarið verður tekið í það að koma lífi mínu á heilbrigðari kjöl fyrir næstu meðferð. Og hana nú! smile

Ég skal láta þig vita hvernig gengur, er í lagi að ég sendi þér kannski bara email um það ... ég er feimnari en þú ... wink

Nr. 7 | posted by: Jóhanna | 7.06.2009 | 0:05:09 | [+] |

Já auðvitað máttu senda mér email smile

Nr. 8 | posted by: anna | 7.06.2009 | 11:52:59 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web