www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
WWAD
Laugardagur, 16. maí 2009

Hann bauð mér ekki í neina ferð. Self destructive hliðin á mér skrifaði þessa færslu í nótt þegar ég kom heim. Ég er lítil og blá og þarf á einhverju allt öðru að halda en fávita sem langar að kynnast brjóstunum á mér betur.

Þetta var samt mjög flottur maður og æstur í að láta mig fá nafnspjaldið sitt. Kannski er hann ekki einu sinni fáviti. Ég hef bara um annað að hugsa akkúrat núna.

Ég á vin sem er með saying sem hann skammstafar: WWAD. Þýðir "What Would Anna Do". Þegar hann er í aðstæðum þar sem hann þarf að taka ákvörðun spyr hann sig að þessu.

Ég þarf að kanna hvort líf hans hefur eitthvað batnað eftir að hann tók þetta upp.

Ég er búin að vera hálf lasin í dag. Dreymdi alveg mongo asnalegan draum í sófanum áðan.

Síðustu 24 tímana er ég búin að borða beyglu með gúrku og hálfa franska pulsu. Þetta með matarlystina er ekkert að lagast.

Í morgun hringdi maður sem hefur hagað sér eins og kanína undanfarið. Hann stekkur uppúr hatti annað slagið og hristir sig, stekkur svo ofaní hattinn aftur og hverfur í einhvern tíma. Hann nær mér aldrei eins og ég var og ég sagði honum það.

Ég fór að gráta þegar ég talaði við hann, sem hefði ekki gerst ef hann hefði staðið fyrir framan mig. Það gerðist þegar ég útskýrði fyrir honum hvað það er erfitt að skilja svona hegðun eins og hann sýndi þegar við vorum saman. Hann sagði allt rétt við mig en sinnti mér hinsvegar ekki. Var ekki til staðar fyrir mig þegar ég þurfti á honum að halda. Ég var með eitthvað illusion af einhverju góðu sem ég gat samt aldrei snert eða fundið.

Ég myndi skilja það ef menn væru að klikka á einhverju öðru en grundvallaratriðum, það er ekki eins og ég reikni með að menn séu fullkomnir. En ég hef ákveðið að hætta að reyna að skilja neitt af þessu og forðast aðstæður sem gætu gert kröfu á að ég þurfi að skilja hegðun karlmanna. Einu kröfurnar sem ég geri núna er að vera látin í friði.

Ég vona svo heitt og innilega að það verði gott veður á morgun. Er að hugsa um að fara útúr bænum, Borgarfjarðarmegin. Bara keyra. Stoppa einhversstaðar og liggja í grasinu. Plana vinnuvikuna. Reyna að borða eitthvað áður en ég hryn niður.

Basic stöff.


| anna | 21:40 |
comments

:(

Reyndu samt að líta á björtu hliðarnar, við þurfum amk ekki að halda Eurovision næsta ár, ofan á allt annað.

En WWAD? Ég held að lausnin liggi í því. Þetta er óvitlaus vinur sem þú átt. Talaðu meira við hann.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 16.05.2009 | 22:58:39 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web