www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Togstreita
Föstudagur, 08. maí 2009

Ég er búin að vera að hugsa um margt þessa vikuna, sem betur fer er brjálað að gera í vinnunni. Búin að vera að hugsa um leiðir til að leysa ákveðið mál. Fann lausn og í gær var hún löguð til þannig að hún gengur upp sem þýðir að sennilega mun það skila sér í miklu betra efni á vefnum í haust. Sem er brill.

Eftir að ég fór á svef kvöld í síðustu viku er ég búin að vera að hugsa mikið um innrivefi fyrirtækja og hvaða hlutverki þeir eiga að gegna og hvaða hlutverki þeir gegna í raun og veru hjá mörgum fyrirtækjum.

Er innrivefur "séð og heyrt" vettvangur fyrirtækisins eða er hann tæki til að skiptast á mikilvægum upplýsingum um verkefni? Hvað flokkast sem frétt á innri vef? Þetta er efni í sér greinarflokk sem ég veit ekki hvort ég mun skrifa þar sem ég vinn ekki við innrivefi - en ég þarf að nota þá svo ég hef áhuga á þessu.

Er að plana hvernig ég ætla að skipta niður hreyfingu og velta fyrir mér líka hvort ég á að fara að halda matardagbók online. Því ef ég geri það, þá myndi matarræðið breytast miklu meira en ef ég geri það ekki. Ég hreinlega treysti mér ekki til þess alveg strax - sem er ekkert annað en aumingjaskapur og sérhlífni og ég viðurkenni það kinnroðalaust.

Ég er líka búin að vera að rifja upp ferlið sem maður fer í gegnum þegar samband endar.

Kemst ekki hjá að velta fyrir mér.. ætli líf mitt verði bara svona?

Nýr kommentari sagði um daginn að ég væri í togstreitu yfir fleiri málum en drekum og prinsum og hvítum hestum og útlenskum kærustum.

Ég veit ekki alveg hvaða togstreitu hann er að tala um, en þar sem ég er kona er ég sennilega í allskonar togstreitu hingað og þangað. Annað sem hann sagði er hinsvegar hárrétt hjá honum. Það eru engir prinsar á Íslandi.

Og hvað? Á ég þá að breyta útlendingareglunni? Ég vil það ekkert.

En draumaprinsar? Eru draumaprinsar á Íslandi?

Hvað dettur fólki í hug þegar ég nota orðið draumaprins?
Hvað gerir einhvern að draumaprins?


| anna | 23:35 |
comments

Well, I am going to go to sleep now, that seems like a good way to see a draumaprins.

Nr. 1 | posted by: Lissi | 8.05.2009 | 23:58:47 | [+] |

Víst eru til prinsar á ýslandi, a.m.k. ég. Gerðu ekki lítið út okkur þótt við liggjum í leyni, kannski harpgiftir en elskum þig samt. Þesssi prins hér guðar á glugga þinn ekki sjaldnar en daglega; ekki einvörðungu vegna þess að fátt finnst honum skemmtilegra að lesa en hugleiðingar þínar, heldur fremur vegna þess að hann vill vita hvenær raunveruleg þörf er á því að hann komi skeiðandi á hvíta hestinum til að svipta þér á bak og ríða með þig út í sólarlagið, burt frá innrivefnum ógurlega og öðru því sem spillir gleði þinni.

Vertu alltaf klár með vegabréfið og börnin í bakpokanum, þetta gæti skollitð á með litlum fyrirvara.

Þinn einlægastur,

Prins

Nr. 2 | posted by: Prinsinn | 9.05.2009 | 0:06:51 | [+] |

Jahahá!

Dregur til stórtíðinda.
Hvar ert þú búinn að vera sl. fimm ár? Ha?

Komdu á svarta fáknum, mér leiðast hvítir hestar og bílar.

Nr. 3 | posted by: anna | 9.05.2009 | 0:20:39 | [+] |

Þessi prins hér að ofan verðskuldar varla stórt p. Hann skrifar óhreint og kæmist varla yfir síkið að kastala Önnu þótt vindubrúin lægi flöt fyrir honum.

Kæra Anna, varaðu þig á lukkuriddurum eins og honum, nógir erum við aðrir sem elskum þig.

Hinn prinsinn

Nr. 4 | posted by: prins | 9.05.2009 | 0:26:36 | [+] |

Oh greit. Skitsó prins.

yay.

Nr. 5 | posted by: anna | 9.05.2009 | 0:30:32 | [+] |

Eða bræður. Varla margar aðalsættir á Íslandi.

Sennilega tvíburar.

Nr. 6 | posted by: anna | 9.05.2009 | 0:38:24 | [+] |

Yaya, segirðu, næstum því. Það er stórt orð og merkingarþrungið, við réttar aðstæður. Enda hafa þessar sjálfskipuðu prinsadruslur dregið sig í hlé. Þeir eru líka að fróðra kvenna sögn skitsó og skammast sín fyrir þær lausu hægðir og óhreinar nærbuxurnar.

Gráttu þá ekki, aðrir skárri eru að smeygja sér í ístöðin á enn betri hrossum, kannski ekki kolsvörtum en dökkleitum þó.

Nr. 7 | posted by: Valíant | 9.05.2009 | 0:47:23 | [+] |

Ó.. ég var farin að sjá fyrir mér að ég væri með backup ef annar væri með hausverk.

Not to worry, ég felli ekki eitt tár yfir mönnum í óhreinum nærbuxum.

Síðast þegar karlmaður kom að heimsækja mig á hesti vakti það mikla lukku í götunni. Þú verður að gefa mér smá fyrirvara, gæti skellt upp götupartíi fyrir nágrannana. Er stemming fyrir rauðum dregli?

Hvernig kampavín drekkurðu helst?

Nr. 8 | posted by: anna | 9.05.2009 | 0:58:50 | [+] |

Nú ertu að missa þig í bullið, góða. Það er bara hrossið sem drekkur kampavín, riddarinn vill vatn, langriðinn og skraufþurr úr eyðimörkinni. Og engin teppi, takk, nema fyrir Blesa. Sá sem sat hann gengur sárum iljum alla leið að hásæti gyðjunnar, hneigir sig djúpt og spyr: Hvað get ég gert fyrir þig?

Nr. 9 | posted by: Valíant | 9.05.2009 | 1:18:00 | [+] |

Þú yrðir að byrja á að fella drekann. Það er reyndar búið að myrða alvöru drekann minn sem mér var farið að þykja mjög vænt um (Stockholm syndrome), en ég er með skjaldböku hérna sem er farin að fara í taugarnar á mér. Hún heitir Jónas.

Þú verður að byrja á að fella Jónas. Ef þú treystir þér til þess, þá skal ég segja þér hvað þú getur gert fyrir mig.

Nr. 10 | posted by: anna | 9.05.2009 | 1:23:07 | [+] |

Hvar finn ég ógnvaldinn Jónas? Sigaðu honum á ip-töluna mína og láttu hann naga hana inn að vefrót. Þar gríp ég í snjáldrið á honum... og kem svo á þinn fund með nýeldaða súpu.

Nr. 11 | posted by: Valíant | 9.05.2009 | 1:30:03 | [+] |

Nýeldaða súpu. Fullkomið.

Jónas er byrjaður að naga.

Nr. 12 | posted by: anna | 9.05.2009 | 1:41:05 | [+] |

Riddarinn vaktar allar snúrur og hlustar grannt eftir skrjáfi í veggjum, en enn er tíðindalaust.

Suðan er þó að koma upp í pottinum og kryddjurtir ýmsar innan seilingar.

En hvar er Jónas?

Er Jónas kannski bara hugarfóstur meyjarinnar? Eitthvert ævintýramonster sem hún hefur komið sér upp til að bægja frá ólukkuriddurum sem óttast dreka?

Nr. 13 | posted by: Valíant | 9.05.2009 | 1:57:46 | [+] |

Þú ert þegar byrjaður að gera hluti sem draumaprinsar þurfa að kunna.

Hann þarf að sjá í gegnum mig.

Það er engin Jónas. Og það er enginn dreki.

Þú hefur afvopnað mig.

Nr. 14 | posted by: anna | 9.05.2009 | 2:03:46 | [+] |

Hér eru engin ævintýr að verða. Slökkt hefir verið undir potti; riddarinn mígur á glóðirnar, sviptir sér á bak Blesa og ríður út í óvissuna.

Í leit að því sem hann veit ekki hvað er.

Nr. 15 | posted by: Valíant | 9.05.2009 | 2:14:29 | [+] |

Góða ferð.

Nr. 16 | posted by: anna | 9.05.2009 | 2:18:48 | [+] |

Úff...það vantar ekki yfirlýsngarnar frá prinsunum hérna á svæðinu. Sem varpar upp spurningunni: "Hvað er svona merkilegt vði það að vera prins?" Sé ekki alveg hvað er svona eftirsóknarvert við það að vera prins, en það sem er athylgisverðara...hvers væntum við að prinsum? Eiga þeir að redda einhverju fyrir okkur? Gæti verið...Það er bara svo miklu meira spennandi að græja hlutina sjálf...og þú, Anna, ert manneskja sem augljóslega græjar hlutina sjálf. Kannski þarftu bara einhvern sem er duglegri að benda þér á allt það sem þú hefur áorkað sjálf, á eigin forsendum. Og þetta með togstreituna...það er ekkert slæmt, alls ekki....bara eitthvað til að skoða og glöggva sig á - við getum kallað það stökkpall á nýjar lendur...spennandi staður...

Nr. 17 | posted by: HÞ | 9.05.2009 | 23:59:00 | [+] |

..og þess vegna hef ég ekkert við prins að gera, ég þarf DREKA!

Þú skilur mig.

Nr. 18 | posted by: anna | 10.05.2009 | 0:01:11 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web