Þriðjudagur, 05. maí 2009
Myndin hér við hliðiná er af mér (augljóslega) í ofurkonu-búningnum mínum, tók hana áðan.
Þetta eru málin á mér og þyngdin sem ég er í akkúrat núna. Uppistaðan er mest megnis fita og vatn.
Markmiðið er 57 kg.
Hvað málin varðar er ég ekki með neitt fixed markmið. Mig langar bara að fylgjast með þeim og sjá hvernig þau þróast fram að áramótum - og ég hef smá grun um að mér muni ganga betur ef ég hef gagnsæi að leiðarljósi í þessu verkefni mínu. Þess vegna er ég nú að birta þessa mynd.
Sakar ekki að hafa smá pressu - segir konan sem var að enda við að borða súkkulaði.
Don't judge me.
Ég er að hugsa um að fá mér svona klippingu næst.
Synti í kvöld með Dodda og það fór eins og það átti að fara, fyrir utan að ég virðist hafa gleypt kött á leiðinni heim eða í gufunni. Allt eins.
Djöfull ætla ég að vera orðin óhugnanlega flott um áramótin. Langar mest að láta lasera mig í drasl líka þannig að ég þurfi aldrei að fjarlægja hár aftur. Neinsstaðar.
Ætli almenningur myndi taka við sér ef ég myndi halda landssöfnun fyrir þannig?