Laugardagur, 09. maí 2009
Það er fátt eins gott fyrir sál konu eins og að steikja á sér appelsínuhúðina í klukkutíma, fara í heitt froðubað á eftir og fjarlægja öll óvelkomin hár af líkamanum, setja maska á andlitið og bodylotion á líkamann, taka svo hand og fótsnyrtingu með naglalakki og tilheyrandi.
Dekur fyrir allan peninginn.
Ég fékk bónorð áðan frá vinkonu minni sem þykir vænt um mig. Hefði ég fæðst karlmaður hefði ég sagt já, en þar sem ég hneygist ekki til kvenna kynferðislega og langar ekki í kynlífslaust hjónaband, þá sagði ég nei.
Þetta bónorð ýtti samt við mér. Ég ákvað að gefa skít í evrópskan aðal og finna mér nýjan dreka. Hann þarf að vera stór og sterkur, með augu sem eru góðleg þegar þau horfa á mig en illileg ef einhverjir pappírsprinsar reyna að ná athygli minni. Hann verður að vera með fallegar hendur. Hann þarf að kunna að snerta mig rétt og honum þarf að finnast gott að hafa mig hjá sér og halda utanum mig svo ég finni að honum sé ekki sama um mig. Hann þarf líka að sofa hjá mér. Oftar en einu sinni í viku.
Hann þarf að vera fyndinn og geta látið mig fara að hlæja. Ég þarf að geta treyst á hann og hann verður að vera jákvæður og með heilbrigða sjálfsmynd. Hann þarf að hafa sjálfstæðar skoðanir og honum þarf að finnast gaman að tala við mig um næstum allt. Hann er ekki mikið fyrir að horfa á sjónvarp. Hann þarf að sjá í gegnum mig og má ekki vera hræddur við mig. Hann þarf að vera devoted dreki, heiðarlegur, sanngjarn og raunsær. Ákveðinn. Með húmor. Klár. Sannarlega minn, og ef hann er allt þetta fær hann í staðinn hjartað mitt, einlæga aðdáun mína, stuðning og tryggð.
Hann þarf ekki að kunna að fljúga, en hann þarf að vera one hell of a driver.
hehehe
Hann þarf að skilja vélar og hugsa rökrétt. Hann þarf ekki að vera efnaður en hann þarf að geta séð fyrir sér og hann þarf að hafa efni á að gera eitthvað skemmtilegt með mér annað slagið. Hann verður að kunna að meta stór brjóst. Og hann má ekki vera svo mikill pappakassi að hann geti ekki gólað á tunglið með mér þegar það er risastórt og fallegt.
Hann þarf að kunna að láta mér líða eins og ég sé falleg. Líka þegar ég er veik og lítil. Og hann þarf að vera on my side.
Þetta eru kröfurnar. Ég hef bara einu sinni fallið fyrir útliti karlmanns, það sem ég fell fyrir eru gáfur, persónuleiki og hæfileikar.
Hvað líkamsbyggingu varðar þá má hann ekki vera með minni rass en ég og ekki vera með stærri brjóst.
Þá held ég að þetta sé komið.
Óraunhæft?