Þriðjudagur, 12. maí 2009
Maðurinn sem hringdi á laugardagskvöldið. Til að spyrja hvort eitthvað væri búið að gerast. Og maðurinn sem bauð mér á stefnumót. Þessir menn voru á sömu árshátíðinni.
Á sama tíma og annar þeirra, sem er góður vinur minn, hringdi og spurði hvort eitthvað væri búið að gerast. Var hinn með laptoppinn uppá herbergi (þetta var á hóteli útá landi) að semja póst til mín og bjóða mér út. Hvorugur hafði hugmynd um að hinn tengdist mér á nokkurn hátt.
Eftirá að hyggja er í raun merkilegt að hann vilji hitta mig aftur. Allar sögurnar (sem voru sex eða sjö þegar upp var staðið) sem ég sagði fjölluðu um aðferðir sem ég hef notað til að verjast karlmönnum. Sex ára í fyrstu sögunni. 35 í þeirri nýjustu.
Þegar hann benti mér á þetta fattaði ég strax hvað hann var að meina - og það var ekki að ég hafi valið þessar sögur meðvitað.
Og þetta var svona.. "best of".