Laugardagur, 02. maí 2009
VLC, forritið sem ég nota til að spila DVD diska, er búið að vera að gera mig geðveika undanfarið vegna þess að það spilar ekki DVD diskana mína og ég er vön að láta bíómyndir rúlla stundum ef ég er ein heima.
Ég startaði forritinu áðan og þá fékk ég meldingu um að það væri komið bugfix, svo ég náði í það og voila! Nú spilar VLC alla DVD diskana mína (allavega þrjá sem ég er búin að prófa).
Klúður að hafa ekki keypt miða í lottóinu.