Mánudagur, 11. maí 2009
Leiður misskilningur átti sér stað þegar ég skrifaði "Komdu á svarta fáknum, mér leiðast hvítir hestar og bílar." í komment hér um daginn.
Í dag var mér gerð grein fyrir þessu þegar ónefndur karlmaður hringdi í mig í miklu uppnámi og spurði hvort þetta væri satt, hvort mér leiddist í alvöru bílar og hvort allt það fallega og ástríka sem ég er búin að skrifa um bíla í gegnum árin sé svo bara tómt rugl.
Auðvitað er það ekki tómt rugl. Rétt hefði verið að skrifa "Komdu á svarta fáknum, mér leiðast hvítir hestar og hvítir bílar.", því mér leiðast ekki bílar - þvert á móti - ég elska bíla. Bara ekki hvíta bíla*.
Ég skal aldrei skrifa neitt svona óljóst aftur, ég lofa, og ég harma allan þann tilfinningakvíða sem þú hefur mátt þola í kjölfar þessarar rangfærslu.
Ég vona að ég komi ennþá til greina sem verndari Samtaka alvöru karlmanna sem kunna að bakka í stæði.
(af hverju er ekki löngu búið að stofna þau?)

*Ef ég hitti mann sem er allt sem ég óskaði mér, fyrir utan að hann á hvítan bíl, myndi ég mjög sennilega sjá í gegnum fingur mér með það mál, enda er ég komin á þann aldur að það eru allir með einhvern pakka á bakinu.
Ef hann er með minni rass en ég og stærri brjóst hinsvegar.... það þarf ekkert að ræða það neitt frekar. Þessi atriði eru non negotiable.