Fimmtudagur, 07. maí 2009
Ég skrifaði færslu þegar ég kom heim í dag. Ritskoðaði hana. Ritskoðaði hana aftur. Ritskoðaði aftur.
Og þetta er það sem er eftir:
Nú þarf ég standa við loforð sem ég gaf í dag. Setja upp bros sem geislar af öryggi, töfra fram traustvekjandi rödd sem lætur þá sem heyra hana líða eins og þeir séu í verulega góðum höndum, og recorda þennan texta fyrir Marel.
Ef ég klára það á innan við klukkutíma ætla ég að fara út að hlaupa..