www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
...... ga
Miðvikudagur, 06. maí 2009

massage.jpgÉg fór í nudd í dag eftir vinnu, sogæðanudd. Ef ég hefði orðið fyrir loftsteini þegar nuddið var búið hefði ég dáið verulega afslöppuð.

Nuddarinn, sem er vinkona mín, gaf mér te á eftir og sagði að þegar hún var að fara að taka andlitið og höfuðið, sem er í lokin, þá setti hún handklæði undir höfuðið á mér og fannst eins og það færi illa um mig, svo hún spurði hvort ég vildi frekar hafa ekkert undir höfðinu. Ég lá á bakinu með munninn hálf opinn og eftir smá tíma heyrðist ...."ga". Það var augljóst að mér leið svo vel að ég var ófær um að tjá mig með orðum, svo hún hélt bara áfram að nudda mig. Sagði að þetta er besta svar sem hún hefur fengið hingað til þegar hún er að nudda og svo hlóum við og hlóum.

Ahhhh, hvað þetta var dásamlegt. Ég fór á eitthvað annað tilverustig á meðan hún var að þessu, ég veit ekki hvert, en ég væri alveg til í að flytja þangað, mér leið svo vel.... mmmmmmmm.

Ég sakna þess að vera snert af einhverjum sem lætur mig finna að honum þyki vænt um mig. Það er mismunandi hversu hæfir menn eru í að snerta. Allavega mig og ég veit ekki hvort það er hægt að feika snertingu sem kemur væntumþykju til skila. Ég held ekki.

Hann sagði að ég væri eins og dýr þegar ég hjúfra mig uppað honum og gef frá mér lágt hljóð sem benti til þess að ég þyrfti athygli og hann veitti mér hana, sem er ekki sjálfgefið. Ég áttaði mig ekki einu sinni á því að ég gerði þetta.

...... ga

Heitt bað.


| anna | 19:29 |
comments

Oh my goodness, how I could use a massage tonight. It was good to even read about one!

Nr. 1 | posted by: Lissi | 6.05.2009 | 20:45:58 | [+] |

Dásamlegt bað fyrir svefninn ... ég fór í sund smile

... ga

Nr. 2 | posted by: Hugskot | 6.05.2009 | 22:35:48 | [+] |

Leyfði mér að tengja í pistilinn þinn á fésbókinni minni wave ... ga angel

Nr. 3 | posted by: Hugskot | 6.05.2009 | 22:45:22 | [+] |

Þó það nú væri Hugskot! Takk fyrir dásamlegt nudd! wave

Nr. 4 | posted by: anna | 7.05.2009 | 7:36:19 | [+] |

Hugskot er langsamlega besti nuddari sem ég hef prófað... og eru þeir allnokkrir. Mér hefur aldrei liðið eins illa meðan á því stóð, en það var líka í alvörunni tekið á hnútunum og þeir leystir, ekkert hálfkák þar. Og þegar ég kvaddi hana var ég efins um að ég væri ökufær, ég var í svo vímukenndu ástandi. Það entist lengi. Takk Hugskot!

Nr. 5 | posted by: Kristín | 7.05.2009 | 11:35:26 | [+] |

Ég hef reyndar ekki mikla reynslu af því að fara í nudd, en þetta er besta nudd sem ég hef fengið, það er alveg ljóst.

- enda er ég að fara aftur eftir nokkra daga happy

Nr. 6 | posted by: anna | 7.05.2009 | 17:29:03 | [+] |

Ég ætla ekki að vera abbó, það er komið svo gott veður hérna, gott að þið eigið alla vega góðan nuddara þarna uppi í rokinu, he he.
Njóttu heil.

Nr. 7 | posted by: Kristín | 8.05.2009 | 5:43:25 | [+] |

Ég var að hlusta á lagi eftir 9 daga.

Kommentið hvarf. Svona...púff?

Nr. 8 | posted by: Árni | 9.05.2009 | 17:17:11 | [+] |

Hvaða komment eru að tala um? Er það eitthvað sem þú settir inn fyrir níu dögum? Ég skil ekki því ég sé að þú settir komment inn í dag (ég fæ póst) og þau skiluðu sér öll á síðuna.

Nr. 9 | posted by: anna | 9.05.2009 | 19:26:23 | [+] |

OK. Þau hverfa þegar ég les. Kannski af því að þau eru í framtíðinni? wink

Nr. 10 | posted by: Árni | 9.05.2009 | 19:32:04 | [+] |

Ég skil ekki.

Ekki það, framtíðin er góður staður til að geyma góða hluti á. Þá hefur maður eitthvað til að hlakka til smile

Það er jafn mikilvægt að skilja rusl eftir í fortíðinni svo maður sé ekki að burðast með það á sér endalaust. En koma því samt í endurvinnsluna ef hægt er. Ganga vel um.

Nr. 11 | posted by: anna | 9.05.2009 | 19:35:27 | [+] |

Ég var að hlusta á Maria Carey eftir 9 daga, 18. maí. Skrifaði athugasemd sem kom ekki fram, enda er hún í framtíðinni.

Kannski að Dr. Emmett Brown sé raunverulegur? wink

Nr. 12 | posted by: Árni | 9.05.2009 | 19:41:34 | [+] |

...h

Nr. 13 | posted by: Árni | 9.05.2009 | 19:42:56 | [+] |

Þetta er vissulega 20 ára gamalt lag og ég er ekki búin að hlusta á það mjög lengi - en - það á við núna.

Ef þú veist ekki hvað þú vilt, sérð það ekki fyrir þér, þá finnurðu það ekki þó það sé bein fyrir framan nefið á þér.

Dr. Emmett Brown! Við erum ágætis vinir wink

Nr. 14 | posted by: anna | 9.05.2009 | 19:47:37 | [+] |

Lagið vakti upp undarlega minningu um misheppnað skólaball. Það er einmitt þess vegna sem ég held sambandi við Dr. Brown.

Nr. 15 | posted by: Árni | 9.05.2009 | 19:53:24 | [+] |

Hvað gerir skólaball misheppnað?

Nr. 16 | posted by: anna | 9.05.2009 | 19:55:27 | [+] |

Það var sjálfskapað.

Nr. 17 | posted by: Árni | 9.05.2009 | 20:01:18 | [+] |

Tókst að valda sætri og góðri stelpu vonbrigðum. Orsökin var meinlaus, en hún kom með athugasemd sem að öllu jöfnu margir hefðu látið sem vind um eyru þjóta, en átti vel við mig án þess að hún gerði sér grein fyrir því.

Nr. 18 | posted by: Árni | 9.05.2009 | 20:19:47 | [+] |

Oh well.. það er alltaf vont þegar fólk hittir á veikan stað án þess að ætla sér það.

Og menn valda sætum og góðum stelpum vonbrigðum. Það virðist bara vera gangur lífsins og þær komast yfir það. Don't beat yourself up. smile

Nr. 19 | posted by: anna | 9.05.2009 | 20:28:32 | [+] |

.....kannski, en komast strákar nokkurn tíma yfir það?

Les of mikið chick lit og hlusta of mikið á Girls Aloud!

Nr. 20 | posted by: Árni | 9.05.2009 | 20:31:46 | [+] |

Reynsla mín er sú að strákar komast aldrei yfir það að særa stelpu sem þeir náðu ekki að gera sig gildandi gagnvart.

Ef þeir ná stelpunni hinsvegar og tekst að gera sig gildandi í tilfinningalífi hennar, þá virðist ekki snerta þá þó þeir skjóti hana í tætlur og neiti svo að hringja á sjúkrabíl á eftir.

Ef þetta er það versta sem þú hefur á samviskunni, þá þarftu nú ekki að hafa þungar áhyggjur. En ég myndi hinsvegar hætta sem fyrst að lesa chick lit sneiða hjá Girls Aloud!

Nema það sé lagið jump, þær taka það nú helv vel wink

Nr. 21 | posted by: anna | 9.05.2009 | 20:40:33 | [+] |

The Promise

Þetta er hræðilegt. wink

Nr. 22 | posted by: Árni | 9.05.2009 | 20:51:36 | [+] |

Össss..... !!!!! melodramatic

(ég hef aldrei heyrt það, hehehe)

Nr. 23 | posted by: anna | 9.05.2009 | 21:14:49 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web