Allar myndirnar sem ég skannaði eru nú eitthvað laskaðar, en það er oftast minniháttar og ekkert sem ég get ekki lagað.
Auk þess finnst mér þetta gaman. Ég hef aldrei séð sumar af þessum myndum, eins og þessa af afa.
Af hverju voru svona margir karlmenn með liðað hár hér áður fyrr ? Dó þetta svo bara út ?
Hvaða aðferð notarðu við að eyða þessum sprungum í myndinni? Handvirkt eða er þetta eitthvað tól?
Ég veit ekki um liðaða hárið.
Ég geri þetta bara í photoshop handvirkt. Eru til tól sem gera þetta alveg sjálfvirkt?
Hefur hárið ekki orðið sléttara með daglegum hárþvotti með sléttandi shampóum?