www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Grunnur
Laugardagur, 04. apríl 2009

grunnur-march09.jpg

Það skiptir öllu máli að grunna fyrst - og áður en maður grunnar, að pakka öllu inní dagblöð. Og áður en maður pakkar öllu inní dagblöð, að þrífa.

Mér finnst herbergið skelfilegt svona snjóhvítt. Hlakka til að sjá hvernig það verður þegar ég er búin að mála það marmarahvítt. Reyndar verður loftið snjóhvítt, það er eitthvað thing hjá mér og er búið að vera lengi. Loftið verður að vera hvítt.


| anna | 14:35 |
comments

Hefði ekki verið snjallt aðskrúfa veggdraslið þarna niður frekar en vefja því í pappír?

Það er líka hægt að taka rörhulsurnar við blöndunartækin frá veggnum.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 4.04.2009 | 16:17:12 | [+] |

Þú veist hvar ég á heima ef þú vilt hjálpa Alan.

hehehe

Sumt skrúfaði ég niður, annað lét ég vera.

Nr. 2 | posted by: anna | 4.04.2009 | 16:48:52 | [+] |

Ég stóð í þessu nákvæmlega sama um jólin. Okkar veggdrasl reyndist kolryðgað þegar ég ætlaði að skrúfa það af. Mér hafði reyndar tekist að hálflosa það svo ekki varð aftur snúið. Það hafðist að lokum af með kúbeini. Nýtt kostaði 12000 kall í Bykó.

Sennilega hefði verið skynsamlegra að vefja dagblöðum utan um það.

Baðaðgerðunum er reyndar ekki lokið ennþá því það á eftir að vatnsverja fúgurnar eftir að við löguðum flísarnar. Fyrir vikið þá hef ég endurnýjað kynnin við baðferðir eftir áratuga sturtunotkun. Mér er alveg hulið hvers vegna ég fór að fara frekar í sturtu en bað.

Nr. 3 | posted by: AlanHudson | 4.04.2009 | 17:08:57 | [+] |

Þessi stöng er reyndar ekki ryðguð en draslið við kranann á baðkerinu er allt fast og ég tek ekki sénsinn á að losa það.

Eg er í smá sjokki núna, er hrædd um að liturinn sé soldið grænn en ekki nóg til þess að hann sé róandi. Meira pirrandi.

Svo kannski mála ég aftur næstu helgi..

hahahaha

Nr. 4 | posted by: anna | 4.04.2009 | 17:15:23 | [+] |

Og btw.. fólk sem fer í sturtu gefur sér ekki tíma til að slaka á eitt með sjálfu sér. Mér er sama hvað hver segir, þú slakar ekkert jafn mikið á í sturtu og í baði.

Elska að fara í bað..

Nr. 5 | posted by: anna | 4.04.2009 | 17:41:57 | [+] |

Mér hefur alltaf fundist Svartur litur vera vanmetinn inná baðherbergi.... segi að þú prófir það!

Nr. 6 | posted by: Rúnar Ágúst | 5.04.2009 | 16:20:58 | [+] |

hehehe no way. Þetta er ekki stórt baðherbergi og ég yrði sennilega þunglynd að fara í bað í svörtu baðherbergi.

Finnst þér eitthvað að þessu eins og þetta er?

Nr. 7 | posted by: anna | 5.04.2009 | 17:03:14 | [+] |

Það er hins vegar alls ekki eins skemmtilegt að syngja í baði og í sturtu ...

Nr. 8 | posted by: Hugz | 5.04.2009 | 21:18:28 | [+] |

Ég er ekki sammála, plús, það fer minna af vatni uppí mann.

Nr. 9 | posted by: anna | 5.04.2009 | 22:40:07 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web