Þriðjudagur, 21. apríl 2009
Í gær gerði ég misheppnaða sjálfsmorðstilraun. Samstarfsmaður minn hafði beðið mig um far útí Bónus og ég ákvað að nota tækifærið og kaupa mat. Ég er búin að reka svona "hótel Eþíópía" stefnu á heimilinu undanfarið, sagt börnunum að borða snjó, en nú þegar allur snjór er farinn er ég hrædd um að einhver tali við barnaverndarnefnd ef ég kaupi ekki einhvern mat. Ég var inní ávaxta og grænmetiskæli þegar ég missti skyndilega og fyrirvaralaust allan lífsvilja og lamdi hausnum samstundis utaní einhverja grind sem var þarna.
Þegar ég hafði lamið hausnum í grindina fylltust augun mín af tárum og ég fann nístandi sársauka í enninu og nefinu, hélt að ég væri að fá blóðnasir. Ég slagaði eitthvað um búðina og röflaði um að ég þyrfti að kaupa grænt salat, þangað til samstarfsmaður minn fann mig og hrópaði "Anna, hvað kom fyrir?" Það lak blóð niður ennið á mér.
Þyrla var kölluð út og ég flutt uppá slysó.
Neinei, ég keyrði sjálf uppá slysó, sem verður að teljast nokkuð gott þar sem ég var töluvert vönkuð eftir þetta höfuðhögg. Læknirinn sem skoðaði mig útskýrði að þessi aðferðarfræði væri ekki vænleg til árangurs - ekki nema ég myndi berja höfðinu ítrekað í grindina og helst stinga teini í gegnum hausinn á mér líka - "to confirm the kill". Svo sagði hann að ég ætti að taka verkjatöflur og fara heim að sofa.
Ég var mjög þunglynd þegar ég lagði af stað heim. Leið eins og ég væri underachiever. Failure. Auk þess leið mér svolítið eins og ég hefði verið að drekka og átti erfitt með að ganga beint.
Þegar ég kom heim sá einkasonurinn ennið á mér og hrópaði "Mamma, hvað kom fyrir þig?" "Ég gekk á grind í Bónus" svaraði ég. Einkasonur minn át upp það sem ég sagði og svo fór hann að skellihlæja. Ég náði uppúr honum (um kvöldið, þegar hann var hættur að hlæja) að hann sá fyrir sér að ég hefði gengið á innkaupakerru. Ekki það, hann er ekki sá eini sem hefur hlegið að þessu. Nánast allir sem hafa spurt hafa þurft að kæfa niður í sér hláturinn, enda færi ég nú ekki að slasa mig nema á kómískan hátt.
Ég er með smá skurð á enninu og svona "ég gekk á hurð" áverka. Má búast við tvöföldu glóðarauga en verð sennilega búin að jafna mig alveg eftir tíu daga.