Fimmtudagur, 02. apríl 2009
..og datt í hug að athuga hvort ég fyndi bíl sem mig langar í til sölu.
Byrjaði auðvitað á að skoða Bentley, en ekki hvað. Ég er svo jarðbundin og raunsæ manneskja.

Í þessum bíl er svona rauður hnappur. Þegar ég sá hann, þá.. oh yes.

Það er ekkert jafn kúl og bíll með svona dularfullum rauðum hnapp og VEI ÞEIM SEM VOGAR SÉR AÐ SEGJA MÉR HVAÐ ÞESSI HNAPPUR GERIR. Ég vil ekki vita það - enda algjört aukaatriði.
Þetta var ekki allt. Í skottinu, þetta er svo dásamlegt, í skottinu á þessum bíl er sérstök regnhlífa festing og í henni er bonafide Bentley regnhlíf.
Meina.. þetta er bara svo sætt.
Bentley er sennilega fyrir mér eins og.. fallega vaxin, nakin kona er fyrir karlmanni. Mér finnst gaman að skoða myndir af Bentley en ég hef enga sérstaka þörf fyrir að eiga þannig bíl - svipað og karlmenn fá aldrei nóg af því að skoða fallegar naktar konur, en þeir virðast hafa litla þörf fyrir að eiga þannig. Ekki for life. Ég væri samt til í að keyra Bentley, rétt eins og karlmenn væru alveg til í að.. já. En ég nenni ekki að keyra Bentley á Íslandi, ég er öðruvísi en karlmenn með það. Bentley er bíll sem maður þarf að keyra á alvöru vegum. Ég hef ekki rekist á þannig hér á landi, rétt eins og ég hef ekki rekist á alvöru.. geimskip. Með cruise control.
Samt trúi ég að svoleiðis geimskip sé til, en klukkan er líka orðin margt og ég farin að rugla.
Góð saga.
Næst skoðaði ég bíla sem mig langar að eiga, ennþá með jarðtenginguna á "maximum"..
..og vá!
Mig langar að eiga svona bíl.

Hvað gerði ég nú við jesú..