Ég var að klára að setja upp svæði á innranetinu hjá Marel fyrir ákveðið verkefni sem mig langar að klára en vantar upplýsingar - svo ég setti upp svæði sem ætti að auðvelda þeim sem hafa upplýsingarnar að koma þeim frá sér. Ég ætti að undirbúa baðherbergið fyrir málningu, en ég nenni því ekki. Ætla frekar að.. fara að sofa eða eitthvað.
Á morgun þarf ég að fá mér bílaleigubíl. Ég get ekki verið bíllaus endalaust.
Að vera á bíl táknar frelsi fyrir mér. Þó ég fari aldrei út fyrir bæinn - og þó ég hafi í raun ekkert að fara þannig lagað á þessu blessaða landi, þá skiptir mig máli að geta það.
Svo á ég náttúrlega ennþá farmiða til Færeyja með Norrænu..
..og datt í hug að athuga hvort ég fyndi bíl sem mig langar í til sölu.
Byrjaði auðvitað á að skoða Bentley, en ekki hvað. Ég er svo jarðbundin og raunsæ manneskja.
Í þessum bíl er svona rauður hnappur. Þegar ég sá hann, þá.. oh yes.
Það er ekkert jafn kúl og bíll með svona dularfullum rauðum hnapp og VEI ÞEIM SEM VOGAR SÉR AÐ SEGJA MÉR HVAÐ ÞESSI HNAPPUR GERIR. Ég vil ekki vita það - enda algjört aukaatriði.
Bentley er sennilega fyrir mér eins og.. fallega vaxin, nakin kona er fyrir karlmanni. Mér finnst gaman að skoða myndir af Bentley en ég hef enga sérstaka þörf fyrir að eiga þannig bíl - svipað og karlmenn fá aldrei nóg af því að skoða fallegar naktar konur, en þeir virðast hafa litla þörf fyrir að eiga þannig. Ekki for life. Ég væri samt til í að keyra Bentley, rétt eins og karlmenn væru alveg til í að.. já. En ég nenni ekki að keyra Bentley á Íslandi, ég er öðruvísi en karlmenn með það. Bentley er bíll sem maður þarf að keyra á alvöru vegum. Ég hef ekki rekist á þannig hér á landi, rétt eins og ég hef ekki rekist á alvöru.. geimskip. Með cruise control.
Samt trúi ég að svoleiðis geimskip sé til, en klukkan er líka orðin margt og ég farin að rugla.
Góð saga.
Næst skoðaði ég bíla sem mig langar að eiga, ennþá með jarðtenginguna á "maximum"..
Ég sat í leigubíl í morgun á leiðinni í vinnuna þegar síminn minn hringdi. Þetta var kona sem ég þekki, en ekkert mjög vel. Hún spurði hvort ég væri bíllaus og ég sagði já. Þá sagðist hún hafa bíl ef ég vildi fá hann lánaðann. Ég varð svo hissa að ég missti hálfpartinn málið og hún heyrði það. "Jaaa", sagði ég en hún greip frammí fyrir mér.
"Ég var einu sinni einstæð móðir líka, Anna."
Og það varð þögn.
Með þessari setningu sló hún öll vopn úr höndunum á mér. Það var eitthvað við hvernig hún sagði þetta sem sagði mér að hún hefur verið á sama stað og ég er núna og skilur hvernig mér líður. Það að vera einstæð móðir getur þýtt margt, og þessi kona skilur hvernig það er fyrir mig.
Ég þáði boðið en svo kom í ljós að ég þurfti þess ekki þar sem ég er búin að fá bílinn aftur og ég er svo pissed off að ég get ekki tjáð mig um það mál akkúrat núna - ekki spyrja.
Hinsvegar.. fyrst ég er komin á bílinn aftur er ég í aðstöðu til að halda áfram með það sem ég var byrjuð að gera og það mun sennilega þýða minni og minni viðveru hér. Ég var búin að ákveða að útskrifa mig áramótin 09/10, og það gerist ekki nema með því að takast á við það sem ég er að flýja með því að koma hingað.
Í raun er þetta liður í planinu: mála íbúðina. Ég klára að mála baðherbergið á sunnudaginn og ég verð búin með alla íbúðina í síðasta lagi í haust, sennilega í sumar.
Veggurinn í kringum baðkarið var svo illa farinn neðst að ég þurfti að spartla nokkrum sinnum, en þetta verður helv gott þegar ég er búin - og ég mun njóta þess að fara í bað.
Þangað til verður að duga að fara í sturtu í ræktinni.
Það skiptir öllu máli að grunna fyrst - og áður en maður grunnar, að pakka öllu inní dagblöð. Og áður en maður pakkar öllu inní dagblöð, að þrífa.
Mér finnst herbergið skelfilegt svona snjóhvítt. Hlakka til að sjá hvernig það verður þegar ég er búin að mála það marmarahvítt. Reyndar verður loftið snjóhvítt, það er eitthvað thing hjá mér og er búið að vera lengi. Loftið verður að vera hvítt.
Ég fór í matarboð í gærkvöldi. Þegar ég fór heim í nótt var klukkan rúmlega þrjú og ég var að leka niður úr þreytu, en ég ákvað samt að mála eina umferð á veggina eins og ég hafði ákveðið að gera. Málaði einn vegg og áttaði mig á því að ég gat ekki notað þettan lit því hann fór alveg óhugnanlega í taugarnar á mér.
Í dag varð ég mér útum annan lit: málarahvítt, og ég er búin að mála eina umferð af honum og þetta er allt annað líf. Hitt var of gul.. grænt.. skært.. skerandi eitthvað. Ég má ekki hafa lit sem gerir mig geðveika á staðnum sem ég fer á til að slaka á í baði. Það gengur ekki upp.
Og þar sem hurðin var orðin svo ógeðslega ljót í samanburði við restina af baðherbergjunum þá ákvað ég að mála hana bara líka. Hún verður alveg hvít.
Var að fara í gegnum dótið sem var inná baði. Börnin eru auðvitað löngu hætt að leika sér með dót í baði, en ég fann nú samt eitt dót sem ég ætla ekki að losa mig við, önd.
Ég þurfti náttúrlega að skíra öndina, fyrst hún er orðin mín. Ætlaði fyrst að skíra hana Jónas, en ég nota það nafn svo mikið, svo ég ákvað að skíra öndina Júdas. Kallaður Júddi.
Anna: ég er að deyja
Frumburður: þú ert ekkert að deyja, þú ert bara eins og Cameron og dettur ekkert skemmtilegt í hug akkúrat núna
Doddi: When Cameron was in Egypts land..
Frumburður/Doddi: Let my Cameron go..
Það er svo gott að umgangast fólk sem skilur það sem maður er að segja. Ef einhver þarf að ná í mig þá verð ég í sófanum að bíða dauðans.
Hann sá myndina af mér í sófanum í dúnúlpu og undir sæng og sagði að ég liti út eins og prinsessa.
Ég sagði honum að ég er prinsessa, en, búin að týna drekanum mínum. Og það er þess vegna sem engum heilvita manni dettur í hug að það sé nein ástæða til að bjarga mér - sem er misskilningur, ég þarfnast einmitt mjög björgunar.
Svo sagði ég honum að ef ég fyndi þennan dreka aftur myndi ég láta aflífa hann fyrir að sinna ekki starfinu sínu.
Af hverju virðist dót vera það eina sem fjölgar sér í minni návist?
Monsters vs Aliens er must see. Ég var næstum búin að pissa í mig úr hlátri þegar forseti bandaríkjanna reyndi að ná sambandi við geimverurnar through the majesty of music.
Í gær horfði ég á bíómyndina Casino Royale sem var sýnd í bíó árið 2006 en ég var upptekin að þvo á mér hárið og missti af henni þá.
Nei. Sannleikurinn er sá að ég sá Daniel Craig á mynd og dæmdi hann pappakassa á staðnum. Ætlaði ekki að borga peninga fyrir að horfa á þennan lúser nauðga James Bond hlutverkinu fyrir framan augun á mér í 130 mínútur.
Fordómar? Já ég hef þannig.
Nema í gærkvöldi gerðust stórkostlegir hlutir á meðan ég horfði á myndina og ég er ekki frá því að mér finnist þessi fyrrum pappakassi betri bond en Sean Connery. Ég er reyndar á egglosi og það gæti hafa litað upplifunina. Hann myndast skelfilega þessi einstaklingur, minnir á þorsk, en hann er guðdómlegur á filmu.
OG VÁ HVAÐ HANN ER FLOTTUR Í DINNER JACKET!
Verulega flott eintak - á hreyfingu.
--
Hér er ég að áreita hann kynferðislega:
Hér er hann að hugga mig af því kampavínið var búið og hann átti ekkert baðkar:
Og hér er hann fullkominn. Enda sést andlitið á honum mjög illa.
Sumir myndast bara ekki vel, það þýðir ekki að þeir séu ekki flottir. Meina.. svona karlmaður í svona fötum.
Anna says: hæhæ
Anna says: fæ ég álit?
xxx says: ha já
Anna says: ég er að hugsa um að fá mér svona klippingu (eins og hún er með)
xxx says: oboy
Anna says: hvað
xxx says: ekki ætlastu til þess að ég skrifi upp á hárstyttingu !
Anna says: þú þarft ekki að skrifa uppá það
Anna says: en þú mátt segja mér hvort þér finnst þetta flott
xxx says: en hún er með tagl
xxx says: þetta gæti hugsanlega
xxx says: kannski
xxx says: verið flott
Anna says:
xxx says: en ef þú nærð einhvern tíman í kærasta þá þýðir ekkert að segja að ég hafi stutt þig í þessu !
Anna says: næ mér í kærasta...
Anna says: höldum okkur á jörðinni, shall we?
xxx says: hehe
xxx says: já ertu búin að sætta þig við að þú finnur aldrei kærasta og ert þess vegna að fá þér svona klippingu
Anna says: við skulum orða þetta svona
Anna says: reynslan hefur kennt mér að sítt hár skiptir engu
Anna says: það virðast bara giftir menn fíla það
Anna says: og ég hef ekkert við gifta menn að gera
xxx says: þú meinar..
Anna says: auk þess er ég orðin svo leið á hárinu á mér að ég gæti ælt
xxx says: hvenrig háls ertu annars með ?
Anna says: ég er með mjög fallegan háls
Anna says: þetta myndir þú VITA ef ég væri ekki með SVONA SÍTT HÁR
xxx says: hehe
xxx says: já ég hef aldrei tekið mikið eftir honum
xxx says: ertu með langan háls eða bara meðal ?
Anna says: ég er með meðal hugsa ég
Anna says: það hefur allavega engin hváð og sagt "vá, sjáiði hálsinn á þessari!"
Anna says: nema ef ég hef verið með mjög stóran sogblett, en hérna erum við komin mööööörg ár aftur í tímann
xxx says: aha
xxx says: þú hefur alla vegana aldrei gengið undir nafninu "gíraffinn"
Anna says: not to my face
Anna says:
xxx says:
xxx says: ég var að átta mig á einu
xxx says: þegar þú ferð út
xxx says: og vilt láta einhverja gaura glefsa í hálsinn á þér
xxx says: þá tekurðu auðvitað alltaf hárið upp !
Anna says: jájá
xxx says: þannig að það er enginn ávinningur í klippingunni !
xxx says: ég hef verið blekktur
Anna says: karlmennirnir hérna í vinnunni eru sumir grátandi
xxx says: já ég er ekkert hissa á því
xxx says: full ástæða til þess að gráta almennilegt hár
Anna says: jájá
Anna says: þið eruð svo margir
Anna says: gamaldags
xxx says: leimméraðsjá
Anna says: veistu
Anna says: ég er að hugsa um að fara ennþá styttra næst
xxx says: jææææja
xxx says: ertu ekki líka að spá í að fara að safna skeggi ?
xxx says: og brúskum undir höndum
xxx says: þú nærð þér ekki í kærasta þannig
Anna says: má ég benda þér á
Anna says: núna um páskana átti ég afmæli
Anna says: ég er búin að vera ein í fimm ár
Anna says: fimm ár
xxx says: já þú meinar
Anna says: einn maður hefur eytt heilli helgi með mér á þessum tíma
Anna says: og sennilega var það vegna þess
Anna says: að hann er íri
Anna says: sem þekkir engan á íslandi
Anna says: OG GAT EKKERT ANNAÐ FARIÐ!
xxx says: rugl
Anna says: segðu
Anna says: ef þú vilt sjá hárið þá get ég hitt þig í hádeginu
xxx says: jú er það ekki bara tilvalið ?
Anna says: ég er til
xxx says: hvert viltu fara ?
Anna says: the usual?
xxx says: ok
xxx says: ef ég tryllist þegar ég sé þig og hleyp í burtu
xxx says: þá veistu hvers vegna
Anna says: já þá borða ég bara ein
Anna says: big deal
xxx says: já þú lætur bara eins og ekkert hafi í skorist
Anna says: jájá
Þetta var mjög fyndið. Þegar hann kom varð hann undrandi á svipinn, eiginlega eins og hann þekkti mig ekki. Þegar við vorum búin að borða gengum við saman út og á bílastæðinu bað hann mig að snúa mér við svo hann sæi hárið að aftan. "Já.. ég verð eiginlega að viðurkenna að þetta fer þér bara mjög vel"
Bíllinn minn er búinn að vera eins og haugur undanfarið, ég hef ekki haft neinn tíma til að sinna honum en í dag hringdi ég í mann sem þrífur og bónar bíla og hann kom og sótti bílinn til mín í vinnuna, þreif hann hátt og lágt, og skilaði honum aftur í vinnuna til mín.
Þvílík og önnur eins snilld. Bíllinn minn er svo fallegur núna, þessi strákur tók hann gjörsamlega og algjörlega í gegn, felgurnar eru eins og nýjar, það stirnir af bílnum og strákurinn festi allar mottur niður. Skipti meira að segja um peru í framljósinu!
Þvílíkur lúxus.
Ég keyrði þrjá hringi í kringum hverfið áður en ég neyddist til að fara heim í kvöld.
Ég er búin að ráða þennan strák til að sjá um bílinn fyrir mig. Þetta er nákvæmlega og akkúrat það sem ég þurfti, einhvern til að gera þetta fyrir mig á meðan ég er í vinnunni.
Sennilega er ég ofvirk því ég er búin að fara að kaupa klósettpappírshaldara eitthvað, 28 árum á undan áætlun, og í kvöld var það fest upp við hátíðlega athöfn.
Og svo er hér smá sólarlagsmynd sem ég fann á símanum mínum. Tók hana þegar ég fór út að hjóla um daginn með drekanum mínum (hann er fundinn).
Það er rugl hvað ég er dugleg þessa dagana.
Að lokum er hér mynd sem ég tók af tölvunni hans Dodda.
Byrjuðum daginn á að skoða óhugnanlega flotta bíla..
Sjáðu mamma, neeeett!
Hvaðan eru þessir bílar mamma?
Þeir eru amerískir, kallaðir muscle cars.
Hann þurfti ekki að spyrja af hverju þeir eru kallaðir muscle cars.
They don't make'em like they used to.
Sjáðu þetta merki mamma! Nett!
Þó ég hafi fallið fyrir gömlu týpunum þá féll einkasonurinn fyrir nýjasta bílnum á svæðinu.
Vill fá þennan í afmælisgjöf þegar hann verður tvítugur.
Á eftir fórum við í Háskólabíó, byrjuðum á að hlusta á.. held ég skólahljómsveit af Seltjarnarnesi. Mér fannst þau æðislega flott.
Og hlustuðum svo á tónlistina úr Þyrnirós eftir Tchaikovsky í flutningi sinfóníunnar og horfðum á krakka úr listdansskólanum dansa.
Þetta er náttúrlega yndisleg tónlist.
Á leiðinni heim fann ég loksins, LOKSINS varalit í staðinn fyrir Make Up Forever varalitinn minn n 56 (sem er svo gott sem búinn). Sá sem ég fann og get notað í staðinn heitir Delish og fæst í MAC í Kringlunni.
Í gær gerði ég misheppnaða sjálfsmorðstilraun. Samstarfsmaður minn hafði beðið mig um far útí Bónus og ég ákvað að nota tækifærið og kaupa mat. Ég er búin að reka svona "hótel Eþíópía" stefnu á heimilinu undanfarið, sagt börnunum að borða snjó, en nú þegar allur snjór er farinn er ég hrædd um að einhver tali við barnaverndarnefnd ef ég kaupi ekki einhvern mat. Ég var inní ávaxta og grænmetiskæli þegar ég missti skyndilega og fyrirvaralaust allan lífsvilja og lamdi hausnum samstundis utaní einhverja grind sem var þarna.
Þegar ég hafði lamið hausnum í grindina fylltust augun mín af tárum og ég fann nístandi sársauka í enninu og nefinu, hélt að ég væri að fá blóðnasir. Ég slagaði eitthvað um búðina og röflaði um að ég þyrfti að kaupa grænt salat, þangað til samstarfsmaður minn fann mig og hrópaði "Anna, hvað kom fyrir?" Það lak blóð niður ennið á mér.
Þyrla var kölluð út og ég flutt uppá slysó.
Neinei, ég keyrði sjálf uppá slysó, sem verður að teljast nokkuð gott þar sem ég var töluvert vönkuð eftir þetta höfuðhögg. Læknirinn sem skoðaði mig útskýrði að þessi aðferðarfræði væri ekki vænleg til árangurs - ekki nema ég myndi berja höfðinu ítrekað í grindina og helst stinga teini í gegnum hausinn á mér líka - "to confirm the kill". Svo sagði hann að ég ætti að taka verkjatöflur og fara heim að sofa.
Ég var mjög þunglynd þegar ég lagði af stað heim. Leið eins og ég væri underachiever. Failure. Auk þess leið mér svolítið eins og ég hefði verið að drekka og átti erfitt með að ganga beint.
Þegar ég kom heim sá einkasonurinn ennið á mér og hrópaði "Mamma, hvað kom fyrir þig?" "Ég gekk á grind í Bónus" svaraði ég. Einkasonur minn át upp það sem ég sagði og svo fór hann að skellihlæja. Ég náði uppúr honum (um kvöldið, þegar hann var hættur að hlæja) að hann sá fyrir sér að ég hefði gengið á innkaupakerru. Ekki það, hann er ekki sá eini sem hefur hlegið að þessu. Nánast allir sem hafa spurt hafa þurft að kæfa niður í sér hláturinn, enda færi ég nú ekki að slasa mig nema á kómískan hátt.
Ég er með smá skurð á enninu og svona "ég gekk á hurð" áverka. Má búast við tvöföldu glóðarauga en verð sennilega búin að jafna mig alveg eftir tíu daga.
Annars er setning dagsins fengin frá Gunnari, 5 ára dreng á leikskólanum Burknabæ: "Sko... já, ég var að drullumalla þarna inná klósetti og ég skal alveg þrífa - ef hinir gera það fyrst."
Gunnar ætlar sér stóra hluti í pólitík þegar hann verður stór.
Þessi mynd er fjársjóður, ég vissi ekki að það væri til mynd af mér í þessum stígvélum. Ég fékk þau í jólagjöf frá ömmu og mamma barðist gegn því að ég væri í þeim í skólanum - meina.. þetta voru háhæluð stígvél.
Ég fékkst hinsvegar ekki til að fara úr þeim svo ef ég átti að fara í skólann þá var það í stígvélunum.
Man ennþá eftir deginum sem þeim var hent. Þau voru algjörlega handónýt enda hafði ég notað þau upp til agna og þau voru löngu hætt að passa á mig, undir það síðasta var hreint út sagt sárt að vera í þeim, en ég lét það ekki stoppa mig.
Þetta er fyrsta ástin mín í ástarævintýri sem er still going strong. Í dag á ég fjögur pör af háum stígvélum. Á reyndar engin kúrekastígvél í dag. Kannski ég bæti úr því á næstu mánuðum..
Ég er að fatta að ég á eitt sameiginlegt með ömmu sem ég vissi ekki af. Hún virðist oft hafa tekið gleraugun af sér þegar einhver var að taka mynd af henni, en hún var nánast alltaf með þau. Eins og ég.
Þóra frænka mín er á efri myndinni og á neðri myndinni er Veiga frænka mín og pabbi. Þau halda á öllum börnunum hennar Veigu, hún átti svo mikið af dúkkum og böngsum. Mér finnst þetta hrikalega krúttleg mynd af þeim.
Á mánudagskvöldið hitti ég Nornina. Við borðuðum saman og spjölluðum.
Á eftir skutlaði ég henni í búðina og ákvað að hjálpa henni að ganga frá, enda finnst mér ég eiga svolítið í Nornabúðinni þó ég hafi aldrei haft neina aðkomu að rekstrinum. Mér þykir vænt um hana. Mun sakna hennar mikið. Ég er að tala um Evu.
Við vorum búnar að þrífa og spjalla í sennilega klukkutíma þegar ég áttaði mig á því að nákvæmlega þetta ég vil fá útúr sambandi við karlmann, og mögulega er það fullkomlega óraunhæf krafa. Við vorum þarna tvær, að vinna saman verkefni sem var ekkert sérstaklega skemmtilegt en mér fannst þetta hinsvegar ekki hætishót leiðinlegt vegna þess að það var svo gaman að spjalla. Það sem við töluðum um á meðan við vorum að þrífa og tína saman dót veitti mér raunverulega gleði. Mér finnst gaman að tala við Evu um nánast hvað sem er, vegna þess að hún er með skemmtilegar hugmyndir og frumlegar. Við vinnum vel saman. Við getum tekið ábendingum frá hvorri annarri og það gerir þetta allt eitthvað svo áreynslulaust. Við erum ekki í valdabaráttu, höfum hvorugar áhuga á að stjórna hinni eða móta eftir okkar höfði. Og þegar ég áttaði mig á hvað mér leið vel fékk ég hugmynd.
"Eva.. þegar krakkarnir eru flutt að heiman og ég þarf ekki lengur að reka heimili, ertu til í að stofna með mér aðra Nornabúð? Getum eytt ellinni saman í að skrifa og búa til galdra og nornast eitthvað."
"Já ég er til í það. Stofnum sérlegt Nornasetur og klæðum okkur í röndótta sokka."
"Brilliant."
Frá því ég var lítil hef ég nefnilega alltaf sé fyrir mér að ég yrði hrikalega öldruð með einhverjum manni sem ég myndi kalla manninn minn. Manni sem ég sæi ekki sólina fyrir og þætti óendanlega vænt um, enda ættum fjöldann allan af góðum minningum saman.
Það var sennilega í kringum áramótin sem það fór að renna upp fyrir mér að sökum ákveðinna aðstæðna eru líkurnar á að þessi draumur minn verði að veruleika frekar litlar. Það má eiginlega segja að hann sé dáinn. Allavega í coma. En að reka Nornabúð þegar ég er orðin gömul og ganga um í röndóttum sokkum og með hatt. Mér finnst það ekkert síðri örlög en hitt. Og ef ég finn mann sem hefur það sem þarf til að eiga konu eins og mig, einhvern sem mig langar að verða gömul með, þá á honum bara eftir að finnast töff að ég reki Nornabúð.
Þegar við höfðum ákveðið að stofna saman Nornasetur í framtíðinni gat ég allt í einu aftur séð mig sem gamla konu, í röndóttum sokkum og skóm með sylgju. Brosandi.
Fór áðan með drekanum mínum að taka niður Nornabúðarskiltið. Það getur verið gott að eiga dreka þegar maður þarf að taka niður stór skilti.
Drekinn var samt ekki alveg sannfærður um að hann ætti að hjálpa mér, spurði hvort ég væri með skriflegt umboð eða leyfi fyrir að fjarlægja skiltið. Ég sagðist ekki hafa neitt slíkt, svo fór ég að hlæja. Flippuð hugmynd: keyra um með stiga í bílnum og skiptilykla, stilla stiganum upp við hina og þessa verslun og bíða eftir að stæðilegur karlmaður, eða dreki, gangi, eða fljúgi, framhjá og biðja viðkomandi um að hjálpa sér við að fjarlægja skiltið - í fullkomnu leyfisleysi.
Mér finnst þetta absúrd skemmtileg hugmynd og ef ég hefði ekkert betra að gera myndi ég sennilega taka eins og einn dag í svona tilraun, bara til að kanna hvort menn, eða drekar, væru fáanlegir til að hjálpa mér.
En drekinn veit vel að ég er ekki að gera þetta í leyfisleysi, ég bauð Evu að gera þetta og passa uppá skiltið þangað til við notum það á næstu búð og hann sá um að taka þetta niður fyrir mig, enda er ég svo lítil og væskilsleg að ég hefði sennilega misst skiltið ofaná hausinn á mér og dáið hefði ég reynt þetta án aðstoðar.
Drekinn var næstum búin að steikja mann sem kom þarna að og spurði hvaða starfsemi væri verið að setja upp í húsnæðinu, en svo sá drekinn að þetta var ekki prins og missti áhugann á honum.
Mikið líður mér vel að vera komin með Nornabúðarskiltið í gæsluvarðhald. Þetta skilti er sögulegt og verður vonandi notað aftur, fyrr en seinna.
xxx says: í framhaldi af því sem við vorum að tala um í gær þá rakst ég á þessa skemmtilegu setningu ,,Love is what's left over after the heat and the passion died"
Anna says: já
Anna says: en hún hljómar frekar depressing
Anna says: að elska einhvern er mjög djúp tilfinning, einlæg og góð.
xxx says: Ætlaði bara að sjá hvort þú mundir túlka þetta sem heilagan sannleika. Ef þú hefðir túlkað þetta sem hið holy grail þá hefði ég sagt að þú værir bitur
Anna says: svo ég stóðst prófið?
xxx says: Aced it
Anna says:
Ég er brennd, en það er hægt að vera brenndur án þess að vera bitur. Það þýðir bara að maður er varkárari en þeir sem hafa aldrei meitt sig..