www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Z German veikur
Föstudagur, 27. mars 2009

zgermanveikur.png

Ég fór að láta skipta um bremsur að aftan í Z German í janúar. Í dag, á leiðinni heim úr vinnunni, heyrði ég eitt það óhugnanlegasta hljóð sem ég hef á ævinni heyrt í bíl, svo ég keyrði strax útí kant og hringdi fyrst í pabba (ennþá eini maðurinn sem ég leita til í neyð sem ég veit að kemur á staðinn innan sólarhrings) og svo í verkstæðið sem skipti um bremsuklossa og diska og allt heila draslið í janúar, vegna þess að klossinn var horfinn á einum stað að aftan svo þetta var járn í járn - sem gaf frá sér svona dásamlegt óhljóð.

Verkstæðið gaf mér upp númer sem ég hringdi í og korteri seinna kom maður sem tók Z German á háhest og ferjaði hann á verkstæðið. Þar sögðu þeir að dælan væri föst og þess vegna hefði þetta gerst. Pabbi var ekki sannfærður.

Pabbi kom með mér heim og við héldum áfram að undirbúa baðið fyrir málningu. Eftir að við höfðum skrapað alla lausa málningu í kringum baðið af, settist pabbi með mér inní eldhús og teiknaði upp þverskurð af bremsum að aftan í bílum. Ég veit hvernig bremsur á bílum virka, hef skipt um slatta af klossum sjálf bæði að framan og aftan.

Ég sagði honum frá því þegar ég hringdi á verkstæðið stuttu eftir að þeir skiptu um bremsur að aftan og spurði hvort það væri eðlilegt að það væri svona mikið væl í bremsunum. Þeir sögðu að það væri allt í lagi en ég gæti komið með bílinn þegar ég hefði tíma og þeir myndu laga þetta. Þegar ég hef tíma. Ég hef aldrei tíma afgangs til að dólast með bílinn á verkstæði ef þess þarf ekki, svo næsta spurning sem ég spurði var "er þetta hættulegt, þarf ég að láta laga þetta?" Nei. Þetta er ekki hættulegt.

Ég sagði pabba líka frá því að þegar ég fór með hann í smurningu síðast, fyrir rúmum mánuði síðan. Þá hélt ég að það væri að kvikna í afturhjólinu og bað kallana að kíkja á hvort það væri í lagi með bremsurnar að aftan. Þeir sögðu að þetta væri bara skítur á pústinu. Það er kjaftæði og ég vissi það en hvað veit ég? Ég kaus að trúa þeim.

Það er þetta sem er neikvætt við að vera kona. Það tekur engin mark á manni þegar kemur að bílum. Þó maður hafi rétt fyrir sér. Og þetta er það sem er neikvætt við að vera ég. Ég leyfi mér að trúa mönnum sem eiga að vita hluti betur en ég.

Sennilega var handbremsan ekki losuð nógu vel upp þegar þeir tóku bremsurnar í gegn, allt draslið ofhitnaði, klossinn datt af á endanum á einum stað og það verður vel sloppið ef ég er réttu megin við hundrað þúsund kallinn þegar búið er að laga þetta.

Ég fékk ekki einu sinni drátt. Maðurinn lyfti bílnum bara uppá pallinn.

Glatað.


| anna | 20:26 |
comments

Verkstæðið getur ekki rukkað fullt (ef nokkuð) fyrir seinni viðgerðina.

Ef allir slithlutir hafa verið endurnýjaðir í janúar, þ.e. klossar, diskar, etc., þá á svona lagað ekki að geta gerst sé þetta rétt gert.
1. Það er ekki þitt vandamál. Verkstæðið er að selja sérfræðikunnáttu.

2. Það er ekki þitt að bera áhættuna á því að svona lagað haldi í tvo mánuði (og eitt til tvö þúsund kílómetra ef um meðalakstur er að ræða).

Fyrir hvað ætlar verkstæðið að rukka?

Nr. 1 | posted by: Árni | 28.03.2009 | 7:46:31 | [+] |

Ég veit það ekki Árni. Af hverju sagði maðurinn að dælan væri farin?

Auðvitað væri það rétta í stöðunni að borga mér fyrir tímann sem fór í að sitja og bíða eftir hjálp og bílaleigubíl svo ég þurfi ekki að vera bíllaus yfir helgi.

Ég hata að vera bíllaus.

Orðið "hata" í þessu samhengi er ekki understatement.

Nr. 2 | posted by: anna | 28.03.2009 | 11:13:06 | [+] |

Það að dælan hafi farið skiptir í sjálfu sér ekki mestu máli heldur af hverju.

Er punkturinn ekki sá að það þetta er hlutur sem var skipt út nýlega?

Svona gerist ekki fyrir Bimmera nema eitthvað sé fúskað við viðgerðina.

Kannski að þetta sé týpísk skattaskýrsluhelgi?

Nr. 3 | posted by: Árni | 28.03.2009 | 12:33:30 | [+] |

Já mér finnst þetta segja sig sjálft. Takk Árni. Pabbi gerði mig frekar svartsýna í gær.

Ég mun ekki gera þessa skattskýrslu sjálf og það er löng saga á bakvið af hverju ég vil að endurskoðandi sjái um það, eins og í fyrra. Ekkert af því er leyndarmál en þetta er vegna sumarbústaðar sem ég keypti á pappírum fyrir mömmu og átti að vera búið að skrá yfir á hana í fyrra.

Ætla rétt að vona að þetta verði klárað í ár.

Það er ekki flókið fyrir mig að skila skattskýrslu sem ég.

Einhleyp, check. Börn á framfæri 2. Bíll 1. Laun x mikið. Undirrita.

Nr. 4 | posted by: anna | 28.03.2009 | 13:38:10 | [+] |

Má ekki gera ráð fyrir því að þú bloggir meira um verkstæðið (til þess að vega upp á móti vonbiðlunum?)? wink

Er þetta umboðið, eða einhver Billy Bob Thornton í U-Turn sem lappaði bremsurnar?

Nr. 5 | posted by: Árni | 29.03.2009 | 18:13:00 | [+] |

Ég mun blogga nákvæmlega um það sem gerist, auðvitað.

Þetta er certified BMW verkstæði og ég fæ nótu fyrir öllu sem ég læt gera. thumb up

Nr. 6 | posted by: anna | 29.03.2009 | 18:15:13 | [+] |

Mig grunaði það eiginlega.

Err....og þegar þú hringdir út af bremsunum, þá var það bara "....þú kíkir við við tækifæri, vina..."?

Er sjálfur í nótuviðskiptum, en hef gaman af því að grafa upp karaktera sem gera við bíla, gera það vel, en eru svona....eins og BBT í U-Turn.

Nr. 7 | posted by: Árni | 29.03.2009 | 18:20:35 | [+] |

Já þeir sögðu mér að kíkja þegar ég hefði tíma þegar ég hringdi og spurði útí bremsuvælið.

Þegar ég hringdi og var stuck á Miklubrautinni gáfu þeir mér hinsvegar upp símanúmer hjá manni sem ferjaði bílinn til þeirra, þeir fá plús fyrir það.

Ég vil eiga nótuviðskipti. BBT í U-Turn er náttúrlega bara perla.

Nr. 8 | posted by: anna | 29.03.2009 | 18:33:21 | [+] |

Ég kynntist svona BBT karakter fyrir 6 árum. Braut fjöður í fáknum, mætti á staðinn. Hann kom út, heftiplástur á gleraugunum. Oliublettir á derhúfunni.

Ég stundi "I carried a watermelon" (reyndar á öðru tungumáli en ensku).

Besti bifvélavirki sem ég hef fyrir hitt.


Nr. 9 | posted by: Árni | 29.03.2009 | 19:02:09 | [+] |

Hljómar eins og alvöru bifvélavirki.

Menn sem eru hræddir við að fá olíu á hendurnar eiga ekki að vinna við bíla.

Nr. 10 | posted by: anna | 29.03.2009 | 22:51:12 | [+] |

Þetta lítur ekki vel út. Nú segja þeir að ég hefði átt að hringja þegar bíllinn var fastur í bremsu.

Hann var ekki fastur í bremsu, auk þess sem bíllinn á að láta vita ef eitthvað er að bremsunum og ég hrindi útaf bremsuvælinu.

Nr. 11 | posted by: anna | 30.03.2009 | 17:56:11 | [+] |

" I carried a watermelon" ??? Setning úr Dirty Dancing?

Leitt með allt bílavesenið!

Nr. 12 | posted by: Agnes | 30.03.2009 | 23:13:06 | [+] |

1. Gert var við bíllinn í janúar. Hafi allt verið í lagi með þá viðgerð og varahluti, þá hefði þetta ekki gerst.


2. Notandi hringdir, fær leiðbeiningar.

3. Verkstæðið er sérfræðingurinn í málinu. Certified í þokkabót.

4. Mjög strangar reglur gilda um bremsur bifreiða, bæði við hönnun, viðgerðir og eftirlit. Það er harla ólíklegt að hægt sé að ýta ábyrgð eða hugmynd um vanrækslu yfir á notanda. Þetta á bara að vera í lagi.

Þetta er ekki spurning um orsakasamhengi heldur hártogun. Það er ekki hægt að vega staðreyndir upp á móti "þú hefðir átt að...". Vilja þeir nokkuð taka djásnið upp í viðgerðina? wink

Agnes, já.

Nr. 13 | posted by: Árni | 31.03.2009 | 17:00:30 | [+] |

Ég hefði einmitt haldið að þetta væri nákvæmlega svona.

Frústration levelið hjá mér er að nálgast max.

Nr. 14 | posted by: anna | 31.03.2009 | 17:35:27 | [+] |

Spurt þá fyrir hvað 'certified' stendur fyrir?

Nr. 15 | posted by: Árni | 31.03.2009 | 17:41:41 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web