www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ætli þetta sé árstíðabundið?
Miðvikudagur, 18. mars 2009

annakisihissa.jpgÉg geri mér ekki grein fyrir því.

Ég er öll ómöguleg þessa dagana, eirðarlaus. Vil láta klippa mig. Hætti við. Vil taka geymsluna í gegn og henda drasli.

Mig langar að mála baðherbergið. Mig langar að mála íbúðina. Langar að festa upp hillu sem ég keypti fyrir löngu síðan og er búin að geyma inní skáp.

Í kvöld kláraði ég að skrifa frásögn sem ég er búin að vera á leiðinni að klára í heil þrjú ár! - og mig langar að gera fullt af hlutum sem ég er búin að svona.. vita af.. en ekki komið mér að því að klára. Meina.. ég tók til á desktoppinu í vinnutölvunni í síðustu viku og flokkaði allt samviskusamlega, sem er eiginlega súrrealískt og mjög ólíkt mér. Síðast þegar ég gerði svona lagað var þegar ég hætti að vinna hjá Glitni og VARÐ að skila þessu í möppum með strúktúr sem meikaði sense fyrir einhverjum öðrum en mér.

Ég get ekki verið að fullorðnast því það gerðist fyrir ári síðan - en - ef ég er ekki að fullorðnast, hvað er þetta þá?


| anna | 22:07 |
comments

Mid-life crisis ?

Sólgos ?

Nr. 1 | posted by: Hugz | 19.03.2009 | 10:09:25 | [+] |

Ég er alltaf svona, ég vona að ég hafi ekki smitað þig?

Nr. 2 | posted by: Kristín | 19.03.2009 | 10:40:24 | [+] |

Þetta er árstíminn, það fylgir manni ofvirkni þegar daginn lengir.

Ég hef verið að drífa í ýmsum hlutum sem hafa verið á dagskrá lengi. Til dæmis að lesa leiðbeiningarnar með eldavélinni. Það hefur staðið til í 12 ár. Ég dreif í því í gær og uppgötvaði að ein hellan er svona tvöföld suðuhella, bæði fyrir extra litla potta og svo extra stóra og voða lítið mál að svissa á milli. Önnur er svona hraðsuðuhella sem maður stillir bara á lágmarkssviðhaldssuðuhita, en hún sér sjálf um að setja á fullt blúss í byrjun og lækka sig þegar suðan byrjar.

Þetta er alveg nauðsynlegur árstími.

Nr. 3 | posted by: AlanHudson | 19.03.2009 | 11:25:50 | [+] |

Hang in there, þetta gengur yfir.

Nr. 4 | posted by: eirikur | 19.03.2009 | 17:47:32 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web