www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ár
Þriðjudagur, 03. mars 2009

Stephen says: what are you doing this weekend?
Anna says: why?
Anna says: i'm going out with my friends on saturday
Stephen says: what were you doing this weekend last year?
Anna says: i had a friend over from ireland!
Stephen says: yay!
Stephen says: that was one of the best weekends ever
Stephen says: at least for me smile
Anna says: it really was a good weekend
Stephen says: wasn't it? smile
Anna says: yeah it was smile

Stephen says: i've been thinking about it a lot
Anna says: i had so much fun
Anna says: one of the highlights of last year
Stephen says: that trip was actually the highlight of my year
Anna says: what was your favorite part?
Stephen says: lying in bed
Stephen says: snow coming in through the window
Stephen says: feeling of your soft skin
Stephen says: i don't think of it in a out and out erotic way
Stephen says: it's just a nice, comforting and beautiful thing
Anna says: i understand what you mean
Anna says: exactly

Fyndið að þetta hafi verið hápunkturinn hjá honum. Þetta var hápunkturinn hjá mér líka. Make or break moment. Við vissum það bæði en tókum ekki sénsinn.

Sennilega vegna þess að hvorugt okkar trúir alveg að hitt sé eins og það virðist vera. Það er of gott til að vera satt. Og þá getur það ekki verið..

Auk þess var ég búin að segja honum að ég vildi ekki útlenskan kærasta.
Það styttist í að ég endurskoði þá reglu.


| anna | 0:17 |
comments

Það er fínt að eiga útlenskan kærasta. Það hefur sína kosti og galla. Til dæmis geturðu bloggað um hann að vild án þess að hann geti lesið það, og svo er hægt að nota þjóðernið sem ágætis afsökun fyrir alls konar rugli sem maður gerir, æ, þú skilur mig ekki, ég er íslensk... Og líka gera þá að heilli þjóð, mjög gaman og beitt að skella fram oh, þið þarna Frakkar (eða Írar, eða Þjóverjar...).
Fullt af góðum kostum. En svo getur stundum verið þreytandi að þurfa að dragnast með mállausan mann í matarboð og sjá alla sitja hikstandi á enskunni að deyja úr löngun að fara yfir í íslenskuna. Og vont þegar einmitt allir bara rjúka í íslenskuna og enginn nennir að tala við hann. Og vont þegar hann getur ekki skilið að einmitt vegna þess að maður er íslenskur verður maður að hafa eitthvað svona og hinsegin... En ef ástin er í spilinu, reddast það allt saman. Ekki málið! Ég sé alla vega ekki eftir neinu. Nema sumu, he he.

Nr. 1 | posted by: Kristín | 3.03.2009 | 14:07:50 | [+] |

Þegar ég braut þetta mál niður í sínar smæstu einingar kom í ljós að þetta snýst ekki um útlending eða ekki útlending.

Mér finnst bara svo ógeðlega leiðinlegt að flytja.

Neinei. En ég hef einmitt upplifað erlendan mann og íslenska konu í partíi. Það virkar ekki nema þessi útlenski sé þess skemmtilegri og allir altalandi á ensku - og helst inní því helsta sem er að gerast í hans heimalandi þá stundina. Æ svo bara allt þetta.. menningarmunur og svoleiðis.

Ég er ekki sannfærð.

Hvort flokkast þetta undir fordóma eða leti?

Nr. 2 | posted by: anna | 3.03.2009 | 18:22:17 | [+] |

Einhvern veginn held ég að þú sért ekki fordómafull, amk ekki meira en eðlilegt er að vera. En svo finnst mér þú heldur ekki vera sérstaklega löt. Hmmm.
Maðurinn minn er frekar rólegur og líður ekki vel í partíi þar sem hann þekkir fáa. Hann er hins vegar mjög vel að sér í pólitík og nær oft athygli manna út á það og svo er hann líka bara afar sáttur við að skrópa og leyfa mér að fara einni í partý á Íslandi, jeij.

Nr. 3 | posted by: Kristín | 3.03.2009 | 18:50:08 | [+] |

Jújú ég er hauglöt á sumum sviðum.

Annars var ég að gera alveg groundbreaking uppgötvun um sjálfa mig í dag - sem gæti haft áhrif á málið.

Nr. 4 | posted by: anna | 3.03.2009 | 19:04:46 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web