Fimmtudagur, 05. mars 2009
..er að bíða eftir að sléttujárnið hitni því á miðnætti lýkur lúðaviku hjá mér.
Á mánudaginn fékk ég spurningu sem ég átti erfitt með að svara, samt var hún frekar einföld: Anna, hvað gerirðu bara fyrir þig?
Ég þarf að gera fleiri hluti fyrir mig, líka hluti sem hafa engan sérstakan tilgang annan en bara gleðja mig eða láta mér líða vel.
Í vikunni fór ég í nudd og komst að því að ég er með vöðvabólgu í nánast öllum líkamanum. Konan fann stress í rassinum á mér af öllum stöðum og eyddi töluverðum tíma í að losa upp vöðva í andlitinu og hálsinum. Hélt að ég myndi drepast þegar hún var að nudda rassinn og einn punkt á bakinu. Ég hef ákveðið að fara til hennar vikulega í smá tíma, samhliða því ætla ég að gera fleiri hluti, bara fyrir mig.
Í kvöld er ég t.d. búin að deeekra við mig og mér líður vel. Það hefur reyndar tilgang, ég er að fara út annað kvöld, á laugardagskvöldið og á sunnudagskvöldið svo ég þurfti hvort sem er að taka smá make-over en ég gerði meira en ég þurfti að gera - og það var bara fyrir mig.