www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Árvisst áfall
Föstudagur, 13. mars 2009

rs.pngSkattskýrslan er fyrir mér eins og árlegur listrænn gjörningur. Launatölur eru réttar, skuldatölur eru ballpark. Enda fæ ég ekki vaxtabætur af neinum skuldum svo það skiptir í raun engu hvað ég set þarna inn á meðan ég held mig innan marka þess raunverulega. Ef skatturinn tekur mig til rannsóknar mun ég segja að ég sé listamaður og þetta sé pólitísk mótmælaaðgerð sem á að vekja athygli á því að lánastofnanir geta vel sent inn þessar upplýsingar til skattsins fyrir mig.

Ef það virkar ekki mun ég halda því fram að starfsmenn skattstofu ofsæki mig, fylgjast með mér í gegnum ljósaperurnar heima hjá mér og hleri baðkarið mitt. Þetta veldur því að ég er með ofþanda þarma þar sem ég prumpa helst í baði og síðan þeir fóru að hlera þar inni hef ég ekki geta prumpað því ég er svo vel upp alin. Ég sé fram á að stuttu síðar færi ég á örorku vegna gruns um geðveiki.

Þá hefði ég tíma til að nema lögfræði og fara loks í mál við ríkið og krefjast þess að fá greitt fyrir alla þá vinnu sem hefur farið í að opna bréf og safna tölum og skrá þær niður, flokka og koma allskonar illskiljanlegum pappír fyrir í möppum. Ég myndi sennilega fara í mál við sjálfa mig líka fyrir að ganga árvisst í störf endurskoðanda án þess að hafa til þess nein réttindi né próf.

Að lokum myndi ég fara fram á bætur vegna þess ómanneskjulega tilfinningalega álags sem ég verð fyrir þegar ég gleymi að sækja um frest og fæ taugaáfall. Sem gerist á hverju ári. Upphæðin sem ég mun krefjast í bætur verður mæld í kúlum.

Ég hef aldrei sótt svona snemma um frest áður, venjulega sæki ég um frest eftir að fresturinn rann út og síðustu tvö ár hef ég skilað löngu eftir að fresturinn rann út en hef talið mér trú um að ég hafi haldið að fresturinn væri ekki liðinn svo í raunveruleikanum hafi ég skilað á réttum tíma og í góðri trú. Þessi iðja mín kemur alveg í staðinn fyrir áhættuíþróttir hjá mér - en fullnægjir samt þörf minni fyrir að lifa á brúninni.

Annars var starfsmaður hér áðan frá skattstofu. Hann var flugubúningi. Ég var búin að segja honum margoft að ef hann færi ekki ÚT þá yrði hann drepinn - en hann hlustaði ekki.

Honum hefur nú verið hent ofanaf svölunum.

Ég hringdi í 112 og lét vita af þessu. Maðurinn sem svaraði neitaði að senda mér lögreglumann og ég sagði að hann væri misskunnarlaust illmenni - og eitthvað fleira sem ég get ekki verið að hafa eftir mér. En svo bað ég hann afsökunnar, sagðist hafa verið að undirbúa mig undir skattskýrsluna og ekki meint neitt af því sem ég sagði. Við grétum saman og hann sagðist vera búinn að raða öllu á borðinu eftir jing/jang/zen reglu og hann fyndi að allar stofnfrumurnar hans væru miklu glaðari. Hann er að hugsa um að ættleiða Margeir.

Fyrir utan allt þetta var þetta, óvænt, mjög skemmtilegt kvöld.


| anna | 0:29 |
comments

takk Anna, þetta minnti mig á að sækja um frestsmile

Nr. 1 | posted by: baun | 14.03.2009 | 11:09:12 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web