www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Framtíðin
Laugardagur, 14. mars 2009

framtidin.pngFór á fund hjá Hugmyndaráðuneytinu í dag þar sem verið var að ræða framtíðarsýn þjóðarinnar og gildi.

Þar kom upp spurningin: hafa fjölskyldurnar í landinu einhverja framtíðarsýn fyrir sig?

Ég veit ekki hvort fjölskyldur setjast niður og búa sér til framtíðarsýn, ég gerði það reyndar með krökkunum þegar ég skildi. Útskýrði fyrir þeim hvernig ég sá fyrir mér heimili sem mér fyndist gott að koma heim til og spurði hvernig heimilið sem þeim fyndist gott að koma heim væri. Kannski var þetta ekki framtíðarsýn, ég veit það ekki.

Við sömdum saman hvernig umhverfi við vildum búa í og settum nokkrar grunn reglur sem eru ennþá í gildi. Það er alveg kominn tími á að gera þetta aftur.

Í millitíðinni hef ég hinsvegar náð að gera margt gott, í litlum skrefum. Næstu helgi þegar ég er með krakkana ætla ég að hafa stefnumótunarfund, ákveða hvernig framtíðarsýn heimilisins er þannig að þetta sé heimili þar sem öllum líður vel og svo ætla ég að fara þangað með krökkunum í litlum skrefum.

En ég velti samt fyrir mér hvaða gildi skipta mig máli í lífinu og hvaða gildum ég lifi eftir sjálf. Hvaða gildi skipta þig máli sem einstakling og hvaða gildi finnst þér skipta máli fyrir þjóðina?

Hvaða gildi finnst þér hafa verið áberandi undanfarið hjá þjóðinni?

Hvaða framtíðarsýn hefur þú ef heimurinn er útópía?
Hvaða framtíðarsýn hefur þú í raunveruleikanum?
Af hverju er þetta ekki sama framtíðarsýnin?


| anna | 20:27 |
comments

Er ekki einhvers konar fróun í því að eiga draumsýn og vita að hún rætist ekki? Því hversdagslífið er endalaust streð, tóm þvottakarfa er hverful MJÖG hverful ánægjutilfinning, hrein gólf líka og bara allt hitt. Við myndum líklega deyja úr leiðindum í draumaheimi án þvottakarfa og gólfa til að sópa. En það er gott að orna sér við slíka sýn. Æ, ég er svo þreytt, líklega er ég farin að bulla. Ég sver að ég er ekki að drekka.

Nr. 1 | posted by: Kristín | 14.03.2009 | 22:06:13 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web