Mánudagur, 09. mars 2009
Ég renndi í gegnum viðtalið við Evu Joly áðan og ákvað að taka saman það sem mér finnst standa uppúr. Ég er örugglega að gleyma einhverju, það má alveg bæta við í kommentakerfinu.
Við þurfum fagmenn sem vita að hverju þeir eru að leita.
- 20-30 manns.
- Það skiptir miklu máli að fá óháða, erlenda aðila sem eru fagmenn í að rannsaka efnahagsafbrot.
Við þurfum ekki að bíða eftir að neitt gerist til að hefja rannsókn.
- Það er hægt að byrja á að fara yfir ársskýrslur bankanna og rekja sig þaðan.
Er verið að gera þetta?
- Fagmenn sjá strax hvar er verið að reyna að fela misgjörðir í ársskýrslum.
- Ef eignir fólks stemma ekki við innkomu er kominn rökstuddur grunur fyrir peningaþvætti.
- Hvað er að frétta af rannsókn á kreditkortanotkun sem var í gangi um daginn?
- Er ekki frekar auðvelt að sjá þetta ef miðað er við uppgefnar tekjur hjá skattinum?
- Frysta eignir fólks sem er grunað um eitthvað misjafnt.
- Hvað er FME að gera? Það er rökstuddur grunur um margt misjafnt, engar eignir hafa verið frystar. Hver græðir á því?
- Gera húsleit hjá fólki til að finna pappíra sem vísa á falda bankareikninga í skattaskjólum.
- Þetta þýðir að það þarf að skoða heimili, bankahólf, fyrirtæki, farartæki, sumarhús, o.s.frv.
- Við getum fengið upplýsingar í öðrum löndum, jafnvel skattaskjólum, en aðeins ef við erum búin að finna sannanir hér fyrst.
Af hverju er þetta nauðsynlegt?
- Við þurfum að skapa traust í samfélaginu ef við eigum að geta búið saman á þessu landi.
- Traust verður ekki skapað nema fólk viti hvað gerðist og hver ber ábyrgð á því.
- Traust verður ekki skapað nema fólk sé dæmt fyrir misgjörðir sínar og taki út sína refsingu.
- Það er til fólk sem er heiðarlegt og á mikið af peningum, það fólk á ekki skilið að vera dæmt af samfélaginu fyrir það eitt að hafa eignast peninga á heiðarlegan hátt, eina leiðin til að gera það ekki er að ná hinum óheiðarlegu.
- Við viljum ekki senda yngri kynslóðum þau skilaboð að það sé í lagi að svíkja og stela, bara ef það er á nógu stórum skala.
Staðan núna.
- Það er ekki verið að rannsaka þetta alvarlega í dag þar sem það eru engir fagmenn að vinna í málinu. Það þarf fagmenn til að vinna svona mál og það þurfti útgefanda og fréttamann til að fá fagmann til landsins. Í viðtal. Er þetta eðlilegt?
- Hver ber ábyrgð á því að rannsaka svona mál?
- Hvaða embætti?
- Hver er að sinna því núna?
- Hver var að sinna því þegar bankarnir féllu?
- Hver ákvað að láta minna fé renna til efnahagsafbrotadeildar og meira fé renna til óeirðarlögreglu? Af hverju?
Við hverju megum við búast?
- Ef alvöru rannsókn verður sett á laggirnar þá má búast við því að um leið og rannsóknin fer of nálægt fólki sem hefur mikið vald (eigendum fjölmiðla/stjórnmálamanna/dómara/hverskonar áberandi og valdamikils einstaklings í þjóðfélaginu) þá mun verða reynt að koma í veg fyrir rannsóknina.
Þegar þetta gerist þarf almenningur að hafa augunn opin og þrýsta á að henni sé haldið áfram.
- Það er viðbúið að reynt verði að heilaþvo almenning til að auðvelda þeim seku að hætta rannsókninni.
- Okkur verður sagt að þetta sé of dýr rannsókn til að halda henni áfram.
- Svar: við höfum ekki efni á að gera þetta ekki. Of margir hafa misst of mikið og heildarreikningurinn sem þjóðin situr uppi með er of hár. Það skiptir engu máli hvað þetta fólk reynir að tæta mikið af pappírum, það eru til backup af öllum upplýsingum úr öllum bönkunum sem hægt er að styðjast við, öll bankaviðskipti skilja eftir sig slóð, líka í skattaskjólum og við getum ennþá fengið hluta af þýfinu til baka. Höfum í huga að þýfið eru penignar sem almenningur átti og var búin að safna. Þetta voru peningar sem áttu að fara í að reka skóla, heilsugæslu og byggja vegi. Þetta voru peningar sem áttu að tryggja hér velferðarþjóðfélag.
- Okkur verður sagt að rannsóknin sé brot á mannréttindum.
- Svar: það eru mannréttindi hvers einasta Íslendings að fá að vita hvað gerðist og að fólk sé dæmt fyrir glæpi sem það hefur framið.
- Okkur verður sagt að við séum ekki jafn illa stödd og menn héldu og að rannsókn sé óþarfi.
- Svar: það skiptir ekki máli þó við séum í einhverjum skárri skítamálum. Það þarf samt að rannsaka af hverju.
Þetta mun taka langan tíma.
- Þetta verður ekki afgreitt haustið 2009, það er algjörlega út í hött að láta sig dreyma um það.
- Það eru of margir involved.
- Þetta eru ekki bara 30 manns, því miður.
- Þeir sem eru involved munu reyna allt til að skemma fyrir og tefja rannsóknina.
- Og þeir hafa sennilega fjármuni til þess.
- Það sem rannsóknaraðilar efnahagsafbrota standa frammi fyrir er að dómarar skilja ekki fléttuna og hvernig fjármunum var komið undan, þess vegna er erfitt að fá sakfellingar. Almenningur á ekki síður erfitt með að skilja þetta og þess vegna eiga fjölmiðlar í eigu afbrotamannanna auðvelt með að spila með almenning og skapa samúð með afbrotamönnunum. Við megum ekki láta spila með okkur. Okkur ber skylda til að lesa fréttir með gagnrýnum huga, þó eitthvað hafi verið prentað á pappír er það ekki ávísun á að það sé rétt eða satt, það höfum við séð undanfarið.
Við fáum ekki alla peningana til baka.
- Þessir aðilar hafa nú þegar keypt eignir, sennilega of háu verði, og tapað peningum. Þar fyrir utan lifa þessir einstaklingar ævintýralega hátt og það er ekki ódýrt. Við getum samt fengið eitthvað til baka ef rétt er haldið á spilunum og þó við fáum ekki alla peningana eigum við góða möguleika á að fá sannleikann í málinu fram, sem ég myndi segja að sé verðmætastur.
- Fólk sem vinnur við að rannsaka þetta mál mun sennilega verða fyrir hótunum.
- Það má búast við því að rannsóknaraðilar fari að fá hótanir, jafnvel morðhótanir þegar þeir komast of nálægt valdamiklum og efnuðum einstaklingum.
- Það eru ekki bara Íslendingar sem tóku þátt í þessari svikamyllu. Það eru erlendir aðilar sem hafa hag af því að ekki komist upp um hvað gerðist hér.
Þetta verður ekki ódýrt.
Þess vegna skiptir máli að við lærum af þessu og notum reynsluna til að byggja gagnsærra og betra samfélag. Óheiðarleiki er ekki dyggð. Ekki græðgi heldur.
Ef þú efast einhvertíma um af hverju við ættum að rannsaka þetta skaltu spyrja þig: "hver græðir á að rannsaka þetta ekki", svarið við þessari spurningu er alltaf það sama: hinir seku.