www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
100%... konur
Sunnudagur, 08. mars 2009

Ég var að koma heim úr 100% konupartíi, tók einn rúnt á netinu og hvað sé ég! Þegar fólkið kýs konur í öll sæti á lista.. þá eru karlarnir færðir upp - vegna reglu sem var sennilega sett á til að tryggja konum pláss á listum.

Hver þarf áfengi til að skemmta sér þegar maður getur lesið svona fréttir?
Ekki ég. Mér finnst þetta stórkostlega fyndið.

Veit ekki hvort ég hef skrifað um það hér áður en ég er á móti fléttulistum, kynjakvóta, jákvæðri mismunun og öllum þessum pakka - ef skynsemin væri notuð hefðu allar konurnar sem voru réttkjörnar á listann fengið að halda sætinu sínu. Síðast þegar ég vissi var ætlast til þess að stjórnmálamenn noti heilann, ekki líffærið sem þeir pissa með. En hvað veit maður.

Það er hinsvegar alveg klárt.. að þetta er ekki lýðræði.

Ætla að fara að hundskast uppí rúm en af því ég verð svo sorgmædd af því að horfa á þessa mynd sem ég setti inn í gær ætla ég að setja inn aðra núna sem ég tók í dag.

Hún heitir: "Enginn með mér í baði".

ibadi.png

(Hvað get ég haldið lengi áfram áður en þetta fer að kallast einelti? Enginn má segja mér það.)


| anna | 4:04 |
comments

Ef eitthvað réttlæti væri í þessu landi þá hefði þetta 100% konupartí verið bannað nema með því skilyrði að nokkrum konum hefði verið skipt út fyrir karlmenn sem hefðu verið færðir inni í partíið í valdi jákvæðrar mismununar og teitinu þannig breytt í fléttuveislu.

En í alvöru. Niðurstaðan í þessu prófkjöri Framsóknar er niðurlægjandi fyrir kjósendur sem héldu að þeirra atkvæði skipti máli, niðurlægjandi fyrir konurnar sem héldu að þær færu á listann sökum eigin verðleika og niðurlægjandi fyrir karlana sem voru færðir á listann vegna þess að þeir eru með...Nei, ég get bara ekki sagt það. Þetta er svo magnað.

Heimskulegar hugmyndir leiða alltaf til heimskulegrar niðurstöðu eins og þú bendir réttilega á.

Nr. 1 | posted by: egill | 8.03.2009 | 7:41:34 | [+] |

Nei Egill.

100% jafnrétti í partíinu hefði verið: 50% menn og 50% konur (Erfitt, þar sem við vorum fimm - en það má svosem líka bara BANNA oddatölupartý og koma þannig alfarið í veg fyrir svona rugl.)

Jákvæð mismunun konum í hag hefði verið: karlmennirnir berir að ofan.

En ef eitthvað réttlæti væri í þessum heimi hefði ég verið í 90% karlapartíi og hitt tilvonandi eiginmann minn.

Ég ritskoða stundum sjálfa mig, í gær ritskoðaði ég texta sem er lygilega líkur því sem þú skrifar, nema ég skrifaði orðið sem þú sleppir. Endaði á að spyrja hvort hægt sé að óska þessum mönnum til hamingju - og þá með hvað?

Þetta er nefnilega ekkert nema niðurlægjandi.

Og ekki gera þessar reglur mikið fyrir réttindi kvenna, það er ljóst.

Nr. 2 | posted by: anna | 8.03.2009 | 10:27:12 | [+] |

Í prófkjörum hingað til hef ég valið einstaklinga eftir þeim hæfileikum sem ég tel þá hafa. Ég hef hingað til ekki talið kyn til hæfileika.

Mér þætti það skítt ef fólk sem náði einhverju sæti, meðal annars fyrir tilstuðlan míns atkvæðis, væri fært niður í þágu "jafnréttis".

Ef gæta á kynjajafnvægis þyrfti að vera slétt tala þingmanna. Síðan væri kosið eftir kyni þannig að hver listi byði fram tvo lista, kvenna og karla.

Eða bara sleppa kosningunum og láta Gallup um að finna þingmenn eftir úrtaki!


Nr. 3 | posted by: enginn | 8.03.2009 | 10:54:54 | [+] |

Kyn telst ekki til hæfileika og lýðræði getur aldrei snúist um jafnrétti kynjanna.

Það snýst um að fá tækifæri til að kjósa það fólk sem þú treystir til að koma málum á framfæri.

Ég lít á raunverulega niðurstöðu í þessu prófkjöri sem algjöran sigur fyrir þessar konur.

Útkoman eftir kynjaútfærsluna er kjaftshögg bæði fyrir þær og allt fólkið sem kaus þær.

Nr. 4 | posted by: anna | 8.03.2009 | 11:07:59 | [+] |

Ég vona allavega að VG prófkjörsúrslitin haldi, þau voru ótrúlega lík atkvæðunum mínum...

Nr. 5 | posted by: hildigunnur | 9.03.2009 | 0:09:19 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web