www.anna.is
ravings of a lunatic í mars 2009
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Rock me, rock me, rock me sexy Jesus
Sunnudagur, 01. mars 2009

Ég fór á vídeóleigu í kvöld í fyrsta skipti í svo langan tíma að ég var actually dottin úr tölvukerfinu. Tók á leigu myndina "Hamlet 2".

Alveg vissi ég það frá því mómenti sem ég sá sýnishornið úr myndinni í bíó fyrir löngu að þetta væri mynd sem ég yrði að sjá. Ég búin að hlæja svo mikið að mér líður æðislega.

Myndin byrjar vel, dettur aðeins niður í miðjunni en nær dampi aftur í lokin og núna er ég komin með þetta lag á heilann..

"Rock me sexy Jesus"...

lol


| anna | 2:30 | permalink | comments (0) |
Feel-good
Mánudagur, 02. mars 2009

Vá hvað mér leið vel að horfa á þetta myndband, samt hló ég ekkert.

Ætli maður geti framkallað allar tilfinningar með því að finna rétt myndband á youtube?


| anna | 22:48 | permalink | comments (0) |
100% Class A
Mánudagur, 02. mars 2009

Hann: þú lætur mig vita ef þú skiptir um skoðun.
Anna: já, ég held samt að ég skipti ekki um skoðun.
Hann: Sjáumst allavega á sunnudaginn. Kannski á þér eftir að finnast ég vera class A fáviti.
Anna: ha?
Hann: já, ég las það á síðunni, þú skrifaðir um að sumir karlmenn væru class A fávitar, kannski finnst þér ég vera einn af þeim.
Anna: hvenær skrifaði ég það?

Ef ég myndi eftir öllu sem ég skrifa um, það myndi auðvelda líf mitt til muna.

Ég fletti "class A fáviti" upp á síðunni og fékk tvær niðurstöður, þá sem hann var sennilega að tala um og svo þessa.


Og skv þessari síðari eru allar líkur á því að ég kolfalli fyrir manninum - einmitt ef hann er class A fáviti.

Það styttist í að ég fari að sækja um örorku...

Neinei, mér fer fram. Samt ekki.

Hvernig í fjandanum stendur á því að þegar ég vel mér menn til að vinna með eru það 100% menn, en þegar ég vel menn til að vera með eru þeir meira...

I don't get it. Kannski er málið að finna mann til að vinna með, hætta að vinna með honum og giftast honum. Ætli það sé raunhæft? Myndi einhver karlmaður vilja giftast mér þegar hann hefur unnið með mér?

Þarf að hugsa þetta aðeins. Það hlýtur að vera til lausn á þessu máli.

Ég held samt að ég viti svarið nú þegar. Ég veit að 100% menn vilji vinna með mér en ég trúi ekki að 100% menn vilji vera með mér. Þetta er hugsanavilla og ég veit það, en ég veit hinsvegar ekki hvernig ég á að leiðrétta villuna svo ég held áfram að velja 100% menn til að vinna með en vel enga menn til að vera með. Minnir mig á blogg sem ég á óskrifað um "what's in it for me". Þarf að skrifa um það einhvertíma bráðum.

Sennilega þarf 100% mann til að koma mér í skilning um að 100% maður vilji vera með mér. 100% mann með 100% þolinmæði.

Having said that.. þá eru allar líkur á því að ég giftist gamalli auglýsingaherferð frá Íslandsbanka...

Jesús..


| anna | 23:26 | permalink | comments (0) |
Ár
Þriðjudagur, 03. mars 2009

Stephen says: what are you doing this weekend?
Anna says: why?
Anna says: i'm going out with my friends on saturday
Stephen says: what were you doing this weekend last year?
Anna says: i had a friend over from ireland!
Stephen says: yay!
Stephen says: that was one of the best weekends ever
Stephen says: at least for me smile
Anna says: it really was a good weekend
Stephen says: wasn't it? smile
Anna says: yeah it was smile

Stephen says: i've been thinking about it a lot
Anna says: i had so much fun
Anna says: one of the highlights of last year
Stephen says: that trip was actually the highlight of my year
Anna says: what was your favorite part?
Stephen says: lying in bed
Stephen says: snow coming in through the window
Stephen says: feeling of your soft skin
Stephen says: i don't think of it in a out and out erotic way
Stephen says: it's just a nice, comforting and beautiful thing
Anna says: i understand what you mean
Anna says: exactly

Fyndið að þetta hafi verið hápunkturinn hjá honum. Þetta var hápunkturinn hjá mér líka. Make or break moment. Við vissum það bæði en tókum ekki sénsinn.

Sennilega vegna þess að hvorugt okkar trúir alveg að hitt sé eins og það virðist vera. Það er of gott til að vera satt. Og þá getur það ekki verið..

Auk þess var ég búin að segja honum að ég vildi ekki útlenskan kærasta.
Það styttist í að ég endurskoði þá reglu.


| anna | 0:17 | permalink | comments (4) |
Eureka!
Miðvikudagur, 04. mars 2009

Í dag varð mér loksins ljóst að þetta er ég, ekki karlmenn. Það er mér að kenna að karlmenn verða eins og þeir verða þegar þeir eru með mér eins og mig hefur reyndar grunað lengi vegna þess að það meikar ekkert sense að kenna þeim um þetta allt saman, ég veit að það eru ekki allir menn vonlausir og ég veit að ég hef verið með frekar lítið vonlausum mönnum, þó þeir hafi ekki virkað með mér.

- en það sem meira er.. ég áttaði mig á nákvæmlega hvað það er sem ég geri - sem aftur veldur því að 100% maður hættir að vera það þegar hann er með mér.

YES!

Ohhh hvað ég hef þráð lengi að komast að þessu.

Ég náði þessu fyrir fertugt. Mér finnst það nú bara nokkuð gott.

Nú þegar ég veit hvað ég er að gera rangt, þá er spurningin.. get ég hætt að gera þetta? Eina leiðin til að komast að því er að verða ástfangin og ég sé frammá að hafa tíma til þess eftir ca tvo mánuði.

Lítur út fyrir að þetta verði magnað ár.


| anna | 0:01 | permalink | comments (6) |
Awwwww
Miðvikudagur, 04. mars 2009

awwwwkitty.jpg

Ég veit ekkert af hverju, hef enga ástæðu til þess, en mér líður sennilega soldið eins og þessum ketti á myndinni núna.


| anna | 20:46 | permalink | comments (2) |
Lúðaviku að ljúka
Fimmtudagur, 05. mars 2009

..er að bíða eftir að sléttujárnið hitni því á miðnætti lýkur lúðaviku hjá mér.

Á mánudaginn fékk ég spurningu sem ég átti erfitt með að svara, samt var hún frekar einföld: Anna, hvað gerirðu bara fyrir þig?

Ég þarf að gera fleiri hluti fyrir mig, líka hluti sem hafa engan sérstakan tilgang annan en bara gleðja mig eða láta mér líða vel.

Í vikunni fór ég í nudd og komst að því að ég er með vöðvabólgu í nánast öllum líkamanum. Konan fann stress í rassinum á mér af öllum stöðum og eyddi töluverðum tíma í að losa upp vöðva í andlitinu og hálsinum. Hélt að ég myndi drepast þegar hún var að nudda rassinn og einn punkt á bakinu. Ég hef ákveðið að fara til hennar vikulega í smá tíma, samhliða því ætla ég að gera fleiri hluti, bara fyrir mig.

Í kvöld er ég t.d. búin að deeekra við mig og mér líður vel. Það hefur reyndar tilgang, ég er að fara út annað kvöld, á laugardagskvöldið og á sunnudagskvöldið svo ég þurfti hvort sem er að taka smá make-over en ég gerði meira en ég þurfti að gera - og það var bara fyrir mig.


| anna | 21:40 | permalink | comments (5) |
Hvað ætlar þú að gera við mig?
Laugardagur, 07. mars 2009

img-anna-1667.png

Anna says: ég tók mynd af mér um daginn
Anna says: upprunalega myndin er eiginlega alveg svört
Anna says: tók hana í myrkri
Anna says: þessa:
Anna says: þegar ég sá myndina seinna
Anna says: það er eitthvað við svipinn á mér
Anna says: hef aldrei náð mynd af þessu áður
xxx says: ja, þetta er alla vegna frekar svona
xxx says: auðsærður svipur
xxx says: ertu auðsæranleg ?
Anna says: á sumum sviðum, já
Anna says: á öðrum.. nei
xxx says: mótívið á myndinni er
xxx says: eins og þú sért að horfa á þann sem er að halda við vangann á þér
xxx says: og spyrja : hvað ætlar þú að gera við mig?
Anna says: en þetta er ég
Anna says: þetta er höndin á mér


| anna | 0:12 | permalink | comments (3) |
100%... konur
Sunnudagur, 08. mars 2009

Ég var að koma heim úr 100% konupartíi, tók einn rúnt á netinu og hvað sé ég! Þegar fólkið kýs konur í öll sæti á lista.. þá eru karlarnir færðir upp - vegna reglu sem var sennilega sett á til að tryggja konum pláss á listum.

Hver þarf áfengi til að skemmta sér þegar maður getur lesið svona fréttir?
Ekki ég. Mér finnst þetta stórkostlega fyndið.

Veit ekki hvort ég hef skrifað um það hér áður en ég er á móti fléttulistum, kynjakvóta, jákvæðri mismunun og öllum þessum pakka - ef skynsemin væri notuð hefðu allar konurnar sem voru réttkjörnar á listann fengið að halda sætinu sínu. Síðast þegar ég vissi var ætlast til þess að stjórnmálamenn noti heilann, ekki líffærið sem þeir pissa með. En hvað veit maður.

Það er hinsvegar alveg klárt.. að þetta er ekki lýðræði.

Ætla að fara að hundskast uppí rúm en af því ég verð svo sorgmædd af því að horfa á þessa mynd sem ég setti inn í gær ætla ég að setja inn aðra núna sem ég tók í dag.

Hún heitir: "Enginn með mér í baði".

ibadi.png

(Hvað get ég haldið lengi áfram áður en þetta fer að kallast einelti? Enginn má segja mér það.)


| anna | 4:04 | permalink | comments (5) |
One, but not the same
Sunnudagur, 08. mars 2009

We get to carry each other.


| anna | 12:51 | permalink | comments (2) |
Takk fyrir þetta Egill
Sunnudagur, 08. mars 2009

evajoly.jpg

Eva Joly hjá Agli í Silfrinu í dag.
Þetta er viðtal sem fólk ætti að horfa á, virkilega.


| anna | 15:14 | permalink | comments (3) |
Það sem við þurfum að muna
Mánudagur, 09. mars 2009

Ég renndi í gegnum viðtalið við Evu Joly áðan og ákvað að taka saman það sem mér finnst standa uppúr. Ég er örugglega að gleyma einhverju, það má alveg bæta við í kommentakerfinu.

Við þurfum fagmenn sem vita að hverju þeir eru að leita.

  • 20-30 manns.
  • Það skiptir miklu máli að fá óháða, erlenda aðila sem eru fagmenn í að rannsaka efnahagsafbrot.

Við þurfum ekki að bíða eftir að neitt gerist til að hefja rannsókn.

  • Það er hægt að byrja á að fara yfir ársskýrslur bankanna og rekja sig þaðan. Er verið að gera þetta?
    • Fagmenn sjá strax hvar er verið að reyna að fela misgjörðir í ársskýrslum.
    • Ef eignir fólks stemma ekki við innkomu er kominn rökstuddur grunur fyrir peningaþvætti.
      • Hvað er að frétta af rannsókn á kreditkortanotkun sem var í gangi um daginn?
      • Er ekki frekar auðvelt að sjá þetta ef miðað er við uppgefnar tekjur hjá skattinum?
  • Frysta eignir fólks sem er grunað um eitthvað misjafnt.
    • Hvað er FME að gera? Það er rökstuddur grunur um margt misjafnt, engar eignir hafa verið frystar. Hver græðir á því?
  • Gera húsleit hjá fólki til að finna pappíra sem vísa á falda bankareikninga í skattaskjólum.
    • Þetta þýðir að það þarf að skoða heimili, bankahólf, fyrirtæki, farartæki, sumarhús, o.s.frv.
  • Við getum fengið upplýsingar í öðrum löndum, jafnvel skattaskjólum, en aðeins ef við erum búin að finna sannanir hér fyrst.

Af hverju er þetta nauðsynlegt?

  • Við þurfum að skapa traust í samfélaginu ef við eigum að geta búið saman á þessu landi.
    • Traust verður ekki skapað nema fólk viti hvað gerðist og hver ber ábyrgð á því.
    • Traust verður ekki skapað nema fólk sé dæmt fyrir misgjörðir sínar og taki út sína refsingu.
    • Það er til fólk sem er heiðarlegt og á mikið af peningum, það fólk á ekki skilið að vera dæmt af samfélaginu fyrir það eitt að hafa eignast peninga á heiðarlegan hátt, eina leiðin til að gera það ekki er að ná hinum óheiðarlegu.
    • Við viljum ekki senda yngri kynslóðum þau skilaboð að það sé í lagi að svíkja og stela, bara ef það er á nógu stórum skala.

Staðan núna.

  • Það er ekki verið að rannsaka þetta alvarlega í dag þar sem það eru engir fagmenn að vinna í málinu. Það þarf fagmenn til að vinna svona mál og það þurfti útgefanda og fréttamann til að fá fagmann til landsins. Í viðtal. Er þetta eðlilegt?
    • Hver ber ábyrgð á því að rannsaka svona mál?
    • Hvaða embætti?
    • Hver er að sinna því núna?
    • Hver var að sinna því þegar bankarnir féllu?
    • Hver ákvað að láta minna fé renna til efnahagsafbrotadeildar og meira fé renna til óeirðarlögreglu? Af hverju?

Við hverju megum við búast?

  • Ef alvöru rannsókn verður sett á laggirnar þá má búast við því að um leið og rannsóknin fer of nálægt fólki sem hefur mikið vald (eigendum fjölmiðla/stjórnmálamanna/dómara/hverskonar áberandi og valdamikils einstaklings í þjóðfélaginu) þá mun verða reynt að koma í veg fyrir rannsóknina. Þegar þetta gerist þarf almenningur að hafa augunn opin og þrýsta á að henni sé haldið áfram.
    • Það er viðbúið að reynt verði að heilaþvo almenning til að auðvelda þeim seku að hætta rannsókninni.
      • Okkur verður sagt að þetta sé of dýr rannsókn til að halda henni áfram.
        • Svar: við höfum ekki efni á að gera þetta ekki. Of margir hafa misst of mikið og heildarreikningurinn sem þjóðin situr uppi með er of hár. Það skiptir engu máli hvað þetta fólk reynir að tæta mikið af pappírum, það eru til backup af öllum upplýsingum úr öllum bönkunum sem hægt er að styðjast við, öll bankaviðskipti skilja eftir sig slóð, líka í skattaskjólum og við getum ennþá fengið hluta af þýfinu til baka. Höfum í huga að þýfið eru penignar sem almenningur átti og var búin að safna. Þetta voru peningar sem áttu að fara í að reka skóla, heilsugæslu og byggja vegi. Þetta voru peningar sem áttu að tryggja hér velferðarþjóðfélag.
      • Okkur verður sagt að rannsóknin sé brot á mannréttindum.
        • Svar: það eru mannréttindi hvers einasta Íslendings að fá að vita hvað gerðist og að fólk sé dæmt fyrir glæpi sem það hefur framið.
      • Okkur verður sagt að við séum ekki jafn illa stödd og menn héldu og að rannsókn sé óþarfi.
        • Svar: það skiptir ekki máli þó við séum í einhverjum skárri skítamálum. Það þarf samt að rannsaka af hverju.

Þetta mun taka langan tíma.

  • Þetta verður ekki afgreitt haustið 2009, það er algjörlega út í hött að láta sig dreyma um það.
    • Það eru of margir involved.
      • Þetta eru ekki bara 30 manns, því miður.
    • Þeir sem eru involved munu reyna allt til að skemma fyrir og tefja rannsóknina.
      • Og þeir hafa sennilega fjármuni til þess.
    • Það sem rannsóknaraðilar efnahagsafbrota standa frammi fyrir er að dómarar skilja ekki fléttuna og hvernig fjármunum var komið undan, þess vegna er erfitt að fá sakfellingar. Almenningur á ekki síður erfitt með að skilja þetta og þess vegna eiga fjölmiðlar í eigu afbrotamannanna auðvelt með að spila með almenning og skapa samúð með afbrotamönnunum. Við megum ekki láta spila með okkur. Okkur ber skylda til að lesa fréttir með gagnrýnum huga, þó eitthvað hafi verið prentað á pappír er það ekki ávísun á að það sé rétt eða satt, það höfum við séð undanfarið.

Við fáum ekki alla peningana til baka.

  • Þessir aðilar hafa nú þegar keypt eignir, sennilega of háu verði, og tapað peningum. Þar fyrir utan lifa þessir einstaklingar ævintýralega hátt og það er ekki ódýrt. Við getum samt fengið eitthvað til baka ef rétt er haldið á spilunum og þó við fáum ekki alla peningana eigum við góða möguleika á að fá sannleikann í málinu fram, sem ég myndi segja að sé verðmætastur.
  • Fólk sem vinnur við að rannsaka þetta mál mun sennilega verða fyrir hótunum.
    • Það má búast við því að rannsóknaraðilar fari að fá hótanir, jafnvel morðhótanir þegar þeir komast of nálægt valdamiklum og efnuðum einstaklingum.
    • Það eru ekki bara Íslendingar sem tóku þátt í þessari svikamyllu. Það eru erlendir aðilar sem hafa hag af því að ekki komist upp um hvað gerðist hér.

Þetta verður ekki ódýrt.

Þess vegna skiptir máli að við lærum af þessu og notum reynsluna til að byggja gagnsærra og betra samfélag. Óheiðarleiki er ekki dyggð. Ekki græðgi heldur.

Ef þú efast einhvertíma um af hverju við ættum að rannsaka þetta skaltu spyrja þig: "hver græðir á að rannsaka þetta ekki", svarið við þessari spurningu er alltaf það sama: hinir seku.


| anna | 18:44 | permalink | comments (5) |
Have you come to raise the dead?
Mánudagur, 09. mars 2009

stephen says: i have to go to bed now
Anna says: night night
stephen says: góða nótt
Anna says: you are so sweet
stephen says: viltu dansa við mig?
Anna says: hahaha
Anna says: já
stephen says: hjálp!
Anna says: oh you are such a typical man..
stephen says: náið í lögregluna!
Anna says: lol
stephen says: smile
Anna says: smile
stephen says: night
Anna says: night

Mér finnst sætt þegar hann sendir mér setningar á íslensku og það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart. Mér finnst oft betra að tjá mig á ensku en á íslensku - nema þegar ég er að útskýra processing systems, ég er ekki alveg búin að mastera það ennþá.

Hann kom online áðan til að segja "this day last year i'd left you". Það kemur mér á óvart hvað hann virðist vera með hugann við mig þessa dagana. Veit að hann er búinn að vera að deita á fullu undanfarið.

Ef ég væri hrifin af honum ætti ég að fá sting í magann þegar hann er að segja mér þessa hluti, en ég vona bara að hann finni einhverja. Ég er sennilega svo helfrosin á þessum stað sem sendir stinginn í magann að það væri hægt að kveikja í mér án þess að ég tæki eftir því.

Í gær.

Hann: hvað hefurðu komist nálægt því að fara í sambúð á þessum fimm árum síðan þú skildir?
Anna: ... ég skil ekki spurninguna.

Hann fór að hlæja og lagði frá sér krítina, hallaði sér fram og miðaði. "Það tekur töluvert langan tíma að komast nálægt þér". Þetta var fast skot og kúlan hvarf í hliðarvasa.

"Það er óhætt að segja það", svaraði ég.

Hann tók ekki augun af borðinu, allan tímann mjög meðvitaður um að ég var þarna. "Þarf sennilega líka að lokka þig fram smátt og smátt. Þú gefur ekkert." Hann skaut aftur, fast og hitti ekki. Ég tók við kjuðanum, gekk fyrir endann á borðinu og hallaði mér fram. Skaut kúlu í hornvasann. "Ekki lengur".

Sennilega hef ég ekkert að gefa.


| anna | 23:29 | permalink | comments (2) |
Pressa
Þriðjudagur, 10. mars 2009

Ég fór snemma heim úr vinnunni í dag, tætti mig úr fötunum og klæddi mig í teppi og hélt áfram að vinna.

Nema þegar ég var á leiðinni heim, sem hefur verið rétt um hálf fimm, þá var ég á gatnamótunum hjá Kringlumýrarbraut þegar ég fann alveg svakalega brunalykt. Ég er eldhrædd. Og úff... ég var að FRÍKA ÚT í bílnum að vita ekki hvaðan þessi brunalykt kom, hélt að það væri kviknað í bílnum.

Djöfull var þetta óþægilegt.

Annars var þetta ágætur dagur, klikkað að gera í vinnunni..

Anna says: hvernig gengur?
xxx says: þetta er engin smá pressa
xxx says: ekki nógu vel, alltaf fólk að koma að trufla mig
Anna says: andsk

xxx says: mig er farið að dreyma þig á nóttunni
Anna says: jæja
xxx says: en það eru ekki dónalegir draumar
Anna says: lol
xxx says: ég finn bara fyrir mikilli hræðslu
Anna says: er ég að heimta að þú vinnir eitthvað verkefni?
xxx says: já
Anna says: æ æ
Anna says: við þurfum klárlega að funda um þetta mál
Anna says: ef maður er hræddur í draumi kallast það martröð
Anna says: ég er sumsé í martröðum þínum
xxx says: smile

Anna says: ertu að segja mér satt?
Anna says: er ég martröð!
xxx says: nei
xxx says: mér finnst gaman að þér
xxx says: þú lyftir mér upp
xxx says: you make me wanna be a better man
Anna says: þetta er fallega sagt

badkitty.jpgAnna says: og ef þú verður ekki betri maður
Anna says: þá veistu að ég kem með haglarann
Anna says: ....

xxx says: lol
xxx says: engin pressa
Anna says: ekki til

Anna says: hvernig gengur?


| anna | 22:20 | permalink | comments (0) |
Engin pressa
Miðvikudagur, 11. mars 2009

Anna says: hvernig gengur?





| anna | 0:05 | permalink | comments (1) |
Hmmm
Miðvikudagur, 11. mars 2009

hverniggengur3.pngAnna says: hvernig gengur?


| anna | 8:20 | permalink | comments (0) |
Getur verið að það sé fullt tungl?
Miðvikudagur, 11. mars 2009

Það hefur einhver tekið sig til og lyklað bílinn minn. Viðkomandi hefur sennilega ekki gert sér grein fyrir að þó þetta sé fallegur bíll, þá er hann ekki í eigu auðmanns - eða þá að einhverjum er svona illa við mig. Ég veit reyndar ekki hver það ætti að vera eða hvað viðkomandi græðir á að skemma bílinn minn. Vissulega er bíllinn bara dýrt leikfang, hann er það, en það gefur ekki öðrum rétt á að skemma hann - jafnvel þó ég væri ógeðslega rík.

Ég fór til lögreglunnar og gaf skýrslu, fer á morgun að láta meta tjónið. Sennilega er ég að horfa á heilsprautun þar sem skemmdarvargurinn rispaði bílinn nánast hringinn, en bíllinn er í kaskó og skv skilmálunum bæta þeir "tjón á ökutækinu af völdum sannanlegs skemmdarverks sem unnið er af ásetningi. Bótaskylda er háð því að þessi tilvik séu kærð til lögreglu strax og þeirra hefur orðið vart". Þetta eru augljóslega skemmdarverk og augljóslega unnin af ásetningi. Lögreglumaðurinn sem tók af mér skýrsluna var mjög hjálplegur og sagði mér hvert ég ætti að snúa mér í að láta meta tjónið og fleira.

Það er klikkað að gera í vinnunni, margar sýningar í gangi hjá fyrirtækinu og margt sem þarf að gera á vefnum, en það var ekki fyrr en eftir vinnu sem ég fékk rude awakening, frá Stephen. Í lok samtalsins bað ég hann um að leyfa mér að svara honum á morgun.

Hverju ég á að svara honum hinsvegar.. finnst mér ekki jafn auðvelt að ákveða.


| anna | 22:43 | permalink | comments (2) |
Leiðin að svarinu
Fimmtudagur, 12. mars 2009

Þegar hann fór af landinu var eins og hann vildi ekki tala við mig lengur. Það tók mig smá tíma að átta mig á því að ástæðan var ekki að ég stóð ekki undir væntingum, það er einmitt vegna þess að ég gerði það sem hann beilaði.

stephen says: remember we used to flirt?
Anna says: the reason you don't chat me up anymore is because it's dangerous
stephen says: so true
Anna says: but that doesn't mean you don't want to
stephen says: also true
stephen says: it's so easy to flirt when nothing's at stake
Anna says: exactly
Anna says: you raised the stakes by coming to iceland
stephen says: true
stephen says: but i also found i had a friend in iceland
stephen says: who is great to lay in bed with
stephen says: and watch the northern lights with
stephen says: and drive into snowdrifts with
Anna says: yes
Anna says: but then you were also distant and strange for some time after
Anna says: because the stakes had become a little too high

Hann er farinn að kunna vel við hvað ég þekki hann vel. Það er alltaf þægilegra að eiga við fólk sem skilur af hverju þú hagar þér svona og hinsegin - þó það sé vissulega þægilegra að eiga við fólk sem veit sjálft af hverju. Það eru bara ekkert svo margir sem vita af hverju þeir haga sér eins og þeir gera.

Hann hafði orð á því þegar hann kom hingað að hann skildi ekki af hverju ég ætti ekki mann. Hann hefur oft minnst á það áður. Samtalið áðan byrjaði nákvæmlega svona:

Stephen says: http://www.vanityfair.com/politics/features/2009/04/iceland200904
Stephen says: "In Reykjavík, where men are men, and the women seem to have completely given up on them, the author follows the peculiarly Icelandic logic behind the meltdown."
Stephen says: that part made me laugh
Stephen says: the rest didn't
Anna says: yes
Anna says: sounds like me doesn't it?
Stephen says: it does sound like you smile
Stephen says: and at the end, the writer blames all the problems on the men
Stephen says: and says iceland's women would be much better in control
Anna says: this you know to be true
Stephen says: smile
Anna says: who saved your live at the end of the earth?
Anna says: driving through snow on a string road
Stephen says: so true
Stephen says: that was a year ago!
Stephen says: one whole year

Hann er búinn að tala mikið um að það sé heilt ár liðið. Ég fæ á tilfinninguna að hann vilji ekki láta fleiri ár líða - en eftir viðburði dagsins er ég örlítið nær því að vita af hverju ég á ekki mann og sennilega nær því að eignast einn en ég hef verið frá því ég skildi við eiginmann minn.

Stephen says: if you want me to come over tell me when, i'd love to see you again
Anna says: what if i fall in love with you and chain you to the bed?
Anna says: or the wall
Anna says: the wall would be better
Anna says: see i'm planning this already!
Stephen says: then i'd be stuck?
Anna says: yes you would be
Anna says: i should tell you about last weekend

Um leið og hann minntist á að koma fór ég að djóka, góð aðferð til að gefa hlutum lítið vægi og ég gerði það af ásetningi. Reyndi að breyta um umræðuefni þarna en hann leyfði mér ekki að komast upp með það. Samtalið er mikið lengra en það sem ég birti hér og ég mig grunaði að hann væri að byggja þetta upp. Ég reyndi hvað eftir annað að fara að tala um eitthvað annað..

Stephen says: from thurs april 23rd
Stephen says: to mon april 27th
Stephen says: your call smile

..en það var ekki fyrr en hann skellti dagsetningunni fram sem ég fraus og það leið langur tími áður en ég gat svarað.

Anna says: i'm terrified
Anna says: smile
Anna says: but at the same time i would still love to see you again

Hann gerði þetta líka síðast, slengdi dagsetningu fram en þá vorum við búin að setja reglur fyrirfram, áður en hann kom með dagsetninguna og ég gat verið róleg. Reglur sem við vitum bæði að verða brotnar ef hann kemur aftur.
Hér kemur hluti af samtalinu sem ég mun ekki birta opinberlega, en það er augljóst að ef ég samþykki að hann komi hingað, þá er ég líka að samþykkja að hann sé orðinn meira en vinur.

Anna says: can i answer tomorrow?
Stephen says: sure smile

Hún: hvað ætlarðu að segja við hann?
Anna: ...ég veit það ekki. Mér leið rosalega vel þegar hann var hérna.
Hún: það er ömurlegt að líða vel með einhverjum sem maður getur svo ekki haft hjá sér.
Anna: já
Hún: hann er ekki þess virði ef hann fer aftur og þú situr uppi með sárt ennið í ástarsorg.
Anna: málið er.. það er ekki það sem ég hef mestar áhyggjur af. Ég lifi ástarsorg af, ég hef gert það áður. Eins og ég er búin að kvarta yfir því að ég finn ekki mann.. þá hef ég meiri áhyggjur af því að hann komi og fari ekki aftur. Eftir þetta samtal við hann finnst mér það sennilegra en hitt - en á hinn bóginn þá skilur hann ekki að þetta er ákvörðun - að elska einhvern, ekki eitthvað sem kemur fyrir þig óvart þegar þú varst ekki að horfa, það er bara kemistrí. Má ekki vanta, en það verður að vera meira en það til að þetta gangi upp.
Hún: það eru ekkert allir sem vita þetta.

Anna: fyndið. Þegar fólk talar um að "opna hjartað sitt fyrir jesú", eða kristi eða hvað sem það vill trúa á, það er nákvæmlega það sama sem gerist. Ef þú opnar, þá fyllist hjartað þitt af kærleika sem var þarna allan tímann en var bara.. eins og ónotaða fjármagnið hans Hannesar, ekki að gera neitt fyrr en heilabú manneskjunnar tengdi hann við einhvern annan en sig. Þessi trú um að einhver annar fylli þig, þegar þú fyllir þig sjálfur.
Hún: ást er reyndar mjög skyld trúarbrögðum.

Anna: já, en það er nákvæmlega þetta sem gerist, þú tekur ákvörðunina og þá fyllist hjartað þitt. En.. mér stendur til boða að fylla hjartað mitt af ást á manni sem ég á séns á að verða hamingjusöm með, en ég veit ekki hvort ég vil gera það!!!! Meina.. hvað með hina? Það eru íslenskir menn. Það er maður í þýskalandi sem vill koma hingað - einn í danmörku sem er að plana að bjóða mér út þegar ég fer næst á fund þangað. Hvernig á ég að vita hver þeirra er réttur?
Hún: þú getur ekki vitað það.

Anna: ég veit að Stephen hélt að ástin væri eitthvað svona.. stórt. Ég veit ekki hvort ég þori að.. treysta.. AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA - þar fyrir utan langar mig ekki að eiga útlending sem kærasta! Djöfullinn sjálfur.
Hún: ...

Anna: Ég man ekki einu sinni hvernig tilfinning það er að koma heim "til" einhvers! Dísus!
Hún: hvaða áhrif myndi það hafa á þitt líf ef hann flytti til þín?

Anna: doddi myndi sennilega skipta alfarið yfir í ensku heima og enska yrði á endanum hans "fyrsta" tungumál. Það er stærsti gallinn. Hann myndi auðvitað tala íslensku en sennilega ekki mjög góða. Hann er með meiri orðaforða í ensku núna og samt tölum við saman á íslensku heima.
Hún: mér finnst þetta svo flippuð staða, að eiga barn sem talar annað tungumál en það sem er talað heima hjá því.
Anna: já það er furðulegt. Ég væri ekki lengur ein. Hann myndi sennilega draga mig í ferðir um landið, sem mér fyndist skemmtilegar og krökkunum líka. Hann drekkur ekki. Hann nennir ekki að djamma. Svipuð áhugamál og ég. Ljósmyndari, grafíker og tölvunörd, góð blanda. Unix maður. Hann er forvitinn, fiktari, alltaf að uppgötva nýja hluti og sýna mér, ég kann að meta það. Ég vil eiga mann sem er alltaf að sýna mér eitthvað sem mér finnst skemmtilegt - þó t.d. þér þætti það sem hann sýnir mér sennilega ógeðslega boring. Hann hefur sama húmor og ég, hann getur látið mig fara að hlæja. Andskotans hálfviti var ég að sofa ekki hjá honum!
Hún: það voru mistök hehehe

Anna: Ég veit að hann er búinn að vera að deita og ég veit að hann er ekki að finna það sem hann er að leita að og ég veit líka að hann er að bera þær saman við mig. Ég veit að hann upplifir sig eiginlega tengdan mér, eins og við séum gift, en bara í óhamingjusömu sambandi þar sem við erum aldrei saman. Ég benti honum á að við erum ekki gift, höfum aldrei verið saman, þannig að við höfum engum skyldum að gegna gagnvart hvoru öðru. Eftir að ég sagði honum þetta fór hann að deita..

Svo fattaði hann við að deita þessar stelpur að það var liðið ár, frá bestu helgi sem hann átti síðasta ár - á Íslandi. Með konunni sem hann trúði ekki að væri for real. Og ég held að hann vilji ekki láta annað ár líða því hann er orðinn hundleiður á því að finna ekki það sem hann er að leita að og vita af einu eintaki á Íslandi. Og hann er mjög meðvitaður um að það eintak mun ekki verða á lausu endalaust þar sem það er bara tímaspursmál um hvenær ég hitti einhvern sem ég er tilbúin að láta á eitthvað reyna með. Og hann vill ekki þurfa að naga sig í handabakið fyrir að hafa ekki áttað sig fyrr en of seint.

En það er mitt að ákveða það.

Ég er algjörlega.. ég veit ekki hvað ég á að gera. Ef ég mætti velja, þá myndi ég velja að fá hann hingað og fá að eiga hann.. í smá tíma, því ég er að geðbilast á að vera ein.. en ég.. get ekki.. sleppt - þú veist hvað frelsið mitt er dýru verði keypt. Vil ég fara í samband at all?? Andskotans, djöfulsins, helvítis. Ég er að upplifa sorg vegna þess að mér líður eins og tímabili í lífi mínu sé lokið, sem hefur verið eitt það besta tímabil sem ég hef lifað. Án karlmanns. Ég er farin að tengja hamingju við að eiga ekki mann - samt er ég miserable! Bara minna miserable en þegar ég á mann!

Djöfull er maður fucked up - það er magnað.

Stephen says: talk tomorrow
Stephen says: ?
Anna says: yes
Stephen says: see you then
Stephen says: have a good night
Anna says: you too

Allt í einu rennur upp fyrir mér að það er til leið til að gera útum þetta og það gæti mögulega endað þessa hörmulegu bloggfærslu sem sýnir svart á hvítu hversu hrædd ég er við að treysta einhverjum fyrir mér. Einföld leið. Ég man ekki nákvæmlega dagsetninguna þegar ég sagði þessi orð síðast við karlmann, en ég man eins og það hefði í gerst í gær hvernig það gerðist og hvernig mér leið og ég man að hann svaraði "ertu nú alveg viss um það?". Ég segi ekki "ég elska þig" útí bláinn - og ég hef ekki geta sagt þetta við neinn nema börnin mín síðan. Í nærri fjögur ár.

Svo Anna... ef Stephen stæði fyrir framan þig núna og þú værir að horfa í augun á honum. Getur þú sagt "ég elska þig"?

Það má vera að þetta sé ósanngjörn spurning, en ég veit svarið.


| anna | 0:54 | permalink | comments (3) |
Árvisst áfall
Föstudagur, 13. mars 2009

rs.pngSkattskýrslan er fyrir mér eins og árlegur listrænn gjörningur. Launatölur eru réttar, skuldatölur eru ballpark. Enda fæ ég ekki vaxtabætur af neinum skuldum svo það skiptir í raun engu hvað ég set þarna inn á meðan ég held mig innan marka þess raunverulega. Ef skatturinn tekur mig til rannsóknar mun ég segja að ég sé listamaður og þetta sé pólitísk mótmælaaðgerð sem á að vekja athygli á því að lánastofnanir geta vel sent inn þessar upplýsingar til skattsins fyrir mig.

Ef það virkar ekki mun ég halda því fram að starfsmenn skattstofu ofsæki mig, fylgjast með mér í gegnum ljósaperurnar heima hjá mér og hleri baðkarið mitt. Þetta veldur því að ég er með ofþanda þarma þar sem ég prumpa helst í baði og síðan þeir fóru að hlera þar inni hef ég ekki geta prumpað því ég er svo vel upp alin. Ég sé fram á að stuttu síðar færi ég á örorku vegna gruns um geðveiki.

Þá hefði ég tíma til að nema lögfræði og fara loks í mál við ríkið og krefjast þess að fá greitt fyrir alla þá vinnu sem hefur farið í að opna bréf og safna tölum og skrá þær niður, flokka og koma allskonar illskiljanlegum pappír fyrir í möppum. Ég myndi sennilega fara í mál við sjálfa mig líka fyrir að ganga árvisst í störf endurskoðanda án þess að hafa til þess nein réttindi né próf.

Að lokum myndi ég fara fram á bætur vegna þess ómanneskjulega tilfinningalega álags sem ég verð fyrir þegar ég gleymi að sækja um frest og fæ taugaáfall. Sem gerist á hverju ári. Upphæðin sem ég mun krefjast í bætur verður mæld í kúlum.

Ég hef aldrei sótt svona snemma um frest áður, venjulega sæki ég um frest eftir að fresturinn rann út og síðustu tvö ár hef ég skilað löngu eftir að fresturinn rann út en hef talið mér trú um að ég hafi haldið að fresturinn væri ekki liðinn svo í raunveruleikanum hafi ég skilað á réttum tíma og í góðri trú. Þessi iðja mín kemur alveg í staðinn fyrir áhættuíþróttir hjá mér - en fullnægjir samt þörf minni fyrir að lifa á brúninni.

Annars var starfsmaður hér áðan frá skattstofu. Hann var flugubúningi. Ég var búin að segja honum margoft að ef hann færi ekki ÚT þá yrði hann drepinn - en hann hlustaði ekki.

Honum hefur nú verið hent ofanaf svölunum.

Ég hringdi í 112 og lét vita af þessu. Maðurinn sem svaraði neitaði að senda mér lögreglumann og ég sagði að hann væri misskunnarlaust illmenni - og eitthvað fleira sem ég get ekki verið að hafa eftir mér. En svo bað ég hann afsökunnar, sagðist hafa verið að undirbúa mig undir skattskýrsluna og ekki meint neitt af því sem ég sagði. Við grétum saman og hann sagðist vera búinn að raða öllu á borðinu eftir jing/jang/zen reglu og hann fyndi að allar stofnfrumurnar hans væru miklu glaðari. Hann er að hugsa um að ættleiða Margeir.

Fyrir utan allt þetta var þetta, óvænt, mjög skemmtilegt kvöld.


| anna | 0:29 | permalink | comments (1) |
Friction
Föstudagur, 13. mars 2009

hope.pngÞegar ég tók ákvörðunina var ég sannfærð um að ég væri að gera rétt og í split second var ég líka sannfærð um að það sem ég vil myndi finnast.

Á eftir var ég fegin. Líka svolítið hissa. Ég er komin á þann stað þar sem ég stend af mér hluti sem ég hefði ekki staðið af mér þegar ég var yngri. Veit hvað ég vil og hvað ég þarf. Það er frábær staða að vera í.

Rétt áðan stofnaði ég huglægt einkahlutafélag sem heitir Anna ehf. Það eru bara tveir menn í öllum heiminum sem vita hvað ég er að tala um eða til hvers ég er að þessu. Annar gæti átt á hættu að vera laminn í hausinn með pönnu ef ég ákveð einn daginn að þetta hafi verið mistök. Hinn veit þetta vegna þess að mig langaði að segja honum frá þessari hugmynd - og ég veit ekki nákvæmlega af hverju, en það var gut feeling.

Anna ehf verður í eigu Önnu, Önnu Helgadóttur, Önnu Fanney, anna.is, móðurinnar, vefstjórans, saumakonunnar, litlu stúlkunnar, konunnar, nornarinnar og gyðjunnar. Kærastan og eiginkonan eiga séns á að gerast hluthafar - en meginreglan er sú að félagið leyfir ekki nýja hluthafa nema þeir komi með einhver verðmæti inní reksturinn.

Þetta gildir jafnt um þær eins og hinar.

Vá hvað mér finnst ég vera búin að vera dugleg í dag. Ég er reyndar búin að vera massa dugleg í dag, þó ég hafi sofið yfir mig í morgun og ekki farið að vinna fyrr en rétt fyrir tíu. Það er vegna þess að ég tók símafund klukkan þrjú í nótt til Singapore - Freezing and Temperature Division.

Mér finnst þetta svo skondið nafn, svolítill James Bond í þessu.

Anna - freezing and temperature division.

Nei, Anna er betra.


| anna | 17:59 | permalink | comments (8) |
Smáfuglarnir
Laugardagur, 14. mars 2009


| anna | 14:21 | permalink | comments (0) |
Framtíðin
Laugardagur, 14. mars 2009

framtidin.pngFór á fund hjá Hugmyndaráðuneytinu í dag þar sem verið var að ræða framtíðarsýn þjóðarinnar og gildi.

Þar kom upp spurningin: hafa fjölskyldurnar í landinu einhverja framtíðarsýn fyrir sig?

Ég veit ekki hvort fjölskyldur setjast niður og búa sér til framtíðarsýn, ég gerði það reyndar með krökkunum þegar ég skildi. Útskýrði fyrir þeim hvernig ég sá fyrir mér heimili sem mér fyndist gott að koma heim til og spurði hvernig heimilið sem þeim fyndist gott að koma heim væri. Kannski var þetta ekki framtíðarsýn, ég veit það ekki.

Við sömdum saman hvernig umhverfi við vildum búa í og settum nokkrar grunn reglur sem eru ennþá í gildi. Það er alveg kominn tími á að gera þetta aftur.

Í millitíðinni hef ég hinsvegar náð að gera margt gott, í litlum skrefum. Næstu helgi þegar ég er með krakkana ætla ég að hafa stefnumótunarfund, ákveða hvernig framtíðarsýn heimilisins er þannig að þetta sé heimili þar sem öllum líður vel og svo ætla ég að fara þangað með krökkunum í litlum skrefum.

En ég velti samt fyrir mér hvaða gildi skipta mig máli í lífinu og hvaða gildum ég lifi eftir sjálf. Hvaða gildi skipta þig máli sem einstakling og hvaða gildi finnst þér skipta máli fyrir þjóðina?

Hvaða gildi finnst þér hafa verið áberandi undanfarið hjá þjóðinni?

Hvaða framtíðarsýn hefur þú ef heimurinn er útópía?
Hvaða framtíðarsýn hefur þú í raunveruleikanum?
Af hverju er þetta ekki sama framtíðarsýnin?


| anna | 20:27 | permalink | comments (1) |
Stutt
Sunnudagur, 15. mars 2009

shortblonde.pngMaður ætti sennilega að vara börnin við áður en maður gerir svona lagað..

Ég veit það ekki.


| anna | 2:05 | permalink | comments (7) |
Byrja hægt?
Sunnudagur, 15. mars 2009

darkhair.pngByrja á að fara í axlasídd og enda með alveg stutt um áramótin?

Var ekki verið að tala um að fara hlutina í litlum skrefum í gær? Eða er þetta rétti tíminn til að kaupa sér monsterjeppa?


| anna | 14:01 | permalink | comments (3) |
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
Sunnudagur, 15. mars 2009

blaaaaaaaa.pngAndskotinn ég get ekki ákveðið hvernig ég á að láta klippa mig..


..svo ég ætla að taka til í staðinn.

Já og btw. Vefmiðlar eru að gefa þessum prófkjörum allt of mikið vægi. Með réttu ætti að vera undirflokkur á þessum vefjum sem heitir "prófkjör" fyrir fólk sem hefur áhuga á að fylgjast með. Það er svo í lagi að birta lokatölur á aðalvefnum.

Kjörsókn sjálfstæðismanna gefur vísbendingar um að eina fólkið sem er eftir í flokknum er fólkið sem er í klíkunni og að sjálfsögðu kýs það sama fólkið til að vinna fyrir sig.

Það munu hinsvegar fáir kjósa sjálfstæðisflokkinn í kosningunum - og ennþá færri nú en áður.


| anna | 15:57 | permalink | comments (5) |
Stefnumót
Mánudagur, 16. mars 2009

annasmile.jpgÉg er að fara á stefnumót annað kvöld með manni sem ég hef aldrei hitt. Við erum búin að ákveða að hittast á óvenjulegum stað, en við erum líka búin að ákveða að búa til dagskrá, í sitthvoru lagi, fyrir deitið.

Mín dagskrá er svona:

8:00 - 8:15 - Almenn kynning
8:15 - 8:20 - Escape call afgreidd

8:20 - 8:40 - Nánari kynning.
8:40 - 9:00 - Ræðum af hverju við skildum.
9:00 - 9:05 - Stutt hlé þar sem við ákveðum hvort við ætlum að halda áfram á stefnumótinu - Anna finnur lyktina af hálsinum á honum (vera rólegur á rakspíranum).

9:05 - 9:20 - Hann fer yfir þau sambönd sem hann hefur verið í síðan hann skildi.
9:20 - 9:35 - Hún fer yfir þau sambönd sem hún hefur verið í síðan hún skildi.
9:35 - 10:10 - Fara yfir hvað þau vilja og hverju þau eru að leita að.

10:10 - 10:30 - Símahlé, talað við ættingja, börn og vini.

10:30 - 11:40 - Dagsetning ákveðin og kirkja.
11:40 - 11:50 - Gert upp við matsölustaðinn.
11:50 - 1:00 - Orðið laust.

xxx says: þetta er snilld.....ég bæti inn í því sem vantar
xxx says: heyrðu ég fer og kaupi hringa á morgun svei mér þá
Anna says: kúl
Anna says: hey
Anna says: hvernig hringar finnst þér flottir?
Anna says: eru þeir plain og stílhreinir eða útflúraðir?
xxx says: Vá......er svo sannarlega fagurkeri en ég hef ekki alveg verið að pæla í því í smá tíma sko
Anna says: come on þú veist þetta alveg
xxx says: algjörlega plain og stílhreinir
Anna says: snilld
Anna says: ég líka
xxx says: hvaða lit viltu hafa á hringunum
Anna says: hmmm
Anna says: gull eða titanium
xxx says: ok cool


| anna | 19:13 | permalink | comments (0) |
Setning dagsins
Þriðjudagur, 17. mars 2009

annabrjost.jpg"Anna, þú verður að fara að ganga í fötum kona."


| anna | 18:59 | permalink | comments (2) |
One ring to rule them all
Miðvikudagur, 18. mars 2009

takeabow.pngÞetta escape call fær ekkert minna en tíu í einkunn.

"ha? er fótboltaæfing í kvöld, nei ég verð að sleppa því, er upptekinn á smá fundi... hvað segirðu? er hún komin uppá spítala? -Ég verð að heimsækja hana á morgun.. já ég er upptekinn [fór að hlæja] takk...bless"

Mér datt ekki í hug að hann væri að fara og það er ekki vegna þess að ég held að ég sé svo æðisleg að engin karlmaður fái mig staðist, það var vegna þess að hann hafði ekki sýnt nein merki þess að honum langaði til þess.

Ég var í hláturskasti alveg frá því síminn hringdi og þangað til eftir að hann hafði skellt á - enda vissi ég að þetta var the escape call og greinilega sett á svið til að skemmta mér, og honum. Hann viðurkenndi eftirá að hann og vinur hans voru að plotta að láta hann hringja í mig til að sjá hvernig ég myndi bregðast við, hvort ég myndi svara og þá hvað ég myndi segja. Ég byrjaði hinsvegar á að slökkva á símanum fyrir framan hann þegar ég kom og var búin að segja honum að ég hef slökkt á símanum þegar ég er á stefnumótum, svo hann vissi að það myndi ekki virka.

Þegar hann var að kveðja mig fór hann í vasann og náði í lítinn pakka í fallegum umbúðum, rétti mér og sagði: "bara ef þú vilt". Þetta er frumlegasta leið til að biðja um deit nr 2 sem ég hef upplifað og sú skemmtilegasta.

Inní pakkanum var hringur.

Ég veit ekki hvort hann sá í gegnum mig, en hann afvopnaði mig ekki. Kannski gerði hann það ekki vegna þess að hann vissi að ég myndi ekki höndla það. Enda kom ég nakin á stefnumótið - án gleraugna. Það er reyndar alveg sérstakt.

Klukkan fimm.

Anna says: i'm scared of going on the date tonight
xxx says: isn't that natural?
Anna says: not for me
xxx says: i've started talking to girls i wouldn't normally talk to
xxx says: like, ones with interests totally opposite to me
xxx says: they're still hot though, i'm still shallow
Anna says: smile
xxx says: why are you scared of your date?
Anna says: i'm scared of that he won't find me hot smile
Anna says: but most of all i'm scared of that he will see through me and disarm me
xxx says: well, all things being equal he will find you hot
xxx says: no-one is universally hot
xxx says: but you're one of those people who's close
Anna says: smile
xxx says: there's a fair chance he'll see through you
xxx says: not all men are idiots
xxx says: half of them are smart and have empathy

2 klukkutímum seinna vaknaði hamsturinn í hjólinu..

Anna says: you had empathy with me
xxx says: smile
Anna says: did you see through me?
xxx says: i saw into you
xxx says: and it was all good stuff
Anna says: thank you


| anna | 2:00 | permalink | comments (3) |
Priceless
Miðvikudagur, 18. mars 2009

| anna | 19:43 | permalink | comments (0) |
Ætli þetta sé árstíðabundið?
Miðvikudagur, 18. mars 2009

annakisihissa.jpgÉg geri mér ekki grein fyrir því.

Ég er öll ómöguleg þessa dagana, eirðarlaus. Vil láta klippa mig. Hætti við. Vil taka geymsluna í gegn og henda drasli.

Mig langar að mála baðherbergið. Mig langar að mála íbúðina. Langar að festa upp hillu sem ég keypti fyrir löngu síðan og er búin að geyma inní skáp.

Í kvöld kláraði ég að skrifa frásögn sem ég er búin að vera á leiðinni að klára í heil þrjú ár! - og mig langar að gera fullt af hlutum sem ég er búin að svona.. vita af.. en ekki komið mér að því að klára. Meina.. ég tók til á desktoppinu í vinnutölvunni í síðustu viku og flokkaði allt samviskusamlega, sem er eiginlega súrrealískt og mjög ólíkt mér. Síðast þegar ég gerði svona lagað var þegar ég hætti að vinna hjá Glitni og VARÐ að skila þessu í möppum með strúktúr sem meikaði sense fyrir einhverjum öðrum en mér.

Ég get ekki verið að fullorðnast því það gerðist fyrir ári síðan - en - ef ég er ekki að fullorðnast, hvað er þetta þá?


| anna | 22:07 | permalink | comments (4) |
Beisik
Fimmtudagur, 19. mars 2009

annaglitnir.jpgÁ morgun er ég að fara út með vinkonu minni. Við ætlum að byrja á því að fara á valin stað til að púla, í gufu á eftir að slaka á, næst munum við sennilega eyða klukkutíma í að gera okkur að gyðjum og svo ætlum við út að borða.

Þetta verður turning-point kvöld fyrir mig.

Um helgina ætla ég að byrja að preppa baðherbergið undir málningu. Ég hugsa að ég verði búin að mála stofuna og eldhúsið áður en sumarið er liðið - og taka aðra syrpu í tiltekt eins og ég gerði þarna um árið..

..er reyndar á eftir áætlun með þessa tiltekt, í myndinni kemur fram að ég ætlaði að gera þetta áður en árið 2009 rynni upp.

Oh well..


| anna | 20:57 | permalink | comments (2) |
2Nite
Föstudagur, 20. mars 2009

I found a place..


| anna | 0:05 | permalink | comments (0) |
Flottasta pick-up lína sem ég hef heyrt
Laugardagur, 21. mars 2009

"Ég er svo gamall.. að ég er alveg að fara að deyja. Þarf bara að skrifa undir erfðarskránna..."

Hann var ekkert að ljúga, hann er svona gamall.

Hann: [bendir á töskuna mína] þetta er gamalt leður.
Anna: já, þetta var kötturinn minn, hann fór á undan þér.
Hann: sérstakt.
Anna: mjög, mér þótti líka vænt um þennan kött. Vil hafa hann alltaf hjá mér.
Hann: mig langar nú að kynnast þér betur
Anna: ..og þú ert ekkert hræddur við að enda svona? [bendir á töskuna]

dennycraneflottur.pngAnnars féll ég algjörlega fyrir manninum með tuskuna á Pósthúsinu. Hann þreyttist ekki að koma og þurrka af borðinu okkar og færa okkur drykki.

Ég þarf svona mann.

Svo var það náttúrlega maðurinn sem ætlaði að reyna að put me in my place..

Hann: má ég segja þér svolítið?
Anna: já
Hann: það eru karlmenn hér að horfa á þig og þeir eru að klæða þig úr með augunum.
Anna: og þú heldur að þú sért að segja mér fréttir?


| anna | 3:00 | permalink | comments (0) |
Kreppan útskýrð
Laugardagur, 21. mars 2009

Peter Schiff, sem sá fjármálakreppuna fyrir, talar á mannamáli og útskýrir þetta í meiri smáatriðum en gert er annarsstaðar.

Hann hélt þessa ræðu hjá Ludwig von Mises Institute, sem er stofnun hagfræðinga af austurríska skólanum.


| anna | 12:44 | permalink | comments (0) |
Þetta er hægt
Laugardagur, 21. mars 2009

How we re-grew a rainforest

"Work with the people".

18:38 "You also have to make sure that it is very difficult to corrupt, that it is transparent."


| anna | 13:56 | permalink | comments (4) |
Beint lýðræði
Laugardagur, 21. mars 2009

Ég verð alltaf fráhverfari hugmyndum um beint lýðræði, þ.e. þeim sem snúast um að það eigi að kjósa um alla hluti. Ég skil í raun ekki af hverju menn telja þetta vera "réttu" leiðina vegna þess að þegar þú ferð að kryfja hana kemur í ljós að gallarnir eru stærri en kostirnir.

Menn segja að ef kosið er um öll mál fæst besta lýðræðislega niðurstaða í öllum málum. Fyrir mér er þetta einfaldlega rangt.

  • Þegar tekin er ákvörðun um mál með því að kjósa verður niðurstaðan skv hagsmunum eftirfarandi aðila:
    • Fjölmiðla - sem munu heilaþvo fjöldann til að kjósa "rétt" (sér/eigenda/hagsmunaaðila í hag)
    • Valdamikilla einstaklinga sem hafa greiðan aðgang að fjölmiðlum - sem munu segja fólki að kjósa "rétt" (sér/hagsmunaaðila í hag)
    • Það væri jafnvel hægt að skrifa góðan gamanþátt sem er "hit" og mótar hvernig kjósendur kjósa.
  • Ef skylda á fólk til að taka þátt í kosningum um öll mál, með því t.d. að láta það borga sekt ef það kýs ekki, þá þýðir það að niðurstaðan verður enn líklegri til að vera einhverjum öðrum en heildinni í hag, þar sem fólk mun neyðast til að kjósa hvort sem það hefur skoðun eða áhuga og er líklegra til að kjósa eins og fjölmiðlar segja því að gera. Það mun auðvitað trúa að það sé þeim í hag, þó það sé rangt.
  • Ef þú átt að geta framselt atkvæðið þitt til fólks sem þú treystir til að kjósa í ákveðnum málum, það er eins og að fá að eyða peningum annarra. Þú berð ekki jafn mikla virðingu fyrir atkvæðinu þínu - einfaldlega vegna þess að þú settir ábyrgðina á einhvern annan en þig. Sem er í raun að firra sig ábyrgð, og ég veit ekki hvenær það telst jákvætt.

Ég held að svarið við öllum spurningum breytist ef þeim er svarað með hliðsjón af því hvað væri best fyrir heildina. Það er fólki eðlislægt að hugsa fyrst um sig, svo um heildina.

Og eina leiðin til þess að fólk átti sig á hvað er best fyrir heildina er að upplýsa fólk um hvað er að gerast og hver hagnast. Hver hagnast til skemmri tíma og hver hagnast til langs tíma. Og kannski er þetta ekki einu sinni nóg. Það hefur sýnt sig að áróðursherferðir gegn reykingum þar sem ónýt líffæri eru sýnd unglingum virka ekki vegna þess að hryllingurinn er of langt í burtu. Hvað kemur unglingi við hvað gerist eftir 40 ár? Sæll?

Erum við eitthvað skárri en unglingarnir?

Aukið aðgengi upplýsinga og vettvangur þar sem allir geta rökrætt upplýsingarnar er ein leið sem hægt er að fara til að taka betri ákvarðanir. Það verður ekki gert með því einu að gefa öllum kost á að kjósa um öll mál.


| anna | 19:18 | permalink | comments (4) |
foie gras
Laugardagur, 21. mars 2009

Ég er búin að eyða þessum degi í að þrífa. Á meðan upplýsti ég sjálfa mig með því að hlusta á fyrirlestra á ted.com.

Hér er einn sem mér finnst snilld:

Var að koma úr baði og er að bræða með mér hvort ég eigi að fara í bíó eða fara snemma að sofa. Þar sem myndin verður sýnd á morgun líka, hallast ég að því að fara snemma að sofa..


| anna | 20:52 | permalink | comments (2) |
Gran torino
Sunnudagur, 22. mars 2009

clintinnarifflinum.jpgClint Eastwood klikkar ekki í þessari mynd, hann er yndislegur og þetta er góð saga.

Mér fannst myndin reyndar illa leikin á köflum, fyrir utan Clint sjálfan sem var bara hann sjálfur (ímyndar maður sér) og hann er löngu búinn að heilla mann í því hlutverki.

Þetta er þroskasaga gamals manns og ungs drengs. Mæli með henni.

Veit ekki hvaða ljóti pappakassi sá um prómó fyrir myndina, ég finn enga mynd af bílnum til að birta með þessu bloggi, svo ég neyðist til að birta mynd af Clint á rifflinum með bílinn í bakgrunni.

Bílkynhneigðir eru greinilega minnihlutahópur.


| anna | 1:05 | permalink | comments (4) |
Gefins hleðslutæki
Sunnudagur, 22. mars 2009

hledslutaeki.png

Virkar fyrir gamlar Canon Ixus vélar (man ekki númer hvað mín var!)


| anna | 13:08 | permalink | comments (2) |
Mánudagur..
Mánudagur, 23. mars 2009

Ég fór í nudd í dag og hélt að hún ætlaði að drepa mig á tímabili. Ég er stress-klessa. Leið ekkert lítið vel þegar hún var búin og finnst eins og húðin á fótunum á mér sé út einhverju súper mjúku eitthvað.

No sooner byrja ég að lifa heilsusamlega en ég steypist út í bólum. Nei ég lýg þessu, þetta byrjaði áður - eiginlega um leið og ég fór að HUGSA um að skipta yfir í heilsusamlegt líferni!

Og nei, þetta er ekki húðin að hreinsa sig, það hefur verið afsannað. Þetta eru hormónabólur. Ég er 37 ára gelgja. Lausnin á þessu virðist einföld: ég þarf að sætta mig við að vera með bólur. Það ætlar greinilega ekkert að verða neitt öðruvísi og þar sem ég er ekki að reyna að impressa neinn þá skiptir það í raun engu máli - þó mér þætti vissulega skemmtilegra að vera laus við þennan viðbjóð. Ég ætla ekki aftur á þennan lyfjakúr. Ég hef enga trú á að það geri nokkuð fyrir mig.

Og áhugavert. Þessar bólur eru bara í andlitinu á mér, þar sem allir geta örugglega séð þær. Af hverju get ég nú ekki fengið þetta á bakið? Það horfir aldrei neinn á bakið á mér, ekki einu sinni ég!

Helgin var góð og fór í tiltekt, ræktina og afslöppun (samt er ég stress-klessa?). Horfði í kvöld á tvo þætti með desperate housewives og fór svo snemma að sofa.

Í dag var hringt í mig frá japanska sendiráðinu, viðtal klukkan ellefu á miðvikudaginn.

Jesss!


| anna | 17:54 | permalink | comments (2) |
There is so much beauty
Mánudagur, 23. mars 2009

Ég fer alltaf að gráta þegar ég horfi á myndina the Bridges of Madison County. Mér finnst hún svo falleg.

Gran torino er síðasta mynd Clint Eastwood og sem slík er endirinn táknrænn. Mér finnst svo yndislegt að maður eins og hann geri myndir eins og the Bridges of Madion County.

Youve got to give a little, take a little,
And let your poor heart break a little.
Thats the story of, love.

Ég tók þessa mynd á föstudaginn þegar ég var á leiðinni til tannlæknis. Hann var hress og ánægður með hvað ég er fljót að gróa. Þarf samt beinígræðslu og ég óttast það ekki vegna þess að hann lofaði að senda mig til tunglsins á meðan.


| anna | 23:42 | permalink | comments (4) |
Næstum því vor
Fimmtudagur, 26. mars 2009

Ég blogga vegna þess að ég hef þörf fyrir að deila lífi mínu með einhverjum og á meðan ég hef ekki einhvern til að deila lífi mínum með þá deili ég því með öllum og fæ nóg til baka til að gera mig "content".

Ef ég stæði frammi fyrir vali, þá myndi ég sennilega velja að blogga ekki.

Ég hef alltaf haft á tilfinningunni að ég verði fjörgömul kelling einhvertíma, þangað til fyrir ári síðan. Þá fór þessi mynd að dofna. Núna get ég eiginlega ekki séð mig sem mjög gamla konu og það er ekki vegna þess að ég sé hrædd við að eldast. Mér finnst mjög eftirsóknarvert að verða gamall. Ég held að ég sé hætt að sjá mig fyrir mér þannig vegna þess að mig langar ekki að verða mjög gömul ef ég verð ein.

96 var markmiðið. Ég geri mér ekki grein fyrir hversu langt niður ég er komin. 58? Ég get ekki einu sinni séð mig fyrir mér á þeim aldri, ég hætti að sjá miklu fyrr. Það er eins og það sé búið að klippa 96 ára gömlu konuna úr hausnum á mér.

Mér finnst þetta mjög merkilegt því ég sá hana svo ljóslifandi fyrir mér, áður en hún hvarf.

vesturbaer.png

Á myndinni er ég 96 ára að ganga í grasinu á Ægissíðunni. Ég brosi og veifa í áttina að myndavélinni.

Af hverju sé ég mig ekki?


| anna | 19:34 | permalink | comments (4) |
Strange..
Föstudagur, 27. mars 2009

strange.pngJoanna: What's my name?
Dean Proffitt: Mrs. Annie Proffitt
Joanna: Well what's my maiden name?
Dean Proffitt: Annie Goolaheey
Joanna: ANNIE GOOLAHEY... Where in God's name did I grow up, Dogpatch?
Dean Proffitt: No, not there honey over in Goober, Idaho but it's a nuclear waste dump


| anna | 0:07 | permalink | comments (2) |
Z German veikur
Föstudagur, 27. mars 2009

zgermanveikur.png

Ég fór að láta skipta um bremsur að aftan í Z German í janúar. Í dag, á leiðinni heim úr vinnunni, heyrði ég eitt það óhugnanlegasta hljóð sem ég hef á ævinni heyrt í bíl, svo ég keyrði strax útí kant og hringdi fyrst í pabba (ennþá eini maðurinn sem ég leita til í neyð sem ég veit að kemur á staðinn innan sólarhrings) og svo í verkstæðið sem skipti um bremsuklossa og diska og allt heila draslið í janúar, vegna þess að klossinn var horfinn á einum stað að aftan svo þetta var járn í járn - sem gaf frá sér svona dásamlegt óhljóð.

Verkstæðið gaf mér upp númer sem ég hringdi í og korteri seinna kom maður sem tók Z German á háhest og ferjaði hann á verkstæðið. Þar sögðu þeir að dælan væri föst og þess vegna hefði þetta gerst. Pabbi var ekki sannfærður.

Pabbi kom með mér heim og við héldum áfram að undirbúa baðið fyrir málningu. Eftir að við höfðum skrapað alla lausa málningu í kringum baðið af, settist pabbi með mér inní eldhús og teiknaði upp þverskurð af bremsum að aftan í bílum. Ég veit hvernig bremsur á bílum virka, hef skipt um slatta af klossum sjálf bæði að framan og aftan.

Ég sagði honum frá því þegar ég hringdi á verkstæðið stuttu eftir að þeir skiptu um bremsur að aftan og spurði hvort það væri eðlilegt að það væri svona mikið væl í bremsunum. Þeir sögðu að það væri allt í lagi en ég gæti komið með bílinn þegar ég hefði tíma og þeir myndu laga þetta. Þegar ég hef tíma. Ég hef aldrei tíma afgangs til að dólast með bílinn á verkstæði ef þess þarf ekki, svo næsta spurning sem ég spurði var "er þetta hættulegt, þarf ég að láta laga þetta?" Nei. Þetta er ekki hættulegt.

Ég sagði pabba líka frá því að þegar ég fór með hann í smurningu síðast, fyrir rúmum mánuði síðan. Þá hélt ég að það væri að kvikna í afturhjólinu og bað kallana að kíkja á hvort það væri í lagi með bremsurnar að aftan. Þeir sögðu að þetta væri bara skítur á pústinu. Það er kjaftæði og ég vissi það en hvað veit ég? Ég kaus að trúa þeim.

Það er þetta sem er neikvætt við að vera kona. Það tekur engin mark á manni þegar kemur að bílum. Þó maður hafi rétt fyrir sér. Og þetta er það sem er neikvætt við að vera ég. Ég leyfi mér að trúa mönnum sem eiga að vita hluti betur en ég.

Sennilega var handbremsan ekki losuð nógu vel upp þegar þeir tóku bremsurnar í gegn, allt draslið ofhitnaði, klossinn datt af á endanum á einum stað og það verður vel sloppið ef ég er réttu megin við hundrað þúsund kallinn þegar búið er að laga þetta.

Ég fékk ekki einu sinni drátt. Maðurinn lyfti bílnum bara uppá pallinn.

Glatað.


| anna | 20:26 | permalink | comments (15) |
Draumaprinsinn
Sunnudagur, 29. mars 2009

xxx writes:
annaogulfurinn.gif
xxx says: Anna og úlfurinn
xxx says: ég þyki drátthagur í portrettum
Anna says: er þetta höndin á úlfinum eða eitthvað annað?
xxx says: ehhh
xxx says: þarna sérðu
xxx says: ég var EKKI búinn að sjá þetta svona
Anna says: ..vegna þess að þá þjáist hann af kræklóttum lim
Anna says: hahahaha

xxx writes:
gaurinn_hennar_onnu.gif
xxx says: dáldið erfitt að ná smáatriðunum í þessu forriti
Anna says: awwww
Anna says: hverjir eru þetta?
xxx says: þú og einhver evil þéttur
Anna says: en hvað þú ert sætur
Anna says: smile
xxx says: sérðu ekki hvað þú ert glöð ?
Anna says: jú
Anna says: ég er í skýjunum
xxx says: búin að finna rétta manninn
xxx says: ég sé það núna
xxx says: þetta er eiginlega bara uppskrift að manninum
xxx says: ég hef náð andlitsdráttunum fullkomlega
xxx says: þetta er draumaprinsinn !
Anna says: já!
Anna says: hann er mjög flottur
Anna says: mig langar í svona mann
xxx says: þú prentar þetta bara út og hefur með þér
Anna says: já og ber uppvið alla menn sem ég hitti
Anna says: nei.. þú ert ekki hann
Anna says: nei.. ekki þú heldur
xxx says: aha
xxx says: betri mynd á ekki eftir að nást ...
xxx says: þetta er once-in-a-lifetime
Anna says: hehehehehehehe
Anna says: það gæti verið rétt hjá þér
xxx says: hehe
xxx says: jæja þú ert amk komin með þetta
xxx says: sweet dreams you foxy thing
Anna says: sweet dreams smile


| anna | 0:05 | permalink | comments (0) |
Fyrirsjáanleg
Mánudagur, 30. mars 2009

Stundum gerast hlutir sem kenna mér að ég er 100% fyrirsjáanleg á sumum sviðum, en 0% meðvituð um það.

Ég ætla ekki að hugsa meira um þetta. Það gæti farið illa.


| anna | 14:05 | permalink | comments (0) |
Tranquility
Þriðjudagur, 31. mars 2009

Í gær lá ég uppí rúmi og gat ekki sofnað.

Ég lokaði augunum.

Ég var hér:

where.png

Á svona bíl:

1971dodge.png

Það kom mér reyndar á óvart - og bíllinn var ekki svartur. Hann var ljósblár. Ég var á leiðinni á ákveðinn stað.

Áður en ég sofnaði var ég búin að setjast að í einhverju niðurníddu húsi við þjóðveginn sem var einu sinni bensínstöð/veitingastaður/bifvélaverkstæði. Ég eyddi dögunum í að laga húsið aðeins til, sitja í skugga á veröndinni og horfa útí auðnina.

Bera á mig varasalva.

Mér leið vel.

Ég var ennþá á leiðinni á ákveðinn stað. Þetta var bara smá detour.


| anna | 20:21 | permalink | comments (6) |

ravings í mars 2009
monthly archive

links
blogs
links - web