Fimmtudagur, 19. febrúar 2009
Eftirfarandi tölvupóstur var sendur á fjölmiðla 19. febrúar, 2009.
Lýðveldisbyltingin sendi þann 15. febrúar vandaða fyrirspurn til þingflokka stjórnmálaflokkanna varðandi stjórnlagaþing og var afrit sent á fjölmiðla. Fyrirspurnin var unnin á opin og gagnsæan hátt þar sem öllum meðlimum hreyfingarinnar gafst tækifæri til að taka þátt.
Nú hafa svör borist Framsóknarflokki, Vinstri grænum og Pétri Blöndal, þingmanni og ber að þakka fyrir þau svör sem voru vönduð og ítarleg og er hér með krafist að fjölmiðlar birti spurningar Lýðveldisbyltingarinnar og svör umræddra flokka í heild sinni.
Hægt er að lesa svörin hér:
http://tinyurl.com/bsvdcd
Frjálslyndi flokkurinn, Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn sendu ekki inn svör.
Meðlimir Lýðveldisbyltingarinnar lýsa yfir furðu sinni á því að tveir af stærstu stjórnmálaflokkunum og sá minnsti skuli ekki bera meiri virðingu fyrir kjósendum í landinu að þeir sjái ekki ástæðu til að svara fyrirspurn um jafn mikið hagsmunamál þjóðarinnar og stjórnlagaþing er.
Það er augljóst að starf Lýðveldisbyltingarinnar er rétt að hefjast.
Með kveðju,
Lýðveldisbyltingin
- endurreisn lýðræðis
www.lydveldisbyltingin.is