Miðvikudagur, 11. febrúar 2009
Ég fékk símtal í dag sem mér þótti vænt um að fá. Þetta reyndist vera maður sem er búinn að fylgjast með Lýðveldisbyltingunni frá því hún byrjaði. Sagði mér að um leið og hann las um hugmyndina, leið honum eins og þetta væri eina leiðin - vegna þess að hann hefur ekki nokkra trú á því að fólkið sem þiggur laun fyrir að hugsa um hagsmuni landsins og þjóðarinnar sé raunverulega að vinna fyrir land og þjóð.
Benti á hvenær þeir völdu að hafa kosningar. Höfðu svo stuttan tíma að það er nærri ógerningur fyrir ný framboð að móta stefnu. Hann hefur hinsvegar fylgst með stefnunni okkar mótast á Internetinu, á leifturhraða, og þar sem hann er núna endanlega búin að segja skilið við þá litlu von um að fólkið í stjórnmálafjölskyldunni fari að vinna að hagsmunum landsins í stað þess að þrasa við hvort annað um hluti sem skipta ekki máli vill hann fara að taka virkan þátt og leggja sitt af mörkum til að upplýsingabyltingin - sem Lýðveldisbyltingin er í raun - skili árangri.
Hann veit að þetta þarf samstöðu fólksins í landinu til að dæmið gangi upp og þar sem honum er hætt að standa á sama vill hann taka þátt í því sem hann trúir að geti bjargað einhverju og skapað heilbrigðara samfélag.
Þetta var eiginlega svolítið skrítin upplifun fyrir mig að tala við hann, vegna þess að hann var að segja það sem ég er búin að vera að upplifa. Hann sagðist vera búin að tala við fólk undanfarið og finnst hann mæta svo miklu vonleysi og depurð því fólk sér enga leið þegar kemur að pólitík. Mönnum fallast hendur. Hann var líka að furða sig á því hversu margir sjái ekki að valdið er í okkar höndum - þess í stað lætur fólk blekkja sig til að taka þátt í leiknum sem pólitíkusarnir eru að leika og þrasa við hvort annað um hluti sem eru löngu hættir að skipta máli - eins og hvaða flokkur gerði hvað og hvenær. Það sem skiptir mestu máli er að engin flokkur geti gert neitt þessu líkt aftur!
Hann er líka búinn að sjá, með því að fylgjast með vinnubrögðum okkar, að við ætlum ekki að spila með í leiknum og það er mjög erfitt að spila með fólk sem er ekki að spila sama leik og þú. Tala nú ekki um þegar það ætlar ekkert að fela heldur. Hvað er nú það?
Hvernig er eiginlega hægt að stöðva svona fólk?
heheheh já..
Það sem þessi maður veit.. er að ef þetta eru nógu margir venjulegir einstaklingar sem segja hingað og ekki lengra, þá er ekki hægt að stoppa þetta fólk.
Það er einfaldlega ekki hægt.
Takk fyrir að hringja og velkominn um borð!
www.lydveldisbyltingin.is