Föstudagur, 20. febrúar 2009
Ég er að fara í sneiðmyndatöku á mánudaginn. Þar sem ég hef ákveðið að hafa allt mitt líf opið og gagnsætt ætla ég að láta mynda á mér innyflin og birta þau á vefnum.
Nei ég er að ljúga þessu öllu saman - fyrir utan sneiðmyndatökuna.
Vaknaði í nótt með hrikalegan verk sem leiddi niður í hægri fótlegginn. Ef þetta væri í fyrsta skipti sem ég fæ þennan verk hefði ég sennilega farið uppá slysó, en ég hef tvisvar verið send heim þaðan útaf eins verk og sagt að þetta væri "ekkert". Í morgun fékk ég tíma hjá heimilislækninum mínum, sem hefur líka sagt mér að þetta sé ekkert. Það var í ágúst á síðasta ári. Hann sagði mér að koma aftur ef þetta myndi ekki hverfa.
Í millitíðinni hefur þetta aukist. Þetta er ekki "ekkert", en þetta þarf hinsvegar ekki að vera neitt alvarlegt heldur. Mestu líkurnar eru á því að þetta séu blöðrur á eggjastokknum hægra megin og blæðing inní kviðarholið þegar þær springa. Gæti líka verið bólga í meltingarfærum. Ekki er þetta botnlanginn, ég væri dauð úr botlangabólgu by now. Ég bað hann um worst case scenario. Það versta sem þetta getur verið, skv lækninum mínum, er æxli. Hann sagði samt að honum fyndist það mjög ósennilegt, ef ég væri með æxli væri ég miklu veikari og með tíðari verki fyrst þetta byrjaði fyrir ári síðan. Hann viðurkenndi að fólk "kann oftast á sig" og ef fólki finnst eitthvað ekki vera tilfallandi, þá er það sennilega rétt. Lækningar eru svo ónákvæm vísindi.
Það er einmitt ástæðan fyrir því að ég fór að leita mér hjálpar fyrst þegar ég fann þetta og það er ástæðan fyrir því að ég fór aftur, nokkrum vikum seinna, til að fá hjálp. Það er eitthvað að. Ég veit ekki hvað er að, ég veit ekki hvort það lagast af sjálfu sér eða hvort ég þarf aðstoð lækna - en það er eitthvað að, klárlega, og ég vil vita hvað það er.
Verkurinn er alltaf á sama stað, hægra megin í kviðnum. Þetta er svakalega sár verkur eins og maður sé stunginn og svo leiðir hann ýmist útí hægri handlegg og alveg útí fingurna eins og.. stjörnuljós, eða niður í hægri fótlegg. Stundum hefur verkurinn leitt uppí höfuð.
Í nótt, þegar ég var að bíða eftir að þetta myndi líða hjá, velti ég fyrir mér hvort ég myndi kannski ekki lifa árið 2009 af. Ég er ekki hrædd um það eins og staðan er núna, en ég fór samt að velta fyrir mér hvort það væri eitthvað sem mér fyndist ég verða að gera áður en ég dey. Ef ég dey á árinu 2009, það gerir t.d. endanlega útum þá hugmynd sem ég hafði um að hitta mann - nema það sé læknir eða útfararstjóri og þetta verði svona shotgun wedding. Mér datt í raun ekkert merkilegt í hug sem mér finnst ég verði að gera áður en ég gef upp öndina. Sennilega myndi ég bara reyna að eyða sem mestum tíma með krökkunum mínum og segja þeim hvað ég hef lært um lífið so far. Vonast til þess að það gagnist þeim eitthvað. Taka oft og mikið utanum þau og knúsa þau.
Þar sem ég trúi ekki á líf eftir dauðann óttast ég ekki að deyja, en mér fyndist ég vera að bregðast börnunum mínum. Ég mikla líka fyrir mér hvað ég þarf að taka til í miklu drasli ef ég er að fara að stimpla mig út for good.
Myndi ég documentera my demise á blogginu?
Já.. sennilega myndi ég gera það, þó ég geti auðvitað ekki fullyrt það fyrr en á það reynir. Ég hugsa að ég myndi gera það á gróteskan hátt.
Hvernig ætli síðasta færslan yrði? Ef ég myndi skrifa hana með þá vitneskju að ég myndi ekki skrifa fleiri og deyja frá henni. Það tekur mig ca 30 mínútur að sætta mig við að ég sé að deyja - ég geri þetta í hvert skipti sem ég fer í flug.
En ég er nú ekki dauð ennþá og þeir sem koma hingað þó þeir þoli mig ekki (ljótu fávitarnir) þá geta þeir svekkt sig á því að það eru mjög litlar líkur á að ég sé að fara nokkuð... lengra en inní eldhús að lemja Margeir í hausinn þangað til hann til að játar að hann sé búinn að vera að eitra fyrir mér.
Helvítis melurinn.
---
Anna says: ég tek þessa keppni í ræktinni
Anna says: rúlla þér upp
XX says: hehe
XX says: ekki vera of viss
Anna says: heyrðu það er rétt
Anna says: kannski ligg ég bara á spítala allt árið
Anna says: helvítis
Anna says: úr leik by default
XX says: victory by hospitalization
Anna says: lol
XX says: kannski er ég að eitra fyrir þér
Anna says: andskotinn..