www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Öskudagur
Föstudagur, 13. febrúar 2009

Við vorum að ræða um hvaða karakterar krakkarnir ætla að vera á öskudaginn. Frumburðurinn er að hugsa um að vera Óli F eins og hann var í skaupinu, með hárið útí loftið í jakkafötum og með latexhanska. Það verða sennilega nokkrir Geirar og Davíðar á vappi á öskudaginn ef marka má slúðrið í skólunum.

Einkasonurinn velti lengi fyrir sér hvað hann ætlaði að syngja og hvað hann ætti að vera og komst loksins að niðurstöðu. Hann ætlar að vera Fjallageit og syngja:

"Only seven days ago my mother put a spell on me... "

Lagið sem hann ætlar að hafa til vara er.. "Always look on the bright side of life".

Hann var nefnilega líka að velta fyrir sér að vera mamma hans Brian úr Life of Brian.

Mér finnst það reyndar snilldar hugmynd. Töluvert mikið auðveldara að útfæra það heldur en þessa geit - þó geitin sé auðvitað mikill snillingur.


| anna | 17:55 |
comments

Krakkarnir eru greinilega snillingar. Það hlaut að vera eitthvað í gangi, skildi ómögulega í öllum þessum grímubúningum á 10 evru tilboði í súpermarkaðnum um daginn. Það er hægt að fá geðveika búninga þarna á tíkall, Svarthöfði og allt. Var næstum búin að kaupa, en kreppan... atvinnuleysið... ekki kaupa óþarfa... æ, farin að drekka meira. Skál.

Nr. 1 | posted by: Kristín | 13.02.2009 | 22:00:04 | [+] |

Þau eru snillingar. Af hverju að kaupa búning þegar það er hægt að búa hann til?

Það er miklu skemmtilegra.

Nr. 2 | posted by: anna | 14.02.2009 | 9:42:11 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web