Fimmtudagur, 12. febrúar 2009
Eitt af því sem er búið að gera mig mjög reiða undanfarið er að orðspor landsins míns sé rjúkandi rúst vegna örfárra einstaklinga sem gengu um, að því er virðist, rænandi og ruplandi. Fólkið sem átti að stjórna gerði ekkert, það er öllum ljóst, langt út fyrir landssteinana. Hvurslax eiginlega þjóð er þetta?
En.. hvernig kæmi það út fyrir okkur, ef Íslenska þjóðin kæmist í fréttir erlendis, vegna þess að þjóðin tók höndum saman og samdi á wiki síðu fyrir opnum tjöldum nýjar reglur fyrir stjórnvöld til höfuðs spillingar á Íslandi?
Þar sem krafist er vandaðra vinnubragða og gagnsæi í stjórnsýslu. Fagmennsku, ábyrgðar, heiðarleika.
Ef tilraunin til að sameina þjóðina í þessu verkefni heppnast.. þetta yrði heimsfrétt.
Ég myndi hafa meiri trú á þjóð sem tekur svona á vandanum - en ég get náttúrlega bara talað fyrir mig..
Hvað finnst þér?