www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Konudagurinn - í gær
Mánudagur, 23. febrúar 2009

Hann says: það kærir sig engin kona um bensínstöðvablómavönd á konudaginn
Anna says: auðvitað ekki
Anna says: er konudagurinn í dag?
Hann says: jamm
Anna says: jahérna
Anna says: ég vissi það ekki
Anna says: hvað á ég að gera fyrir mig
Hann says: þú átt ekkert að gera
Hann says: karlinn á að gera eitthvað
Anna says: ég á ekki karl
Hann says: eða einhverjir karlar
Hann says: hefði nú alveg getað sent þér vönd en þú hefðir örugglega tekið það óstinnt upp
Anna says: awww en þú sætur
Anna says: ég hefði orðið brjáluð
Hann says: þú hefðir bitchslappað mig
Anna says: já ég hefði sennilega gert það
Hann says: grunaði það


| anna | 18:48 |
comments

Fara með bensínstöðvarblómvöndinn í blómabúð og kaupa fallegar umbúðir utanum hann.

Nr. 1 | posted by: Halli | 23.02.2009 | 19:45:20 | [+] |

Smart

Nr. 2 | posted by: anna | 23.02.2009 | 20:09:37 | [+] |

Svo má snúa þessu við næst;
Kaupa falleg blóm í fínni blómabúð og "óvart" koma með þau heim í N1 eða Olís plastpoka.

Sjá hvort það séu umbúðirnar, innihaldið eða hugarfarið sem skiptir máli.

Nr. 3 | posted by: Enginn | 24.02.2009 | 8:30:26 | [+] |

Það er hægt að segja "ég elska þig" á milljón vegu, bara ein þeirra er að gefa blóm. Ef ég væri svo blönk að ég hefði ekki efni á að kaupa blóm fyrir elskuna mína nema á bensínstöð, myndi ég sennilega gera eitthvað annað til að sýna fram á ást mína.

Mér finnst t.d. fallegri hugsun á bakvið blóm sem hafa verið tínd útí móa en bensínstöðvablóm. Viðkomandi lagði allavega á sig vinnu við að ná í þau og raða saman.

Bensínstöðvablóm eru hversdags. Ef hugurinn fylgir þá leggurðu örlítið meira en "hversdags" á þig fyrir sérstaka daga - eða hvað?

Nr. 4 | posted by: anna | 24.02.2009 | 17:50:15 | [+] |

Það er nú kannski ekki hlaupið að því að tína blóm út í móa "in the middle of freaking winter".

Ætli það sé plott hjá þessum blómasölum að hafa alla þessa daga um miðjan vetur? Bóndadaginn, konudaginn og valentínusardaginn.

Nr. 5 | posted by: Yngvi | 24.02.2009 | 23:15:43 | [+] |

Það er rétt, það er hinsvegar engin sem segir að blóm séu endilega rétta svarið heldur.

Nr. 6 | posted by: anna | 24.02.2009 | 23:23:27 | [+] |

Klikkaði alveg á blómunum, ég eldaði mat. Geri það reyndar oftast/alltaf, en í þetta skiptið vorum við bara tvö og maturinn sérvalinn. Marinerað lambafilet með útskorinni, bakaðri kartöflu, steiktum chili-og hlynsýróspkrydduðum gulrótum, léttsteiktum vorlauk og soðsósu. Og eftirréttur, auðvitað. Og rauðvín. Telur þetta?

Nr. 7 | posted by: Tumi | 24.02.2009 | 23:54:33 | [+] |

Varst þú ekki að tala um að ættleiða mig einhvertíma Tumi? Myndirðu hætta við ef kötturinn á heimilinu yrði fyrir slysi? angel

Þetta telur. Vá hvað ég væri til í að eiga mann sem gerir svona lagað fyrir mig.

Nr. 8 | posted by: anna | 24.02.2009 | 23:56:32 | [+] |

Við hjónin erum ábyggilega egypsk einhverstaðar langt aftur í ættum, og því eru öll skakkaföll heimiliskattanna meiriháttar trauma. Og já, ég sagði heimilisKATTANNA - og ef ég þekki þig rétt þá eru fjöldamorð, jafnvel á köttum (og jafnvel þótt þeir séu bara tveir sem teygir vissulega á hugtakinu fjöldamorð) eitthvað sem þú (vonandi) hikar við... Og hikir þú ekki við slíkt, þá verð ég að draga ættleiðingartilboðið til baka. Þetta er semsagt tilbrigði við Catch-22 situation hérna. Þú vilt ekki láta ættleiða þig nema kettirnir hverfi, ég vil ekki ættleiða þig ef þú lætur kettina hverfa.
Eigum við ekki bara að vona að við verðum bæði tiltölulega happí áfram, hvort í sínu lagi?
En mikið vona ég nú samt að þú finnir einhvern sem eldar oní þig, mér finnst eins og þú eigir það skilið. Þótt Jesú sé ágætur til síns brúks, þá verða fiskur og brauð óneitanlega hálfleiðingjarnt fæði til lengdar...

Nr. 9 | posted by: Tumi | 25.02.2009 | 2:18:27 | [+] |

uh, nema hann verði þeim mun duglegri við rauðvínsframleiðsluna, auðvitað - þá skiptir svo sem engu máli hvað er í matinn...

Nr. 10 | posted by: Tumi | 25.02.2009 | 2:20:41 | [+] |

Alan gleymdi konudeginum þetta árið. Það var kom svo í ljós þegar systir hans fór að skamma hann fyrir tillitsleysið að frú Alan hafði gleymt honum líka. Þar munaði mjóu.

En þetta mun ekki gleymast aftur, þökk sé Google Calendar.

Nr. 11 | posted by: AlanHudson | 25.02.2009 | 13:57:49 | [+] |

Ég drekk reyndar sjaldan rauðvín en mér þykir vænt um að þér finnist ég eiga mann skilið sem eldar fyrir mig.

Alan! ALAN! Hún á ekki að muna eftir konudeginum, ÞÚ átt að gera það. Og hafðu eitt í huga: betra er seint en aldrei.

Nr. 12 | posted by: anna | 25.02.2009 | 14:04:04 | [+] |

Ég eldaði imróvíseraða karríkássu með chiltepin pipar á sunnudaginn. Dugar það sem konudagsblómaleysisyfirbót?

Nr. 13 | posted by: AlanHudson | 25.02.2009 | 14:09:00 | [+] |

Þetta fer náttúrlega allt eftir því hvað þér finnst konan þín eiga skilið. Þú ert hæfari til að svara spurningunni en ég smile

Nr. 14 | posted by: anna | 25.02.2009 | 14:21:13 | [+] |

Chiltepin klikkar nú ekki.

Nr. 15 | posted by: AlanHudson | 25.02.2009 | 16:00:10 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web