www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Lokaumræður
Fimmtudagur, 05. febrúar 2009

Á fundi Málefnahóps var lokið við að fara yfir stefnu Lýðveldisbyltingarinnar. Hún hefur nú verið birt á forsíðu vefsins og auglýst undir fundir og kosningar, á póstlista og Facebook og þar með lögð fram til formlegrar kynningar.

* Kallað er eftir athugasemdum um hvern lið stefnunnar og er frestur til að senda inn athugasemdir til klukkan tólf á hádegi, föstudaginn 6. febrúar, 2009.
---

Hér fyrir neðan er hægt að fara beint inná umræður allra stefnumála, lesa og koma með gagnrýni fyrir kosningar um stefnumálin.

Vald til þjóðarinnar og framsal valdheimilda
sjá: http://tinyurl.com/c6yyks

Jafnræði í alþingiskosningum
sjá: http://tinyurl.com/d5ol5w

Ráðningatími og launakjör ráðamanna
sjá: http://tinyurl.com/ctmzlu

Skipting valds
sjá: http://tinyurl.com/b23sdb

Gagnsæ stjórnsýsla
sjá: http://tinyurl.com/bv9oeb

Grundvallar mannréttindi tryggð
sjá: http://tinyurl.com/bsnv25


* Að lokinni kynningarumræðu verða athugasemdir metnar af málefnahóp, stefnan uppfærð í samræmi við athugasemdir og send í kosningu frá klukkan 15 föstudaginn 6. febrúar.

* Kosningu lýkur klukkan tólf á hádegi, sunnudaginn 8. febrúar.
----

Jafnvel þó við séum búin að vinna þetta þannig að við höfum haft allt opið og allir sem vilja geta tekið þátt, þá erum við komin lengra í stefnumótunarvinnu en litlir hópar fólks sem er búið að vera að vinna í þessu mánuðum saman.

Ég vonaðist til að fólk myndi taka wiki vefnum fagnandi og leggja hönd á plóginn, og mér finnst flippað hvað þetta gengur vel. Mér finnst líka ferlega fyndið hvað mörg af málunum okkar eru komin inná borð hjá stjórnmálaflokkunum. Mjög gott. Það er samt ekki nóg að tala um hlutina, það þarf að gera þá líka.

Ég held að ekkert af því sem við setjum fram sé ósanngjarnt.


| anna | 0:09 |
comments

Þetta er aðdáunarvert framtak anna!

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 5.02.2009 | 9:40:08 | [+] |

Takk Alan. Er eitthvað þarna sem þú myndir berjast gegn eða kærir þig ekki um að sjá gerast?

Nr. 2 | posted by: anna | 5.02.2009 | 11:50:55 | [+] |

As he shifted into the darkened lounge, Bond couldn't help but notice a lithe brunette in a cocktail dress smoking a sobranie in an opera-length cigarette-holder. She stared intently at Bond.
"Good evening, Mr Bond, I'm Anna Doteyes."
"Why, of course you are."
Bond smiled pleasantly, not letting his guard down. She could well be a SMERSH operative; in fact, he expected as much.
Her vaguely Eastern European or German accent bothered him. He could not quite place it; it sounded in turns both seductively soft and impossibly harsh. Strange aspirated consonants hissed forth in between unadorned simple vowels.
"What are you doing in Iceland, Mr Bond?"
Bond reflected in a brief flash of recollection on his mission: infiltrate the inner circle of the Republican Revolution, find their leader and assassinate him. Never before would his license to kill have been of such great service to The Crown.
"I'm here for my pleasure. Taking advantage of the low Krona."

Nr. 3 | posted by: James Bond | 5.02.2009 | 14:05:02 | [+] |

Þið eruð alveg frábær.
Ég hef ekkert lagt til málanna sjálf, eiginlega skammast mín, en maður bara getur ekki gert allt sko...

Nr. 4 | posted by: Kristín | 5.02.2009 | 14:31:14 | [+] |

Ég hef ekki lesið þetta nógu vel til að geta komið með einhverjar athugasemdir eða aðfinnslur. Eins og staðan er í dag þá er ég hins vegar á þeirri skoðun að allar breytingar séu til góðs. Þær hreyfa amk við kerfinu, Stöðnun er eitthvað sem við þurfum allra síst á að halda.

Það eina sem ég myndi leggja áherslu á er að hlutirnir séu afskaplega skýrt orðaðir og settir fram. T.d. varðandi þjóðaratkvæðagreiðslur (af því að það er efsti linkurinn), þá þarf bæði að tiltaka lágmarkshlutfall atkvæðisbærra manna sem óska hennar til að hún fari fram (það er bent á það) en það þarf líka að segja hvernig þeir fara fram á það, hvort það er með undirskriftalistum á pappír eða með einhverjum öðrum tryggum hætti. Allt sem ekki er er kyrfilega frágengið verður örugglega ásteytingarsteinn síðar, sbr. þruglið um vald forseta þessi misserin.

Nr. 5 | posted by: AlanHudson | 5.02.2009 | 19:37:31 | [+] |

Ég verð vissari með hverjum degi sem líður, að það er gífurleg þörf á úthreinsun í íslenskum stjórnmálum.

Stjórmálamenn hafa staði í löngum röðum, afsakað sig framan í þjóðina og sagt "já, við fórum geyst, en höfum núna lært af reynslunni". Það er kjaftæði. Helvítis meðvriknin og siðblindan heldur áfram eins og ekkert hefur í skorist.

þess vegna er ég í vafa um hvort annars gott afl eigi að leggja niður þegar einu afmörkuðu markmiði er náð? Á þá að skila þingsætum, á að sameinast öðrum?

Nr. 6 | posted by: Árni | 5.02.2009 | 23:10:18 | [+] |

Það þarf að leggja þetta niður vegna þess að það þarf að kjósa aftur og eftir nýju reglunum. Þannig gætu kjósendur "rekið" mikið af fólki sem hefur hvort sem er ekkert gert af viti á þingi.

Margir sem eru að vinna í þessu hafa engan áhuga á að fara útí pólitík, þar á meðal ég. Ég hef hinsvegar ekki nokkra trú á því að pólitíkusarnir séu hæfir til að setja sér skynsamar reglur sjálfir. Ef þeir væru hæfir, þá hefði eftirlaunaruglið aldrei farið í gegn.

Nr. 7 | posted by: anna | 6.02.2009 | 9:49:59 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web