Sunnudagur, 15. febrúar 2009
Eftirfarandi bréf var sent til allra þingmanna og fréttamiðla núna rétt áðan. Það verður fróðlegt að sjá hvort þessum einföldu spurningum um stjórnlagaþing verður svarað. Ég veit ekki betur en að þessir hlutir hafi verið ræddir þegar þessi stjórnarmyndun átti sér stað.
-----
Ágæti viðtakandi,
Meðfylgjandi er fyrirspurn til þingflokka stjórnmálaflokkanna um stjórnlagaþing frá meðlimum Lýðveldisbyltingarinnar. Meðlimir Lýðveldisbyltingarinnar krefjast svara við meðfylgjandi spurningum fyrir 19. febrúar á netfangið lydveldi@lydveldisbyltingin.is. Rétt er að taka fram að öll svör verða birt á vef hreyfingarinnar.
Fulltrúar hreyfingarinnar munu afhenda formönnum þingflokka útprentað eintak af þessari fyrirspurn mánudaginn 16. febrúar, 2009.
Prentvæn útgáfa:
http://wiki.lydveldisbyltingin.is/images/a/ac/Fyrirspurn15feb09.pdf
---
Fyrirspurn til þingflokka stjórnmálaflokkanna um stjórnlagaþing:
Lýðveldisbyltingin fagnar hugmyndum stjórnmálaflokkanna um stjórnlagaþing en krefst þess að fá skýr svör við eftirfarandi spurningum til að geta metið hvort flokkunum sé alvara. Einnig hvort slíkt þing hefði ótvírætt umboð til að gera tillögur að nauðsynlegum breytingum sem lagðar yrðu í dóm almennings með þjóðaratkvæðagreiðslu.
Lýðveldisbyltingin krefst skýrra svara frá stjórnmálaflokkunum um eftirfarandi:
- Verður frumvarp til laga um stjórnlagaþing lagt fram af flokknum eða mun það hljóta stuðning flokksins fyrir þorraþræl, þann 21. febrúar 2009?
- Hvernig vill flokkurinn að staðið verði að vali fulltrúa á stjórnlagaþing?
- Vill flokkurinn að tillögur stjórnlagaþings um breytingar á stjórnarskrá verði lagðar undir dóm almennings með þjóðaratkvæðagreiðslu?
- Vill flokkurinn að lög um stjórnlagaþing verði samþykkt fyrir kosningar 25. apríl 2009?
- Fá lögin um stjórnlagaþing einróma stuðning flokksins eftir kosningar 25. apríl 2009?
- Hvaða dag áætlar flokkurinn að stjórnlagaþing hefjist?
- Hversu lengi áætlar flokkurinn að stjórnlagaþing standi yfir?
- Vill flokkurinn að hreyfingum á borð við Lýðveldisbyltinguna verði gert kleift að hafa áhrif á lagafrumvarp um fyrirkomulag stjórnlagaþings?
Ríkisstjórnarflokkarnir ákváðu kjördag þann 25. apríl, sem er óvenju stuttur fyrirvari. Það er því lýðræðisleg skylda stjórnmálaflokkanna að svara þessum grundvallarspurningum til að hindra ekki almenning í að nýta lýðræðislegan rétt sinn til að hafa áhrif í kosningum.
Lýðveldisbyltingin óskar svara við þessum mikilvægu spurningum og að svörin verði send á netfangið lydveldi@lydveldisbyltingin.is eigi síðar en 18. febrúar 2009.
Framboð til Alþingis
Geti flokkarnir ekki veitt skýr svör um afstöðu sína til stjórnlagaþings er aðeins ein leið fær fyrir Lýðveldisbyltinguna til að koma á þeim lýðræðisbreytingum sem almenningur kallar eftir. Sú leið er að bjóða fram til Alþingis undir eigin nafni og koma á breytingum í lýðræðisátt, m.a. með breytingum á stjórnarskrá og kosningalögum. Að því loknu yrði hreyfingin lögð niður.
Um Lýðveldisbyltinguna
Lýðveldisbyltingin er öflug hreyfing venjulegra Íslendinga og opin fyrir alla Íslendinga um allan heim. Markmið hennar er að koma á breytingum sem bæta samfélag okkar með því að endurskilgreina ábyrgð, auka gagnsæi, réttlæti og jafnrétti og koma þannig á lýðræðisbreytingum á stjórnskipan íslenska lýðveldisins. Meginbreytingarnar felast í því að koma á betra jafnvægi í aðgreiningu löggjafarvalds, framkvæmdarvalds og dómsvalds og styrkja þannig undirstöður lýðræðisins með þrískiptingu valdsins.
Undanfarnar vikur hefur Lýðveldisbyltingin unnið sleitulaust að því að móta hugmyndir að breyttri stjórnskipan íslenska lýðveldisins og hefur á að skipa áhugasömum einstaklingum sem eru tilbúnir til að leggja á sig þrotlausa vinnu við að endurreisa lýðræðið á Íslandi með þátttöku á stjórnlagaþingi, opinberum og opnum vettvangi.
Lýðveldisbyltingin
- endurreisn lýðræðis
http://www.lydveldisbyltingin.is
Afrit sent til:
-Alþingismanna
-
Fjölmiðla
-
Almennings
--
www.lydveldisbyltingin.is