www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Fyrir svefninn
Sunnudagur, 01. febrúar 2009

Það vita allir að það þarf að breyta leikreglunum, annars verður þetta eins. En fólk hefur ekki trú á að neinn geti breytt. Fólk treystir engum. Það trúir engin að neinn geri neitt nema hann sé að vinna að sínum einkahagsmunum í leiðinni. Er svo ótrúlegt að það sé raunverulega til fólk á Íslandi sem hugsar ekki þannig?

Ég sagði þeim að við getum víst breytt ef við stöndum saman.

Á leiðinni heim rann upp fyrir mér að ég bý á landi þar sem meirihlutinn styður mótmæli.. en gerir ekkert. Meirihlutinn vildi ríkisstjórnina frá.. en meirihlutinn gerði ekkert.

Meirihlutinn vill breytingar.. en meirihlutinn..

Á þessi þjóð einhvern séns?


| anna | 4:59 |
comments

Nei, ósköp lítinn. Sjáðu bara fylgið við B núna. Vindáttin þurfti bara aðeins að snúast, svona brot úr gráðu, og þá jókst fylgið yfir 10%.

Það mun nákvæmlega ekkert breytast.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 1.02.2009 | 8:52:06 | [+] |

Oh, nú fer um mig hrollur. Er þetta svona svart? Er vindurinn bara að fara úr fólki? Verður næsta ríkisstjórn samsett úr tveimur af flokkunum fjórum án nýrra afla?

Nr. 2 | posted by: Kristín | 1.02.2009 | 10:03:48 | [+] |

Skammdegisþunglyndi?
Auðvitað á þessi þjóð séns. Hugsaðu hvað hefur skeð síðustu mánuðina. Allir þurfa ekki að vera virkir, það dugar ef meirihlutinn styður fólkið sem vinnur að breytingum. Við verðum að trúa á framtíðina, annars getum við sleppt því að fara á fætur á morgnanna. smile

Nr. 3 | posted by: eirikur | 1.02.2009 | 12:06:25 | [+] |

Ég vona að þú hafir rétt fyrir þér Eiríkur.

Nr. 4 | posted by: anna | 1.02.2009 | 21:20:05 | [+] |

Þetta með ríkisstjórnina er samblanda af bjartsýniskasti og pólitískri sefjun.

Hvað ætli sé næst? Hringt í Kurt Russell og Steven Seagal til að bjarga málunum?

Það er hægt að snúa málum við, en það vantar enn þá hundahreinsum sem til þarf.

Nr. 5 | posted by: Árni | 1.02.2009 | 21:42:22 | [+] |

Groundhog Day í dag. Í víðum skilningi wink

Nr. 6 | posted by: Árni | 2.02.2009 | 18:12:53 | [+] |

Hvað ætli myndi gerast ef ég myndi bjóða mig fram sem formann sjálfstæðisflokksins?

Nr. 7 | posted by: anna | 2.02.2009 | 19:31:58 | [+] |

Que?

Nr. 8 | posted by: Árni | 2.02.2009 | 20:17:14 | [+] |

Nei ég segi bara svona. Hvað heldurðu að ég nenni að vera formaður í einhverjum flokk?

Nei takk.

Margeir yrði samt kátur. Færi Davíð kannski að koma í mat þegar við bjóðum honum.

Það gengur bara ekki að ofdekra kvikindið.
Það er bara rugl, RUGL segi ég!

Nr. 9 | posted by: anna | 3.02.2009 | 0:56:28 | [+] |

Núna eru þeir farnir að rífast um hvalveiðar, mikilvægasta mál íslandssögunnar, þökk sé hálfvitanum Einari Guðfinssyni og framsóknarhyskinu. Þetta fólk er algerlega ófært um að stjórna.

Það þyrfti ekki að segja mér það tvisvar að D hefði gert þetta gagngert til að B gæti sprengt bráðabirgðastjórnina.

Hvers á maður eiginlega að gjalda?

Nr. 10 | posted by: AlanHudson | 3.02.2009 | 22:12:37 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web