www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ein komma ein í óumbeðin yfirdrátt
Fimmtudagur, 26. febrúar 2009

Ég lét fella niður heimildir í tveimur bönkum nýlega og fagnaði því að ég væri ekki með yfirdrátt. Þegar ég loggaði mig inná heimabankann rétt áðan brá mér þegar ég sá stöðuna, enda þótt ég vissi að ég ætti peninga þá vissi ég ekki til þess að ég ætti svona mikið. Ég loggaði mig inná reikninginn í hinum bankanum og rak upp stór augu. Samtals er búið að úthluta mér einni komma einni milljón í óumbeðin yfirdrátt - án yfirdráttarheimildanna eru báðir reikningarnir í plús.

Ljóta ruglið.

Ég var að senda tölvupóst á báða bankana og biðja um að heimildirnar verði felldar niður. Er yfirdráttur svo landlægur andskoti að það er ekki vinnandi vegur að losa sig við hann - þó maður sé ekki í mínus!


| anna | 21:27 |
comments

Þetta eru söluaðferðir sem eiga sér hliðstæðu.

Þetta er annars gott dæmi um tvöfalt siðferði bankanna; annars vegar þykjast þeir "ráðleggja" fólki (= sölumennska) þegar allt er komið í hnút. Á hinn bóginn er ansi auðvelt að koma sjálfum sér í klandur með hjálp bankanna.

Það er eins og maður hafi horft á of margar bíómyndir þar sem hliðstæðunum bregður fyrir.

Eitt fyrsta peningaráðið sem kom fram í erlendum viðskiptablöðum var að setja spariféð í sokk (minni kynslóð nægir stakur sokkur úr sokkaflóru barnanna) og geyma á leyndum stað.

Verst af öllu, af hverju er maður svona graf alvarlegur í kjölfar hruns?

Nr. 1 | posted by: Árni | 26.02.2009 | 21:46:21 | [+] |

Æ ég endist nú aldrei lengi í að vera graf alvarleg, ég er hinsvegar pissed off yfir því að það sé búið að klína á mig þessum heimildum sem ég bað bara ekkert um.

Í öðrum bankanum, sem ég var hjá þegar ég skildi og var mjög blönk á tíðum, þá þurfti ég að hálfpartinn grátbiðja um aukna heimild til að mæta Lín blóðsugunni eitt haustið. Það var bara engin stemmari fyrir að gera neitt voðalega mikið fyrir mig og þá þurfti ég á þessu að halda.

Í haust er ég endanlega laus við Lín líka.

Þegar það gerist ætla ég út að borða.

Nr. 2 | posted by: anna | 26.02.2009 | 21:58:22 | [+] |

Anna, þú ert ekki alvarleg. Ekki þannig alvarleg. wink Að ég held?

Þetta er lögmál um framboð og eftirspurn. Bankana vantar aura, og bjóða því upp á það sem kostar okkur pening, en er tekjulind fyrir þá.

LÍN er að verða dálítið eitruð pilla. Ég hef alltaf litið á þetta sem einskonar skatt. Greiði aukalega til samfélagsins fyrir að hafa fengið "styrk" frá ríkinu til náms. Sokkurinn verður tæmdur í þá hít, vonandi líka tilefni til að fara út að borða.

Nr. 3 | posted by: Árni | 26.02.2009 | 22:07:02 | [+] |

Þú heldur rétt - held ég hehehe

Mér finnst þetta ótrúlega lélegt þegar búið er að biðja um að fella heimildirnar niður.

Og já, það verður sannarlega tilefni til að fagna þegar Lín blóðsugan er ekki lengur hluti af mínu lífi. Sannarlega.

Nr. 4 | posted by: anna | 26.02.2009 | 23:06:41 | [+] |

Ég er í æviáskrift hjá LÍN og Íbúðalánasjóði. Stöku sinnum dreymir mig um að varða ríkur og þá sé ég fyrir mér að ég borgi upp hvort tveggja. Verði skuldlaus. Ég er meira að segja búinn að búa mér til plan sem gengur út á að gera mig ríkan. Ég ætla að kaupa mér miða í Víkingalottóinu þegar potturinn er tvöfaldur - og vinna!
Einhvern daginn mun ég framkvæma þetta. Kaupa miðann. Ég skal...

Nr. 5 | posted by: Tumi | 27.02.2009 | 0:48:56 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web