Héðinn Björnsson í VG sendi fyrirspurn til Lýðveldisbyltingarinnar og spurði álits um hvenær við vildum kjósa. Hann sendi fyrirspurnina mjög seint að kvöldi (sjá link fyrir neðan) og gaf frest til að svara til hádegis næsta dag.
Að hafa kosningar í okt eða nóv hefði amk engu breytt fyrir þá sem duttu út af kjörskrá þetta árið. Það hefði líka þurft breytingar á lögum varðandi þetta atriði.
Gerum a.m.k. okkar til að sem flestir fái að taka þátt í þessum kosningum.
Mér finnst vefurinn og konceptið af Lýðveldishreyfingunni mjög flott en fyrst það á að kjósa sérstakt stjórnlagaþing, ætti þetta ekki betur við þar ? Mætti kannski hugsa sér að áhugasamir kæmu sér saman um að kjósa þig sem fulltrúa ?
Það á alveg eftir að koma í ljós hvort menn standi við stjóru orðin með stjórnlagaþing. Við vorum að senda fyrirspurn um málið og það verður fróðlegt að sjá hverju flokkarnir svara. Ég hef ekki myndað mér skoðun um hvernig ég myndi vilja sjá valið inná stjórnlagaþing, hallast helst að því að hafa það random úr þjóðskrá. Ég get lofað þér að ég er ekki að fara í eitthvað prófkjör eða kosnaðarsama kosningabaráttu til að komast inná stjórnlagaþing. Bíðum og sjáum.
Lýðveldisbyltingin getur orðið brilliant concept ef hún fær almenning á bak við sig og þá er ég að meina venjulegt fólk sem ætlar sér ekki að setjast á þing. So far hefur þetta ekki kostað krónu og öll vinna unnin í sjálfboðavinnu og ég var ekkert viss um að þetta myndi ganga upp, en þetta er að virka.
Ef Íslendingar vilja alvöru breytingar, þá þýðir ekkert að kalla eftir þeim frá stjórnvöldum, það er orðið löngu ljóst. Við verðum einfaldlega að vinna að þessum breytingum sjálf. Og það eiga allir erindi. Allir.
Fylgstu með. Stjórnlagaþing eða ekki stjórnlagaþing, við erum með spil á hendi sem við munum setja út á næstu dögum sem gæti breytt stjórnlagaþingsstöðunni nokkuð.
Það er nefnilega kjaftæði að þetta þurfi að taka 18 mánuði.
Nr. 6 | posted by: anna |
15.02.2009 | 22:33:28 | [+] |