Ég hef legið eitthvað asnalega í nótt, er að drepast aftaní hálsinum.
Undanfarið á ég til að verða svo deprimeruð af því að tala við fólk. Fólk sem virðist halda að það sé hægt að beita sömu aðferðum áfram og þeim sem brugðust okkur. Veit einhver hvernig staðan er? Í alvöru.
Veit einhver hvað við skuldum mikið?
Hvernig er hægt að koma með raunhæf plön um hvernig við ætlum að bregðast við ef engin veit hversu slæmt þetta er?
Er krónan ónýt? Eða er eitthvað annað ónýtt?
Ef ég ræð til mín tölvunarfræðing sem reynist arfaheimskur - er lausnin þá að kaupa nýja tölvu fyrir hann?
Hvernig gengur þjóðunum sem tóku upp Evru? Hefur einhver heyrt success sögur?
Til að kúpla mig útúr svona pælingum er ég með frábært náttúrumeðal sem heitir diskó. Hvernig er hægt að vera í fýlu og hlusta á svona snilld?
Á þessu ári ætla ég að koma mér í form. Á næsta ári ætla ég að læra að dansa tangó. Er einhver out there sem langar að læra tangó með mér?
Má ekki vera mikið hærri en 180.
| anna | 21:58 |
comments
"Ef ég ræð til mín tölvunarfræðing sem reynist arfaheimskur - er lausnin þá að kaupa nýja tölvu fyrir hann?"
-- Þetta er reyndar mjög vinsæl aðferð, er oft kallað KIWI Kill it With Iron. Kaupa bara stærri og öflugri tölvu til að keyra forrit sem eru illa gerð og hægvirk. Venjulega er það bara gálgafrestur, það er miklu líklegra til varnalegs árangurs að finna hvar forritin eru biluð og laga það.
Yngvi: nákvæmlega! Það þarf að finna orsökina, ekki endalausa plástra á afleiðingarnar.
Eitt í einu enginn. Ég fór á árshátíð um helgina og var ónýt eftir einn dans. Fyrst í form, svo tangó.
Nr. 3 | posted by: anna |
9.02.2009 | 0:14:14 | [+] |
Þú hefur sennilega umgengist undanfarið of mikið af fólki sem veit hvernig á að bjarga heiminum, en enginn er auðvitað sammála um leiðirnar, nema bara að þeirra leið er best. En tangó, það er frábær hugmynd!