www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ályktun um Stjórnlagaþing
Miðvikudagur, 11. febrúar 2009

Á opnum fundi Lýðveldisbyltingarinnar í kvöld, þriðjudaginn 10. febrúar frá kl. 21:00 - 23:00 var ákveðið að senda stjórnvöldum og stjórnmálaflokkum opið bréf með ályktun um Stjórnlagaþing. Fundurinn var auglýstur með löglegum fyrirvara þannig að tillögur var hægt að senda fyrir fundinn eða á fundinum. Fyrsta útgáfa ályktunarinnar er hér með
sett hingað inn til að hægt sé að rökræða hana. Fundarstjóra skal skipa fyrir þennan rökræðuþráð og rökræður skulu standa í sólarhring.

Fundarstjóri getur á þeim tíma tekið saman athugasemdir einu sinni eða oftar og birt breytta ályktun. Rökræður halda þá áfram og að sólarhring liðnum skal taka saman breytta ályktun. Þá fer fram önnur lota umræðna um ályktun og að öðrum sólarhring liðnum tekur fundarstjóri aftur saman breytta ályktun. Þá fer hún í kosningu.

Ályktunin og umræður:
http://tinyurl.com/bjuqwu

----

Það er svo að frétta af Margeiri að hann er byrjaður að smíða styttu niðrí hjólageymslu af Davíð sem hann vill setja fyrir framan Seðlabankann. Fékk að nota parketafganga sem einhver skildi eftir.

Ég læt vita hvernig gengur.


| anna | 0:36 |
comments

Dáist að ykkur sem eruð að fullu að virkja lýðveldisbyltinguna. Tel þetta vera nauðsynlegan vinkin í umræðurnar sem eru í gangi í þjóðfélaginu og ánægjulegt þegar fólk gerir hlutina frekar en að mogablogga bara um þá.

Þýðir þó ekki að ég sé endilega sammála öllu sem lýðveldisbyltingin stendur fyrir en engu að síður virði ég það og tel það mjög vel eiga rétt á sér happy

Nr. 1 | posted by: Rúnar Ágúst | 11.02.2009 | 3:28:15 | [+] |

Takk Rúnar Ágúst. Ein smá spurning, hverju ertu ósammála og af hverju kemur þú því ekki á framfæri ef þú telur að við séum á rangri leið?

Nr. 2 | posted by: anna | 11.02.2009 | 12:14:15 | [+] |

æ, Anna, takk! ég hló svo mikið að Margeiri og parketafgöngunum. veit það er ljótt að hlæja að ófríðum dvergum (sem getur átt við handverksmanninn og fyrirmyndina í þessu tilfelli)

Nr. 3 | posted by: baun | 11.02.2009 | 16:58:09 | [+] |

Sagði ekki að mér fyndist þið vera á rangri leið, heldur finnst mér ykkar leið eiga rétt á sér.

Við skulum bara segja að mínar skoðanir að hyllast ekki ykkar nægjanlega mikið og þær breytingar sem orðið hafa í þjóðfélaginu uppá síðkastið geri það heldur ekki.

Engu að síður finnst mér allar umræður og hugmyndir þarfar.

Nr. 4 | posted by: Rúnar Ágúst | 12.02.2009 | 2:30:25 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web