www.anna.is
ravings of a lunatic í febrúar 2009
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Fyrir svefninn
Sunnudagur, 01. febrúar 2009

Það vita allir að það þarf að breyta leikreglunum, annars verður þetta eins. En fólk hefur ekki trú á að neinn geti breytt. Fólk treystir engum. Það trúir engin að neinn geri neitt nema hann sé að vinna að sínum einkahagsmunum í leiðinni. Er svo ótrúlegt að það sé raunverulega til fólk á Íslandi sem hugsar ekki þannig?

Ég sagði þeim að við getum víst breytt ef við stöndum saman.

Á leiðinni heim rann upp fyrir mér að ég bý á landi þar sem meirihlutinn styður mótmæli.. en gerir ekkert. Meirihlutinn vildi ríkisstjórnina frá.. en meirihlutinn gerði ekkert.

Meirihlutinn vill breytingar.. en meirihlutinn..

Á þessi þjóð einhvern séns?


| anna | 4:59 | permalink | comments (10) |
21
Þriðjudagur, 03. febrúar 2009

Hún opnaði 13. janúar og á forsíðu stóð eitthvað í átt við: "Setjið inn efni hér".

That was it.

Nú, 21 degi síðar, lítur hún svona út www.lydveldisbyltingin.is - passar akkúrat því við vorum að flytja hana á miklu öflugri server svo nú hættir hún að detta út þegar álagið er mikið.

Farðu og kíktu á stefnumálin á forsíðunni og kannaðu hvort þér finnst við vera á réttri leið.


| anna | 0:02 | permalink | comments (3) |
a eða b?
Miðvikudagur, 04. febrúar 2009

Hvað ef við leyfum fólki bara að velja:

a) fólk sem vill borga fyrir spúlið og brotnar rúður í Alþingishúsinu vegna mótmæla gegn ríkisstjórn sem fólk taldi vanhæfa. (ca 12 milljónir)

b) fólk sem vill borga skuldirnar sem fráfarandi stjórn leyfði mönnum að safna upp og láta falla á þjóðina. (ca 1800 milljarðar)

Þegar allir eru búnir að velja a eða b, er hægt að útbúa greiðsluseðla og byrja að innheimta. a fólkið hjálpast að við að borga 12 milljónirnar og b fólkið hjálpast að við að borga 1800 milljarðana. Allir sáttir.

Þetta heitir að "put your money where your mouth is".

Sennilega yrði þetta líka í fyrsta og eina skiptið sem ég myndi flokkast sem a-manneskja.


| anna | 23:21 | permalink | comments (1) |
Lokaumræður
Fimmtudagur, 05. febrúar 2009

Á fundi Málefnahóps var lokið við að fara yfir stefnu Lýðveldisbyltingarinnar. Hún hefur nú verið birt á forsíðu vefsins og auglýst undir fundir og kosningar, á póstlista og Facebook og þar með lögð fram til formlegrar kynningar.

* Kallað er eftir athugasemdum um hvern lið stefnunnar og er frestur til að senda inn athugasemdir til klukkan tólf á hádegi, föstudaginn 6. febrúar, 2009.
---

Hér fyrir neðan er hægt að fara beint inná umræður allra stefnumála, lesa og koma með gagnrýni fyrir kosningar um stefnumálin.

Vald til þjóðarinnar og framsal valdheimilda
sjá: http://tinyurl.com/c6yyks

Jafnræði í alþingiskosningum
sjá: http://tinyurl.com/d5ol5w

Ráðningatími og launakjör ráðamanna
sjá: http://tinyurl.com/ctmzlu

Skipting valds
sjá: http://tinyurl.com/b23sdb

Gagnsæ stjórnsýsla
sjá: http://tinyurl.com/bv9oeb

Grundvallar mannréttindi tryggð
sjá: http://tinyurl.com/bsnv25


* Að lokinni kynningarumræðu verða athugasemdir metnar af málefnahóp, stefnan uppfærð í samræmi við athugasemdir og send í kosningu frá klukkan 15 föstudaginn 6. febrúar.

* Kosningu lýkur klukkan tólf á hádegi, sunnudaginn 8. febrúar.
----

Jafnvel þó við séum búin að vinna þetta þannig að við höfum haft allt opið og allir sem vilja geta tekið þátt, þá erum við komin lengra í stefnumótunarvinnu en litlir hópar fólks sem er búið að vera að vinna í þessu mánuðum saman.

Ég vonaðist til að fólk myndi taka wiki vefnum fagnandi og leggja hönd á plóginn, og mér finnst flippað hvað þetta gengur vel. Mér finnst líka ferlega fyndið hvað mörg af málunum okkar eru komin inná borð hjá stjórnmálaflokkunum. Mjög gott. Það er samt ekki nóg að tala um hlutina, það þarf að gera þá líka.

Ég held að ekkert af því sem við setjum fram sé ósanngjarnt.


| anna | 0:09 | permalink | comments (7) |
The future is now
Laugardagur, 07. febrúar 2009

NORVILLE
'Blue Letter. From: the desk of Waring Hudsucker. To. Sidney J. Mussburger. Regarding. My demise. Dear Sid. By the time you read this, I will have joined the organization upstairs -- an exciting new beginning. I will retain fond mem-memor...

HUDSUCKER
Memories

NORVILLE
..of the many years you and I have spent--'

HUDSUCKER
Yeah, yeah, it's the standard resignation boilerplate -- go down to the second paragraph.

NORVILLE
'You have no doubt been wondering why I have decided to end my tenure both at Hudsucker, and here on Earth. Granted, from the standpoint of our balance sheet and financials, sure, sure, we're doing fine. But in my personal life Sid, I have made grave errors. I've let my success become my identity. I have foolishly played the great man and watched my life become more and more empty as a result. My vanity drove away she who could've saved me. Oh yes, I loved a woman once, Sid, as you well know. A beautiful, vibrant lady, an angel who in her wisdom saw fit to choose you instead of I... Mr. Hudsucker?

HUDSUCKER
[crying] Skip this part. [blows his nose] Next page. [stops crying] Next page!

NORVILLE
'...this brings me to our company Sid, and its future. Our next president must have the liberty I have had as owner to experiment and even fall..

HUDSUCKER
Fail

NORVILLE
..without fear of the whims of the stockholders or an impatient board, the new president must be free to fall..

HUDSUCKER
Fail!

NORVILLE
..and learn. To fail..

HUDSUCKER
Fall!

NORVILLE
..and rise again. By applying what he has learned. Such is business. Such is life. Accordingly, I hereby bequeath all of my shares in Hudsucker Industry to whomever you and the board shall elect as to succeed me as president. I assume it will be you Sidney, if not, if the board should choose someone else to be the new president, then.. then..'

HUDSUCKER
-- tough titty toenails! [roars with laughter] ...That'll show the bastard! [laughs]

HUDSUCKER
...Okay, go ahead.

NORVILLE
'...then I urge you to work with the new president and to keep giving Hudsucker Industries all your energies -- but not your soul. For while we must strive for success, we must not worship it. Remind him of what he needs to be reminded, that failure should never lead to despair. That despair looks only for the past in business and in love..

HUDSUCKER
..the future is now.

NORVILLE
The future.. is now.


| anna | 1:06 | permalink | comments (2) |
Blaðrandi stéttir
Laugardagur, 07. febrúar 2009

Blaðamenn, stjórnmálamenn og margir sprenglærðir menn teljast til svokallaðra "blaðrandi stétta". Þetta er fólk sem talar mikið fram og til baka en virðist ekki koma jafn miklu í verk. Margir sem tilheyra hinum blaðrandi stéttum hafa þó heilmikið til síns máls, aðrir virðast tala mest útum óæðri endann á sér.

Á Íslandi eru líka hinar vinnandi stéttir, sem eru gjarnari á að láta verkin tala.

Ég held að það væri gæfuspor að ýta hinum blaðrandi stéttum út af Alþingi og kjósa frekar inn fólk sem segir hlutina í færri orðum og skiljanlegri. Fólk sem hefur manndóm í að viðurkenna þegar það hefur rangt fyrir sér og reyna að bæta fyrir það. Fólk sem kemur hlutunum í verk.

Hvar er t.d. teymið af financial crime fólkinu sem ætti að vera löngu byrjað að fara yfir bankahrunið líkt og var gert í Enron málinu? Hvað þarf að blaðra lengi um að það þurfi alvöru óháð teymi til að vinna þetta áður en einhver kemur því í verk?

Er þetta flókið?

Af hverju var þetta ekki gert strax?

Hver hagnast á því að gera þetta ekki?


| anna | 14:06 | permalink | comments (4) |
So fucking special
Sunnudagur, 08. febrúar 2009

Hann ýtti létt í öxlina á mér, benti mér á að koma. Þegar ég kom sá ég að hann er með hring.

Anna: þú ert giftur.
Hann: nei.. já

Hann: þú ert líka miklu eldri en ég
Anna: hvað ertu gamall?
Hann: þú ert elsta kona sem ég.. sem mig langar til að..

Hann sagði það ekki upphátt en ég vissi hvernig setningin endaði.

Anna: viltu hjálpa mér?
Hann: hvað viltu að ég geri?
Anna: segðu mér af hverju. Ég þarf að vita það.
Hann: ég veit það ekki. Þú ert bara svo..

Hann gat ekki svarð spurningunni.
----

Þegar ég kom inn á staðinn voru þeir að taka lagið Creep. Ég horfði í kringum mig, heyrði:

What the hell am I doin' here?
I don't belong here

Ég snéri við og fór út. Fann leigubíl strax. Bað hann um að fara með mig á Hagamel 53. Í útvarpinu söng Paul McCartney lagði "no more lonely nights"

Bílstjórinn reyndi ekki að tala við mig alla leiðina heim og hann keyrði mjög hratt, sem mér þótti vænt um. Sennilega sá hann í baksýnisspeglinum að ég var að gráta.

Ég er kvenkyns.. thing.. eitthvað. Ég velti fyrir mér á leiðinni heim hvort það yrði jafnt ömurlegt að vera orðin of gömul til að hafa það sem ég hef. Og ég veit það ekki. Það er nógu ömurlegt að hafa það ennþá.

Og já, ég er að vorkenna sjálfri mér. Ef þú hefur eitthvað útá það að setja geturðu hoppað uppí rassgatið á þér.

Þegar maður vill annað og meira verður þetta þreytt.


| anna | 1:54 | permalink | comments (11) |
Diskó.. bjargar lífum
Sunnudagur, 08. febrúar 2009

Ég hef legið eitthvað asnalega í nótt, er að drepast aftaní hálsinum.

Undanfarið á ég til að verða svo deprimeruð af því að tala við fólk. Fólk sem virðist halda að það sé hægt að beita sömu aðferðum áfram og þeim sem brugðust okkur. Veit einhver hvernig staðan er? Í alvöru.

Veit einhver hvað við skuldum mikið?

Hvernig er hægt að koma með raunhæf plön um hvernig við ætlum að bregðast við ef engin veit hversu slæmt þetta er?

Er krónan ónýt? Eða er eitthvað annað ónýtt?

Ef ég ræð til mín tölvunarfræðing sem reynist arfaheimskur - er lausnin þá að kaupa nýja tölvu fyrir hann?

Hvernig gengur þjóðunum sem tóku upp Evru? Hefur einhver heyrt success sögur?

Til að kúpla mig útúr svona pælingum er ég með frábært náttúrumeðal sem heitir diskó. Hvernig er hægt að vera í fýlu og hlusta á svona snilld?

Á þessu ári ætla ég að koma mér í form. Á næsta ári ætla ég að læra að dansa tangó. Er einhver out there sem langar að læra tangó með mér?

Má ekki vera mikið hærri en 180.


| anna | 21:58 | permalink | comments (10) |
Bros dagsins
Mánudagur, 09. febrúar 2009

Anna, How's this?

--------------------

Beautiful.
Thank you Mr. Higgins.

--------------------

So are you and you're welcome!


| anna | 18:38 | permalink | comments (0) |
Nei bara..
Þriðjudagur, 10. febrúar 2009

Getur ekki einhver snillingur mixað saman lögin "Við Reykjavíkurtjörn" og "Hiroshima" ?


| anna | 11:54 | permalink | comments (2) |
Ályktun um Stjórnlagaþing
Miðvikudagur, 11. febrúar 2009

Á opnum fundi Lýðveldisbyltingarinnar í kvöld, þriðjudaginn 10. febrúar frá kl. 21:00 - 23:00 var ákveðið að senda stjórnvöldum og stjórnmálaflokkum opið bréf með ályktun um Stjórnlagaþing. Fundurinn var auglýstur með löglegum fyrirvara þannig að tillögur var hægt að senda fyrir fundinn eða á fundinum. Fyrsta útgáfa ályktunarinnar er hér með
sett hingað inn til að hægt sé að rökræða hana. Fundarstjóra skal skipa fyrir þennan rökræðuþráð og rökræður skulu standa í sólarhring.

Fundarstjóri getur á þeim tíma tekið saman athugasemdir einu sinni eða oftar og birt breytta ályktun. Rökræður halda þá áfram og að sólarhring liðnum skal taka saman breytta ályktun. Þá fer fram önnur lota umræðna um ályktun og að öðrum sólarhring liðnum tekur fundarstjóri aftur saman breytta ályktun. Þá fer hún í kosningu.

Ályktunin og umræður:
http://tinyurl.com/bjuqwu

----

Það er svo að frétta af Margeiri að hann er byrjaður að smíða styttu niðrí hjólageymslu af Davíð sem hann vill setja fyrir framan Seðlabankann. Fékk að nota parketafganga sem einhver skildi eftir.

Ég læt vita hvernig gengur.


| anna | 0:36 | permalink | comments (4) |
Greit
Miðvikudagur, 11. febrúar 2009

Þegar ég kom heim úr vinnunni kíkti ég við í hjólageymslunni til að sjá hvernig verkinu miðar.

Þar er nú að taka á sig mynd einhver sá furðulegasti skúlptúr sem ég hef á ævinni séð. Þessu svipar ekkert til Dabba, svo mikið er víst. Mér er fyrirmunað að skilja af hverju hann hefur neglt þessa hjólapumpu á þennan stað, og þó hún gefi verkinu vissulega dýpt þá er eins gott að hún hafi verið ónýt því ekki ætla ég að borga fyrir hana.

Ég fann Margeir hinsvegar ekki fyrr en ég kom uppí íbúð. Þar kraup hann inná baði með heftibyssuna mína að reyna að hefta á sig vísifingur vinstri handar. Ég ákvað að vera ekkert að trufla hann - né segja honum að fingurinn snéri öfugt.

Meina.. maður er að koma heim úr vinnunni.

Ég er bara of þreytt til að takast á við svona rugl.


| anna | 17:35 | permalink | comments (2) |
Takk fyrir að hringja
Miðvikudagur, 11. febrúar 2009

Ég fékk símtal í dag sem mér þótti vænt um að fá. Þetta reyndist vera maður sem er búinn að fylgjast með Lýðveldisbyltingunni frá því hún byrjaði. Sagði mér að um leið og hann las um hugmyndina, leið honum eins og þetta væri eina leiðin - vegna þess að hann hefur ekki nokkra trú á því að fólkið sem þiggur laun fyrir að hugsa um hagsmuni landsins og þjóðarinnar sé raunverulega að vinna fyrir land og þjóð.

Benti á hvenær þeir völdu að hafa kosningar. Höfðu svo stuttan tíma að það er nærri ógerningur fyrir ný framboð að móta stefnu. Hann hefur hinsvegar fylgst með stefnunni okkar mótast á Internetinu, á leifturhraða, og þar sem hann er núna endanlega búin að segja skilið við þá litlu von um að fólkið í stjórnmálafjölskyldunni fari að vinna að hagsmunum landsins í stað þess að þrasa við hvort annað um hluti sem skipta ekki máli vill hann fara að taka virkan þátt og leggja sitt af mörkum til að upplýsingabyltingin - sem Lýðveldisbyltingin er í raun - skili árangri.

Hann veit að þetta þarf samstöðu fólksins í landinu til að dæmið gangi upp og þar sem honum er hætt að standa á sama vill hann taka þátt í því sem hann trúir að geti bjargað einhverju og skapað heilbrigðara samfélag.

Þetta var eiginlega svolítið skrítin upplifun fyrir mig að tala við hann, vegna þess að hann var að segja það sem ég er búin að vera að upplifa. Hann sagðist vera búin að tala við fólk undanfarið og finnst hann mæta svo miklu vonleysi og depurð því fólk sér enga leið þegar kemur að pólitík. Mönnum fallast hendur. Hann var líka að furða sig á því hversu margir sjái ekki að valdið er í okkar höndum - þess í stað lætur fólk blekkja sig til að taka þátt í leiknum sem pólitíkusarnir eru að leika og þrasa við hvort annað um hluti sem eru löngu hættir að skipta máli - eins og hvaða flokkur gerði hvað og hvenær. Það sem skiptir mestu máli er að engin flokkur geti gert neitt þessu líkt aftur!

Hann er líka búinn að sjá, með því að fylgjast með vinnubrögðum okkar, að við ætlum ekki að spila með í leiknum og það er mjög erfitt að spila með fólk sem er ekki að spila sama leik og þú. Tala nú ekki um þegar það ætlar ekkert að fela heldur. Hvað er nú það?

Hvernig er eiginlega hægt að stöðva svona fólk?

heheheh já..

Það sem þessi maður veit.. er að ef þetta eru nógu margir venjulegir einstaklingar sem segja hingað og ekki lengra, þá er ekki hægt að stoppa þetta fólk.

Það er einfaldlega ekki hægt.

Takk fyrir að hringja og velkominn um borð!

www.lydveldisbyltingin.is


| anna | 19:36 | permalink | comments (0) |
Mannorðið í rúst
Fimmtudagur, 12. febrúar 2009

Eitt af því sem er búið að gera mig mjög reiða undanfarið er að orðspor landsins míns sé rjúkandi rúst vegna örfárra einstaklinga sem gengu um, að því er virðist, rænandi og ruplandi. Fólkið sem átti að stjórna gerði ekkert, það er öllum ljóst, langt út fyrir landssteinana. Hvurslax eiginlega þjóð er þetta?

En.. hvernig kæmi það út fyrir okkur, ef Íslenska þjóðin kæmist í fréttir erlendis, vegna þess að þjóðin tók höndum saman og samdi á wiki síðu fyrir opnum tjöldum nýjar reglur fyrir stjórnvöld til höfuðs spillingar á Íslandi?

Þar sem krafist er vandaðra vinnubragða og gagnsæi í stjórnsýslu. Fagmennsku, ábyrgðar, heiðarleika.

Ef tilraunin til að sameina þjóðina í þessu verkefni heppnast.. þetta yrði heimsfrétt.

Ég myndi hafa meiri trú á þjóð sem tekur svona á vandanum - en ég get náttúrlega bara talað fyrir mig..

Hvað finnst þér?


| anna | 18:49 | permalink | comments (5) |
Öskudagur
Föstudagur, 13. febrúar 2009

Við vorum að ræða um hvaða karakterar krakkarnir ætla að vera á öskudaginn. Frumburðurinn er að hugsa um að vera Óli F eins og hann var í skaupinu, með hárið útí loftið í jakkafötum og með latexhanska. Það verða sennilega nokkrir Geirar og Davíðar á vappi á öskudaginn ef marka má slúðrið í skólunum.

Einkasonurinn velti lengi fyrir sér hvað hann ætlaði að syngja og hvað hann ætti að vera og komst loksins að niðurstöðu. Hann ætlar að vera Fjallageit og syngja:

"Only seven days ago my mother put a spell on me... "

Lagið sem hann ætlar að hafa til vara er.. "Always look on the bright side of life".

Hann var nefnilega líka að velta fyrir sér að vera mamma hans Brian úr Life of Brian.

Mér finnst það reyndar snilldar hugmynd. Töluvert mikið auðveldara að útfæra það heldur en þessa geit - þó geitin sé auðvitað mikill snillingur.


| anna | 17:55 | permalink | comments (2) |
Almenningur gegn ruglinu
Föstudagur, 13. febrúar 2009

lydveldisbyltingin-400x70.gif

Þetta er ekkert flókið.


| anna | 18:23 | permalink | comments (0) |
Óformleg könnun
Laugardagur, 14. febrúar 2009

Þetta eru stefnumálin í dag. Er þetta eitthvað sem þú gætir kvittað uppá?

Við munum sennilega fara í lokaumræður um stefnumálin í næstu viku, fyrir opnum tjöldum á netinu eins og venjulega. Eftir þessar lokaumræður verður kosið um stefnumálin og ef þau verða samþykkt verður ekki hægt að hafa áhrif á niðurstöðuna eftir það. Allir Íslendingar, um allan heim, geta tekið þátt í kosningunni.

Hver sem er getur haft áhrif í dag. Þú gerir það með því að taka þátt hér: www.lydveldisbyltingin.is - eða benda einhverjum öðrum á að taka þátt.

Af hverju getur hver sem er haft áhrif? Af því þetta er ekki hefðbundinn klíku-flokkur sem vill stilla upp fólki og vinna stefnumálin fyrir luktum dyrum. Þetta er almenningur. Fólk sem er búið að fá nóg og ætlar ekki að bíða eftir breytingum lengur.

Vald til þjóðarinnar og framsal valdheimilda

  • Þjóðaratkvæðagreiðsla skal fara fram um tiltekið mál óski tiltekinn minnihluti þjóðarinnar þess. Sama gildir um að rjúfa þing.
  • Bera skal alla samninga undir þjóðaratkvæðagreiðslu sem mögulega framselja vald, m.a. þar sem krafist er að lög og reglugerðir séu innleidd án atbeina Alþingis.

Jafnræði í alþingiskosningum

  • Að viðurkenna þau sjálfsögðu mannréttindi sbr. 1. gr. Mannréttingayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna að vægi atkvæða í alþingiskosningum verði jafnt enda væri það í samræmi við hugmyndir um að auka vægi þjóðaratkvæðis um einstök mál enda augljóst að ekki væri hægt að láta suma landsmenn hafa meira vægi en aðra við þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta myndi auðvelda aðkomu nýrra framboða m.a. vegna þess að 5% reglan yrði óþörf við jafnt vægi atkvæða.
  • Að fjöldi þingmanna miðist við fjölda á kjörskrá í hlutfallinu 1/4000 sem væri í samræmi við algengt hlutfall í öðrum löndum. Þetta myndi þýða nokkra fækkun þingmanna í dag en hægfara fjölgun þeirra í framtíðinni með vaxandi fólksfjölda sem væri rökrétt.
  • Að kjördæmaskipan verði endurskoðuð og kjördæmum fækkað.
  • Að kjósendur geta kosið lista og/eða einstaka frambjóðendur án tillits til lista. Kjósendur sem velja eingöngu lista eru hlutlausir í röðun þingsæta innan listans. Í kosningum skal vera opinn listi fyrir óháða frambjóðendur. Til að auðvelda persónuval þá verði kosning í kjörklefum gerð rafræn t.d. með því að heimila kjósendum að velja frambjóðendur eftir nafni og mynd af snertiskjá og kjósandi prenti síðan útfylltan kjörseðil.
  • Að styrkir til kynninga í alþingiskosningum verði þannig að hver frambjóðandi fái ákveðna upphæð í lok kosninga gegn framvísun reikninga. Einstakir frambjóðendur eða heilu listarnir geta sameinast og samnýtt sína styrki til að nýta framlagið betur.

Ráðningatími og launakjör ráðamanna

  • Að ráðherrar og æðstu embættismenn framkvæmdavaldsins, nema dómarar, gegni embætti í mesta lagi í átta ár eða tvö kjörtímabil samfellt.
  • Að alþingismenn, ráðherrar og æðstu embætttismenn framkvæmdavaldsins búi við sömu reglur um lífeyrisréttindi og aðrir opinberir starfsmenn.
  • Að laun alþingismanna verði hækkuð þannig að þau verði 75% af launum ráðherra. Laun alþingismanna í dag eru kr. 520,000 og yrðu þá kr. 641,000. Laun ráðherra í dag eru kr. 855,000 og laun forsætisráðherra eru í dag kr. 935,000 eftir lækkun í lok árs 2008.
  • Að ráðningatími (skipunartími) og þ.a.l. uppsagnarfrestur allra embættismanna sé í samræmi við það sem almennt gerist hjá stjórnendum á vinnumarkaði skv. nánari útfærslu sem verði í höndum Kjararáðs.

Skipting valds

  • Að tryggð sé skipting valdsins milli löggjafar-, framkvæmda- og dómsvalds, m.a. þannig að ráðherrar sitji ekki á þingi, að tiltekinn minnihluti þingmanna geti boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu um lagafrumvörp sem Alþingi hefur samþykkt og að æðstu embættismenn séu valdir á faglegum forsendum.
  • Að hæfi umsækjenda um störf hæstaréttar- og héraðsdómara sé metið af hlutlausri fagnefnd skipaðri af Alþingi eftir tilnefningu hæstaréttar. Fagnefndin geti lagt fyrir umsækjendur próf til að skera úr um þá hæfustu og að ráðherra beri að velja dómara úr hópi þeirra sem fagnefndin telur hæfasta.
  • Að fastanefndir þingsins verði efldar með tilfærslu fjármagns t.d. með því að leggja niður aðstoðarmenn þingmanna og formanna flokka og nýta fjármagnið til kaupa á sérfræðiráðgjöf fyrir fastanefndir þingsins. Gerð verði krafa um að fastanefndir afgreiði öll mál og skili niðurstöðu innan ákveðins tíma.
  • Að almenningi verði gert kleift að gera breytingatillögur, nafnlaust, á rafrænan hátt við lagafrumvörp sem þingnefndum er skilt að ræða og taka afstöðu til á sambærilegan hátt og breytingartillögur þingmanna. Hugmyndir um rafræna Lýðræðisgátt og rafrænt Skuggaþing verði nýtt við útfærslu.
  • Að hlutverk fjölmiðla sem valdastofnunar verði viðurkennt og sett verði fjölmiðlalög sem taki á þeim veruleika.
  • Að starfstími Alþingis verði lengdur þannig að leyfi frá þingstörfum verði skilgreind þannig að sumarleyfi verði frá 17. júní til og með fjórða sunnudegi í ágúst, jólaleyfi frá fjórða sunnudegi í aðventu til þrettándans og páskaleyfi frá Pálmasunnudegi til 2. í páskum.

Opin og gagnsæ stjórnsýsla

  • Að leiðarstef í allri stjórnsýslu sé gagnsæi og vel skilgreind ábyrgð, fylgt eftir af öflugum eftirlitsstofnunum sem hafi tímamörk á afgreiðslu mála. Stjórnsýslan verði rafræn og að stjórnsýslulög verði endurbætt að norrænni fyrirmynd þar sem meginreglan verði sú að veita skuli án tafar allar upplýsingar nema til komi sérstakar persónuverndar- eða þjóðaröryggisástæður.
  • Settar verði siðareglur fyrir alþingismenn, ráðherra og æðstu embættismenn framkvæmdavaldsins sem m.a. geri grein fyrir eign sinni í fyrirtækjum og stjórnarsetu fyrir kosningar og upplýsi umsvifalaust um allar breytingar á þessu sviði.
  • Opnuð verði Lýðræðisgátt (sjá tillögu) sem væri farvegur fyrir þjóðina til að hafa áhrif á ákvarðanir valdsins. Annað dæmi um aukið gagnsæi og gagnvirkan aðgang almennings er vefsíðan Opið Beint Lýðræði / Skuggaþing sem er hugsuð sem óháður vettvangur til að fylgjast með og tengjast fulltrúalýðræðinu á Alþingi. Þessi vefsíða sækir sjálfvirkt ný lagafrumvörp, ræður og allar breytingar á klukkutíma fresti frá vef Alþingis og gefur almenningi kost á að tengjast lagaferlinu með því að skoða, ræða, breyta og kjósa.
  • Fjárreiður stjórnmálaflokka verði opnar og gagnsæar með því að skylda stjórnmálaflokka, að viðlögðum sektum, að skila reikningum til ríkisendurskoðunar sem birtir þá opinberlega. Jafnframt verði farið yfir núverandi reglur um hámark styrkja fyrirtækja og einstaklinga og að styrkir til starfsemi stjórnmálaflokka verði afnumdir eða endurskoðaðir til lækkunar og þá breytt þannig að sama upphæð renni til allra flokka á þingi.
  • Í nafni opinnar og gagnsæar stjórnsýslu verði unnið faglega að rannsókn á orsökum og aðdraganda bankahrunsins. Til þess verði fengnir óháðir, innlendir og erlendir, sérfræðingar með það að markmiði að sækja til saka þá sem ábyrgir eru og nýta niðurstöðurnar til uppbyggingar á opnara og gagnsærra samfélagi þar sem lögð verði áhersla á stjórnsýslu, eins og best verður á kosið, með skýrri ábyrgð.

Grundvallar mannréttindi tryggð

  • Að fyrsta málsgrein 76. greinar stjórnarskrárinnar verði breytt til samræmis við Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um réttinn til lífskjara sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og velliðan allra. Grein 76 muni þá hljóða svona eftir breytingu.
    • Öllum skal tryggður rétttur til grunn lífskjara sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og lífsviðurværi þeirra sjálfra og fjölskyldu þeirra, sé þess nokkur kostur. Grunn lífskjör teljast vera nauðsynlegt fæði, hreint vatn, klæði, húsnæði, læknishjálp og nauðsynleg félagsleg þjónusta, svo og réttur til öryggis vegna atvinnuleysis, veikinda, fötlunar, fyrirvinnumissis, elli eða annars sem skorti veldur og menn geta ekki við gert. Öllum skal tryggður í lögum réttur til almennrar menntunar og fræðslu við sitt hæfi. Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.
  • Aðrar breytingar á stjórnarskrá verði gerðar þannig að hún samræmist Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna.

Ef þetta er eitthvað sem þér finnst vit í, sendu þetta áfram.

lydveldisbyltingin-400x70.gif

| anna | 10:16 | permalink | comments (3) |
Ég styð það að Íslendingar fái að kjósa
Laugardagur, 14. febrúar 2009

| anna | 16:01 | permalink | comments (6) |
Fyrirspurn til þingflokka
Sunnudagur, 15. febrúar 2009

Eftirfarandi bréf var sent til allra þingmanna og fréttamiðla núna rétt áðan. Það verður fróðlegt að sjá hvort þessum einföldu spurningum um stjórnlagaþing verður svarað. Ég veit ekki betur en að þessir hlutir hafi verið ræddir þegar þessi stjórnarmyndun átti sér stað.
-----

Ágæti viðtakandi,

Meðfylgjandi er fyrirspurn til þingflokka stjórnmálaflokkanna um stjórnlagaþing frá meðlimum Lýðveldisbyltingarinnar. Meðlimir Lýðveldisbyltingarinnar krefjast svara við meðfylgjandi spurningum fyrir 19. febrúar á netfangið lydveldi@lydveldisbyltingin.is. Rétt er að taka fram að öll svör verða birt á vef hreyfingarinnar.

Fulltrúar hreyfingarinnar munu afhenda formönnum þingflokka útprentað eintak af þessari fyrirspurn mánudaginn 16. febrúar, 2009.

Prentvæn útgáfa:
http://wiki.lydveldisbyltingin.is/images/a/ac/Fyrirspurn15feb09.pdf

---

Fyrirspurn til þingflokka stjórnmálaflokkanna um stjórnlagaþing:

Lýðveldisbyltingin fagnar hugmyndum stjórnmálaflokkanna um stjórnlagaþing en krefst þess að fá skýr svör við eftirfarandi spurningum til að geta metið hvort flokkunum sé alvara. Einnig hvort slíkt þing hefði ótvírætt umboð til að gera tillögur að nauðsynlegum breytingum sem lagðar yrðu í dóm almennings með þjóðaratkvæðagreiðslu.

Lýðveldisbyltingin krefst skýrra svara frá stjórnmálaflokkunum um eftirfarandi:

  1. Verður frumvarp til laga um stjórnlagaþing lagt fram af flokknum eða mun það hljóta stuðning flokksins fyrir þorraþræl, þann 21. febrúar 2009?
  2. Hvernig vill flokkurinn að staðið verði að vali fulltrúa á stjórnlagaþing?
  3. Vill flokkurinn að tillögur stjórnlagaþings um breytingar á stjórnarskrá verði lagðar undir dóm almennings með þjóðaratkvæðagreiðslu?
  4. Vill flokkurinn að lög um stjórnlagaþing verði samþykkt fyrir kosningar 25. apríl 2009?
  5. Fá lögin um stjórnlagaþing einróma stuðning flokksins eftir kosningar 25. apríl 2009?
  6. Hvaða dag áætlar flokkurinn að stjórnlagaþing hefjist?
  7. Hversu lengi áætlar flokkurinn að stjórnlagaþing standi yfir?
  8. Vill flokkurinn að hreyfingum á borð við Lýðveldisbyltinguna verði gert kleift að hafa áhrif á lagafrumvarp um fyrirkomulag stjórnlagaþings?

Ríkisstjórnarflokkarnir ákváðu kjördag þann 25. apríl, sem er óvenju stuttur fyrirvari. Það er því lýðræðisleg skylda stjórnmálaflokkanna að svara þessum grundvallarspurningum til að hindra ekki almenning í að nýta lýðræðislegan rétt sinn til að hafa áhrif í kosningum.

Lýðveldisbyltingin óskar svara við þessum mikilvægu spurningum og að svörin verði send á netfangið lydveldi@lydveldisbyltingin.is eigi síðar en 18. febrúar 2009.

Framboð til Alþingis

Geti flokkarnir ekki veitt skýr svör um afstöðu sína til stjórnlagaþings er aðeins ein leið fær fyrir Lýðveldisbyltinguna til að koma á þeim lýðræðisbreytingum sem almenningur kallar eftir. Sú leið er að bjóða fram til Alþingis undir eigin nafni og koma á breytingum í lýðræðisátt, m.a. með breytingum á stjórnarskrá og kosningalögum. Að því loknu yrði hreyfingin lögð niður.

Um Lýðveldisbyltinguna

Lýðveldisbyltingin er öflug hreyfing venjulegra Íslendinga og opin fyrir alla Íslendinga um allan heim. Markmið hennar er að koma á breytingum sem bæta samfélag okkar með því að endurskilgreina ábyrgð, auka gagnsæi, réttlæti og jafnrétti og koma þannig á lýðræðisbreytingum á stjórnskipan íslenska lýðveldisins. Meginbreytingarnar felast í því að koma á betra jafnvægi í aðgreiningu löggjafarvalds, framkvæmdarvalds og dómsvalds og styrkja þannig undirstöður lýðræðisins með þrískiptingu valdsins.

Undanfarnar vikur hefur Lýðveldisbyltingin unnið sleitulaust að því að móta hugmyndir að breyttri stjórnskipan íslenska lýðveldisins og hefur á að skipa áhugasömum einstaklingum sem eru tilbúnir til að leggja á sig þrotlausa vinnu við að endurreisa lýðræðið á Íslandi með þátttöku á stjórnlagaþingi, opinberum og opnum vettvangi.

Lýðveldisbyltingin
- endurreisn lýðræðis

http://www.lydveldisbyltingin.is

Afrit sent til:

-Alþingismanna
- Fjölmiðla
- Almennings

--

www.lydveldisbyltingin.is


| anna | 19:51 | permalink | comments (2) |
Skrifa um eitthvað annað en Lýðræði Anna
Sunnudagur, 15. febrúar 2009

Skrifa um eitthvað annað en Lýðræði.

Hmmm...

Hvað er ég vön að skrifa um hérna?

Var ég ekki búin að tala um að skálda upp æðislegan kærasta í febrúar, eða janúar?

Ég man það ekki.

Ég lendi líka bara í vandræðum ef ég verð hrifin af manni og verð fyrir vonbrigðum líka, jafnvel þó ég skrifi hann sjálf.

Auk þess hef ég engan tíma núna til að sinna nauðsynlegu viðhaldi sem þarf að sinna í byrjun sambands og hver nennir að kúra við kaktus?

Annars var þetta mynd helgarinnar hjá fjölskyldunni - dásamleg.


| anna | 23:25 | permalink | comments (2) |
Fix
Mánudagur, 16. febrúar 2009

Anna: Ég er búin að fara á svo mörg "first date" síðan ég skildi. Veistu hver algengustu mistökin eru sem menn gera?
Hann: Nei.
Anna: Þeir reyna að vera eitthvað sem þeir eru ekki.
Hann: Ég held að ég viti nákvæmlega hvað þú átt við. Veistu.. áður en ég gifti mig, þá var ég vonlaus á deitum. Ég vissi ekkert hvernig ég átti að vera! Nú, þegar ég er giftur og líður vel með sjálfan mig, þá væri þetta walk in the park.
Anna: Akkúrat, vegna þess að þú veist í dag að "þú sjálfur" ert nóg. Meina.. ef ekkert kemur útúr stefnumótinu.. so what? Who gives a shit. Þá var þetta bara deit sem gekk ekki upp. Það er ekki eins og maður búist við miklu.
Hann: Ég ætti eiginlega að kynna þig fyrir vini mínum, hann er fæddur '72

Mér þykir vænt um þegar vinnufélagi vill fixa mér upp með vini sínum. Það merkir að hann getur hugsað sér að umgangast mig utan vinnu.

Diskó á ekki eftir að halda í mér lífinu nema svo og svo lengi.

Hann: Býr meira að segja rétt hjá þér - í göngufæri.

Ef síðasta "fix-up" date hefði ekki verið jafn hræðilegt og það var, þá væri þetta mjög freistandi - en það er þannig með "fix-up" date, að þá kemur skýrslutaka eftirá. Og hver vill heyra að þessi frábæri vinur hafi orðið haugfullur og..

Hann: eftir öll þessi fyrstu deit, sérðu eftir einhverjum?
Anna: nei.
Hann: af hverju ekki?
Anna: af því lífið er ekki búið.


| anna | 19:58 | permalink | comments (7) |
Mistök
Mánudagur, 16. febrúar 2009

Ég trúi því að alvöru mistök séu þess eðlis að þau eru leiðrétt seinna, á einhvern hátt. Ef engin mistök áttu sér stað, þá er ekkert að leiðrétta og þar með er ekkert til að sjá eftir.

Ætli ég trúi þessu vegna þess að ég hef gert svo mörg mistök að ég meika ekki að feisa það?

Eða ætli það sé vegna þess að ég sé þetta gerast aftur og aftur.


| anna | 20:40 | permalink | comments (0) |
Ahhhhh
Mánudagur, 16. febrúar 2009

Ég veit ekki af hverju mér finnst þetta svona hillarious, en ég get ekki einu sinni sagt frá þessu atriði án þess að fara að hlæja.

Að sjá þennan (allavega einu sinni) óhugnanlega flotta mann, Terence Stamp, standa með þennan Margeir við hliðiná sér.. og segja þessa yndislegu setningu..


| anna | 22:44 | permalink | comments (0) |
Sorry seems to be the Haarde-st word
Mánudagur, 16. febrúar 2009

Í myndinni Fish called wanda, ég nenni ekki að klippa þetta út og finn þetta ekki á youtube, en ég man eftir atriði þar sem Otto er að æfa sig í að biðjast afsökunnar.

Það var einhvernvegin svona:

I'm so sssssssssss. I'm so very sssssssss..... FUCK YOU!

Minnir þetta á einhvern?

Það er orðið verulega pínlegt að sjá hvað þetta fólk á erfitt með að biðjast afsökunnar og flippað að í raun er engin búin að því - en við færumst nær. Nú eru menn farnir að tala um að þeir eigi að biðjast afsökunnar.

úúúúÚÚÚúúúú

Fyrst Bjarni Ben, svo Bíbí og núna Guðlaugur.
Þetta er allt að koma.

Það sem mun gerast næst, er það sama og gerðist í myndinni þegar Ottó fattar að hann er búinn að klúðra feitt af því hann barði óvart manninn sem hann átti að biðja afsökunnar. Í okkar dæmi mun þetta gerast þegar nær dregur kosningum og menn fatta að þeir einfaldlega þurfa að gera þetta - eins og Ottó.

Þá fáum við að heyra..

I'm sorry. I'm sorry. I'm sorry. I'm sorry. I'm sorry. I'm so sorry...

Orðin munu streyma fram áreynslulaust og óhikað.
----

Mér fannst þetta töluvert fyndnara í bíómyndinni. Sennilega vegna þess að mig langar ekki að búa í "the smallest fucking province in the Russian Empire"

Segjum að Geir og félagar hefðu haldið blaðamananfund mánuði eftir hrunið, úrskýrt að það sem gerðist var að fólk bara.. áttaði sig ekki á alvarleika stöðunnar, gerði mistök. Svaf á verðinum. Hann hefði þessu næst beðið þjóðina afsökunnar ("and make it good, or we're dead"). Í kjölfarið hefði hann svo haldið þrumuræðu um hvernig hann og Ingibjörg með vefjahöttinn ætluðu svoleiðis að ráðast á málið og KLÁRA ÞAÐ!

ÍSLAND! BEST Í HEIMI!

Þetta eru svo beisik viðbrögð að það er ótrúlegt að engin pr snillingur hafi sagt þeim að gera þetta. Það er ekki hægt að toppa sannleikann þegar hann er svona magnaður og fólk ber alltaf meiri virðingu fyrir einstaklingum sem viðurkenna mistök en fyrir þeim sem þræta fyrir þau útí hið óendanlega. Það er elementary. Lærði eingin af Árna?

Miðað við skoðanakannair núna þá hefði sennilega allavega 60% af þjóðinni keypt það crap og þau væru ennþá við stjórn í dag. Fólki hefði ekki ofboðið hrokinn og jafn breið samstaða um mótmæli hefði aldrei skapast ef þau hefðu beðist afsökunnar og sýnt lit. Þó Ingibjörgu langaði að sprengja stjórnina hafði hún ekki heilsu í það og var ekki búin að sjá að hægt væri að fórna Jóhönnu.

Það er nefnilega þannig að það ætlast engin til þess að þetta séu einhver ofurmenni og það er mannlegt að fyrirgefa fólki sem vill bæta fyrir misgjörðir sínar og/eða mistök. Af hverju er þetta svona flókið?

"I'm sorry".
Well.. maybe you should have.

Mómentið er hinsvegar farið núna og það verður í besta lagi hlægilegt þegar afsökunarbeiðnirnar gusast yfir okkur frá þessu fólki - til þess eins að snapa atkvæði.

Það verður ekki jafn hlægilegt að sjá hversu margir kaupa það rugl.


| anna | 22:57 | permalink | comments (3) |
Drottinn minn..
Þriðjudagur, 17. febrúar 2009

Rétt um klukkan tvö í dag var hringt í mig úr móttökunni í vinnunni og mér tilkynnt að þarna væri maður sem vildi ná tali af mér. Konan í móttökunni hljómaði undarlega svo ég reiknaði með því að þetta væri Davíð að biðja mig að segja Margeiri vinsamlega að hætta að syngja uppörvandi baráttusöngva inná talhólfið í símanum hans. Það var bara tímaspursmál um hvenær maðurinn fengi nóg af þessu.

Maðurinn í móttökunni var ekki Davíð.

Maðurinn í móttökunni var hrikalega hávaxinn, þrekinn, með sólgleraugu og stuttermabol. Þegar ég sá hann snarstoppaði ég í stiganum og það fyrsta sem mér datt í hug að gera var að reyna að komast út bakdyramegin. Varð litið útum gluggana í glerhýsinu. Þar sá ég tvo menn á stuttermabol með sólgleraugu í rokinu. Einn vinkaði mér.

Fokk.

Ég ákvað að tala við manninn í móttökunni, fór niður og hann sagðist þurfa að fá mig lánaða aðeins, tók svo undir handlegginn á mér og hálf dró mig út í stóran svartan bíl. Hendi mér afturí, beint í fangið á öðrum sólgleraugnagæja sem setti eitthvað drasl yfir höfuðið á mér og hélt höndunum á mér fyrir aftan bak. Næsta sem ég fann var að bíllinn spólaði af stað.

Þegar maður er screwed þá er stundum best að halda sér bara saman, og ég tók ákvörðun um að gera nákvæmlega það. Þó mig dauðlangaði að öskra á þá fyrir að klessa hárið á mér svona niður. Það er ekki á hverjum degi sem ég blæs á mér hárið.

Þegar bíllinn stoppaði var mér hent út og þegar ég fjarlægði þessa hettu af hausnum eða hvað sem þetta var, áttaði ég mig á því að ég stóð fyrir utan heima hjá mér. Við hlið mér stóð maður með sólgleraugu sem vísaði mér inn og fylgdi mér upp. Nú stendur hann fyrir utan hurðina mína og meinar mér útgöngu. Ég hringdi í lögguna en þeir hótuðu að gasa mig ef ég væri með einhver læti.

Allt eins.

Það vantar ekki dramatíkina. Allt þetta til að láta mig vita að hann væri kominn aftur.

Það er eins gott að mér verði refsað.


| anna | 17:58 | permalink | comments (0) |
Stutt stopp
Miðvikudagur, 18. febrúar 2009

Er að bíða eftir lögreglunni, ég var að henda Ken niður af svölunum. Heyrist hann vera ennþá á lífi en er sennilega fótbrotinn á báðum. Hann er að kalla á mig að henda niður verkjatöflum.

Endalaust væl.

Hvað meinar maðurinn með því að koma hingað í kjól. Hann er orðinn endanlega sækó.

Þó ég hafi ekki verið með karlmanni síðan í fyrra þá eru takmörk fyrir hvað ég læt bjóða mér, auk þess finnst mér alltaf betra ef þeir eru með púls.

Ef það er eitthvað réttlæti í þessum heimi þá senda þeir verulega geðstirðan lögreglumann sem refsar mér harðlega fyrir það sem ég hef gert.

With my luck... býst ég frekar við að þeir sendi kvenlöggu.

Allt eins. ALLT eins.


| anna | 0:04 | permalink | comments (0) |
Jæja..
Miðvikudagur, 18. febrúar 2009

Þeir sendu ekki konu, en þeir sendu hressasta lögreglumann sem ég hef hitt.

Hann sagði mér ellefu brandara á innan við sjö mínútum.
Engin þeirra var fyndinn.

Solid.

Fékk smá sekt fyrir að henda "lífrænum úrgangi" af svölunum.
Er bara nokkuð sátt.


| anna | 0:31 | permalink | comments (2) |
Fyrir B
Fimmtudagur, 19. febrúar 2009

Ég er búin að vera í sleik frá því klukkan átta í kvöld.

Helv hressandi.


| anna | 0:02 | permalink | comments (0) |
Að fara í sleik
Fimmtudagur, 19. febrúar 2009

Stundum fer ég í sleik - megasleik jafnvel - en til þess að ég nenni því þarf helst að vera ljóst fyrirfram hver útkoman á að vera. Markmiðið þarf að vera skýrt og megintilgangurinn ljós. Þegar ég er í sleik klukkutímum saman án þess að færast nokkuð nær markmiðinu, þá hætti ég og fer heim.

Ég kalla: "að fara á fund" - "að fara í sleik".

Ég hef nákvæmlega sömu afstöðu til kossa og funda, ef engin ætlar að leggja á sig vinnu við að taka þetta alla leið, þá hreinlega nenni ég þessu ekki.

Almenn afstaða mín til funda er að það eigi að stunda sem minnst af þeim. Mér finnst fundir oft óhugnanlega boring. Vinnufundir, þar sem búið er að ákveða fyrirfram hvað á að gera og hverju fundurinn á að skila, þannig fundum nenni ég að taka þátt í. Upplýsingafundir eru reyndar í lagi líka og stundum nauðsynlegir, en hafa þá to the point og ekkert kjaftæði.

Þetta þýðir samt ekki að mér finnist leiðinlegt að tala við fólk. Ég held að þetta snúist meira um að þegar ég hef verið kölluð á einhvern stað, til að tala um eða gera eitthvað ákveðið, þá verð ég pissed off ef engin ætlar að tala um eða gera nákvæmlega það.

Kossar aftur á móti eru eitthvað sem mér finnst að fólk ætti að stunda oft og lengi.

En eins og á fundum þá kemur alltaf þessi tímapunktur sem þú þarft að spyrja þig hvort þessi fundur er kjaftæði eða hvort sá sem þú ert á fundinum með ætli að klára dæmið með þér.

Ef ég er búin að vera í sleik með einhverjum og í einhvern tíma, þá eru allar líkur á því að ég vilji taka þetta alla leið.



Annars væri ég löngu farin heim að sofa.


| anna | 12:47 | permalink | comments (6) |
Svör frá stjórnmálaflokkum
Fimmtudagur, 19. febrúar 2009

Eftirfarandi tölvupóstur var sendur á fjölmiðla 19. febrúar, 2009.

Lýðveldisbyltingin sendi þann 15. febrúar vandaða fyrirspurn til þingflokka stjórnmálaflokkanna varðandi stjórnlagaþing og var afrit sent á fjölmiðla. Fyrirspurnin var unnin á opin og gagnsæan hátt þar sem öllum meðlimum hreyfingarinnar gafst tækifæri til að taka þátt.

Nú hafa svör borist Framsóknarflokki, Vinstri grænum og Pétri Blöndal, þingmanni og ber að þakka fyrir þau svör sem voru vönduð og ítarleg og er hér með krafist að fjölmiðlar birti spurningar Lýðveldisbyltingarinnar og svör umræddra flokka í heild sinni.

Hægt er að lesa svörin hér:
http://tinyurl.com/bsvdcd

Frjálslyndi flokkurinn, Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn sendu ekki inn svör.

Meðlimir Lýðveldisbyltingarinnar lýsa yfir furðu sinni á því að tveir af stærstu stjórnmálaflokkunum og sá minnsti skuli ekki bera meiri virðingu fyrir kjósendum í landinu að þeir sjái ekki ástæðu til að svara fyrirspurn um jafn mikið hagsmunamál þjóðarinnar og stjórnlagaþing er.

Það er augljóst að starf Lýðveldisbyltingarinnar er rétt að hefjast.

Með kveðju,
Lýðveldisbyltingin
- endurreisn lýðræðis

www.lydveldisbyltingin.is


| anna | 21:14 | permalink | comments (0) |
Opið og gagnsætt - allt uppá borðið
Föstudagur, 20. febrúar 2009

Ég er að fara í sneiðmyndatöku á mánudaginn. Þar sem ég hef ákveðið að hafa allt mitt líf opið og gagnsætt ætla ég að láta mynda á mér innyflin og birta þau á vefnum.

Nei ég er að ljúga þessu öllu saman - fyrir utan sneiðmyndatökuna.

Vaknaði í nótt með hrikalegan verk sem leiddi niður í hægri fótlegginn. Ef þetta væri í fyrsta skipti sem ég fæ þennan verk hefði ég sennilega farið uppá slysó, en ég hef tvisvar verið send heim þaðan útaf eins verk og sagt að þetta væri "ekkert". Í morgun fékk ég tíma hjá heimilislækninum mínum, sem hefur líka sagt mér að þetta sé ekkert. Það var í ágúst á síðasta ári. Hann sagði mér að koma aftur ef þetta myndi ekki hverfa.

Í millitíðinni hefur þetta aukist. Þetta er ekki "ekkert", en þetta þarf hinsvegar ekki að vera neitt alvarlegt heldur. Mestu líkurnar eru á því að þetta séu blöðrur á eggjastokknum hægra megin og blæðing inní kviðarholið þegar þær springa. Gæti líka verið bólga í meltingarfærum. Ekki er þetta botnlanginn, ég væri dauð úr botlangabólgu by now. Ég bað hann um worst case scenario. Það versta sem þetta getur verið, skv lækninum mínum, er æxli. Hann sagði samt að honum fyndist það mjög ósennilegt, ef ég væri með æxli væri ég miklu veikari og með tíðari verki fyrst þetta byrjaði fyrir ári síðan. Hann viðurkenndi að fólk "kann oftast á sig" og ef fólki finnst eitthvað ekki vera tilfallandi, þá er það sennilega rétt. Lækningar eru svo ónákvæm vísindi.

Það er einmitt ástæðan fyrir því að ég fór að leita mér hjálpar fyrst þegar ég fann þetta og það er ástæðan fyrir því að ég fór aftur, nokkrum vikum seinna, til að fá hjálp. Það er eitthvað að. Ég veit ekki hvað er að, ég veit ekki hvort það lagast af sjálfu sér eða hvort ég þarf aðstoð lækna - en það er eitthvað að, klárlega, og ég vil vita hvað það er.

Verkurinn er alltaf á sama stað, hægra megin í kviðnum. Þetta er svakalega sár verkur eins og maður sé stunginn og svo leiðir hann ýmist útí hægri handlegg og alveg útí fingurna eins og.. stjörnuljós, eða niður í hægri fótlegg. Stundum hefur verkurinn leitt uppí höfuð.

Í nótt, þegar ég var að bíða eftir að þetta myndi líða hjá, velti ég fyrir mér hvort ég myndi kannski ekki lifa árið 2009 af. Ég er ekki hrædd um það eins og staðan er núna, en ég fór samt að velta fyrir mér hvort það væri eitthvað sem mér fyndist ég verða að gera áður en ég dey. Ef ég dey á árinu 2009, það gerir t.d. endanlega útum þá hugmynd sem ég hafði um að hitta mann - nema það sé læknir eða útfararstjóri og þetta verði svona shotgun wedding. Mér datt í raun ekkert merkilegt í hug sem mér finnst ég verði að gera áður en ég gef upp öndina. Sennilega myndi ég bara reyna að eyða sem mestum tíma með krökkunum mínum og segja þeim hvað ég hef lært um lífið so far. Vonast til þess að það gagnist þeim eitthvað. Taka oft og mikið utanum þau og knúsa þau.

Þar sem ég trúi ekki á líf eftir dauðann óttast ég ekki að deyja, en mér fyndist ég vera að bregðast börnunum mínum. Ég mikla líka fyrir mér hvað ég þarf að taka til í miklu drasli ef ég er að fara að stimpla mig út for good.

Myndi ég documentera my demise á blogginu?

Já.. sennilega myndi ég gera það, þó ég geti auðvitað ekki fullyrt það fyrr en á það reynir. Ég hugsa að ég myndi gera það á gróteskan hátt.

Hvernig ætli síðasta færslan yrði? Ef ég myndi skrifa hana með þá vitneskju að ég myndi ekki skrifa fleiri og deyja frá henni. Það tekur mig ca 30 mínútur að sætta mig við að ég sé að deyja - ég geri þetta í hvert skipti sem ég fer í flug.

En ég er nú ekki dauð ennþá og þeir sem koma hingað þó þeir þoli mig ekki (ljótu fávitarnir) þá geta þeir svekkt sig á því að það eru mjög litlar líkur á að ég sé að fara nokkuð... lengra en inní eldhús að lemja Margeir í hausinn þangað til hann til að játar að hann sé búinn að vera að eitra fyrir mér.

Helvítis melurinn.

---
Anna says: ég tek þessa keppni í ræktinni
Anna says: rúlla þér upp
XX says: hehe
XX says: ekki vera of viss
Anna says: heyrðu það er rétt
Anna says: kannski ligg ég bara á spítala allt árið
Anna says: helvítis
Anna says: úr leik by default
XX says: victory by hospitalization
Anna says: lol
XX says: kannski er ég að eitra fyrir þér
Anna says: andskotinn..


| anna | 21:52 | permalink | comments (3) |
Quote dagsins
Laugardagur, 21. febrúar 2009

"We accept the reality of the world with which we are presented. "

-- The Truman Show

Flestir gera þetta.

Það eru mistök - en flestir gera þetta.


| anna | 0:28 | permalink | comments (1) |
"Andaðu inn, andaðu frá þér og hættu að anda"
Mánudagur, 23. febrúar 2009

Ég fór í sneiðmyndatöku í dag og á morgun kemur í ljós hvort menn eru nær því að tímasetja fráfall mitt. Misjafnar skoðanir eru á hversu ótímabært það verður.

Á meðan ég var í myndatökunni var skuggaefni dælt inní blóðrásina til að lita blóðið. Mér var sagt að þessu myndi fylgja hitatilfinning, jafnvel skrítið bragð í munni, en það myndi líða hratt hjá. Hún tilkynnti mér svo hvenær hún byrjaði að dæla þessu í mig og ég verð að segja að ég hafði ekki hugmynd um hvað þetta gengur hratt fyrir sig þarna inní manni - og ef hún hefði ekki sagt mér frá þessari hitatilfinningu hefði ég sennilega flippað út þarna á sleðanum sem rúllaði mér fram og til baka. Djöfull var þetta skrítin upplifun að finna þetta dreifast um allan líkamann á split second.

Mér voru líka gefnar leiðbeiningar um hvernig ég átti að anda.

"Andaðu inn, andaðu frá þér og hættu að anda"

"Andaðu eðlilega"

Það er greinilegt að þetta ferli er margæft enda gekk þetta eins og smurt. Ég fékk upplýsingar um allt sem ég þurfti að vita, ekkert kom mér á óvart. Allt mjög skýrt og skilmerkilegt. Þegar ég var að klæða mig í fötin á eftir velti ég fyrir mér hvort þessum hluta "Andaðu eðlilega" hafi verið bætt við þegar fólk hætti bara að anda og byrjaði ekkert á því aftur.

Á leiðinni í vinnuna hringdi ég á verkstæðið og pantaði tíma fyrir bílinn. Það vælir svo í bremsunum eftir að þeir skiptu um bremsuklossa að það er að gera mig geðveika. Fyrst það er verið að rannsaka mig er alveg eins gott að láta rannsaka bílinn líka.


| anna | 18:02 | permalink | comments (1) |
Konudagurinn - í gær
Mánudagur, 23. febrúar 2009

Hann says: það kærir sig engin kona um bensínstöðvablómavönd á konudaginn
Anna says: auðvitað ekki
Anna says: er konudagurinn í dag?
Hann says: jamm
Anna says: jahérna
Anna says: ég vissi það ekki
Anna says: hvað á ég að gera fyrir mig
Hann says: þú átt ekkert að gera
Hann says: karlinn á að gera eitthvað
Anna says: ég á ekki karl
Hann says: eða einhverjir karlar
Hann says: hefði nú alveg getað sent þér vönd en þú hefðir örugglega tekið það óstinnt upp
Anna says: awww en þú sætur
Anna says: ég hefði orðið brjáluð
Hann says: þú hefðir bitchslappað mig
Anna says: já ég hefði sennilega gert það
Hann says: grunaði það


| anna | 18:48 | permalink | comments (15) |
Inner dialogue
Mánudagur, 23. febrúar 2009

Á leiðinni heim úr vinnunni var ég að velta fyrir mér af hverju fólk er svona á móti því að auka gagnsæi, t.d. á vinnustöðum. Ég rakti ástæðurnar fyrir því af hverju fólk vill hafa allt "leyni" og fann lausn sem myndi sjálfkrafa auka gagnsæi í öllu þjóðfélaginu.

Lausnin er: ókeypis sálfræðiþjónusta.

Þegar ég komst að þessari niðurstöðu fékk ég hláturskast í bílnum, mér finnst þetta svo fyndið - þó þetta sé auðvitað alvöru mál.

Ég ætla ekki að útskýra hvernig ég komst að þessari niðurstöðu, en ég er forvitin að vita hvort einhver hér sér samhengið?


| anna | 19:09 | permalink | comments (2) |
Online
Mánudagur, 23. febrúar 2009

Einkasonurinn var að eignast fyrstu tölvuna. Þetta er gamall laptop, sennilega fyrsti laptoppinn sem við pabbi hans nurluðum saman fyrir þegar við vorum gift. Að horfa á þetta flykki er eiginlega eins og að horfa á old school svarta ritvél.

Hann er gjörsamlega í skýjunum drengurinn og eftir að ég kom vélinni á netið er hann búinn að finna öll uppáhalds lögin sín á youtube.

Pabbi hans keypti nefnilega þráðlaust netkort í vélina.
Snillingur.


| anna | 20:14 | permalink | comments (2) |
"Ung og hraust manneskja..."
Þriðjudagur, 24. febrúar 2009

Hann hringdi í mig í hádeginu. Myndirnar eru fínar, það er ekkert að sjá á þeim. Hann sagði að lifrin mín er ekki "kreppu-lifur", þar sem það eru fínar fiturendur byrjaðar að formast í henni. Hann sagði að það væri svoleiðis hjá flestu fólki í dag, bendir til þess að ég sé að innbyrða of mikla orku og ég geti breytt þessu með því að hreyfa mig meira og borða hollari mat. Ekkert sem ég vissi ekki svosem. Ég hélt í mér að spyrja "ertu að segja að ég sé feit?" Einfaldlega vegna þess að hann var að segja það.

Ég var ánægð með að hann fyndi ekkert, en samt er ég ekki ánægð með að fá engar skýringar á þessum undarlega verk, sem ég var með on and off í allan dag.

Það er náttúrlega ekki nokkur einasta leið til að gera mér til hæfis.


| anna | 20:56 | permalink | comments (3) |
Ísland
Miðvikudagur, 25. febrúar 2009

"There's nothing so absurd that if you repeat it often enough,
people will believe it."

-- William James (1842-1910) The father of modern Psychology


| anna | 11:32 | permalink | comments (7) |
Já...
Fimmtudagur, 26. febrúar 2009

Það er þetta með upplýsingar.

Við höfum ekki nægilega miklar upplýsingar ennþá til að setja saman heildarmyndina og svikamyllan er sennilega miklu stærri en nokkurn óraði fyrir. Það er alveg gefið að þegar þú sérð ekki nema 20% af heildarmyndinni, þá geturðu ekki dregið mjög vitrænar ályktanir. Ef við bætum geðshræringu/vanmáttartilfinningu/hræðslu ofaná skort upplýsinga er nánast hægt að útiloka vitræna niðurstöðu.

Þessi þjóð má teljast heppin ef hún er með 20% af heildarmyndinni miðað við hvað fjölmiðlar bera á borð fyrir okkur.


| anna | 0:28 | permalink | comments (1) |
Ein komma ein í óumbeðin yfirdrátt
Fimmtudagur, 26. febrúar 2009

Ég lét fella niður heimildir í tveimur bönkum nýlega og fagnaði því að ég væri ekki með yfirdrátt. Þegar ég loggaði mig inná heimabankann rétt áðan brá mér þegar ég sá stöðuna, enda þótt ég vissi að ég ætti peninga þá vissi ég ekki til þess að ég ætti svona mikið. Ég loggaði mig inná reikninginn í hinum bankanum og rak upp stór augu. Samtals er búið að úthluta mér einni komma einni milljón í óumbeðin yfirdrátt - án yfirdráttarheimildanna eru báðir reikningarnir í plús.

Ljóta ruglið.

Ég var að senda tölvupóst á báða bankana og biðja um að heimildirnar verði felldar niður. Er yfirdráttur svo landlægur andskoti að það er ekki vinnandi vegur að losa sig við hann - þó maður sé ekki í mínus!


| anna | 21:27 | permalink | comments (5) |
Hvernig skilgreinir þú...
Föstudagur, 27. febrúar 2009

..orðið auðlindir?

Uppfært.

Best að útskýra spurninguna betur.

Er fiskur auðlind? En lóðin undir húsinu sem þú býrð í? En ef það finnst olía á lóðinni þinni? En Gullfoss? En lækjarspræna sem rennur í gegnum jörðina þína? En ef það er á? En ef það er lax í henni? En fjöll? En skógar?

Hvað er auðlind og hvernig myndu þið skilgreina auðlindir sem tilheyra þjóðinni vs auðlindir sem eru og mega vera í einkaeigu?

Uppfærsla tvö.

En banki? Er banki auðlind?


| anna | 19:19 | permalink | comments (82) |
Demit
Laugardagur, 28. febrúar 2009

Ég fer alltaf á massa bömmer yfir því að ég hafi ekki gerst dópisti og svo morðingi þegar ég horfi á myndina Nikita.

Nei ég segi nú bara svona.

Byrjaði kvöldið á því að sýna frumburðinum stórmyndina "Universal Soldier", sem er eitt vanmetnasta meistaraverk kvikmyndasögunnar.

Næst á dagskrá: Nikita.


| anna | 0:03 | permalink | comments (6) |

ravings í febrúar 2009
monthly archive

links
blogs
links - web