www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
x-lýðræði
Fimmtudagur, 08. janúar 2009

Nú veit ég hvað ég vil og ætla að kjósa.

Hvet alla til að lesa þessa grein.

Þetta er svar sem mótmælendur geta beitt fyrir sig þegar þeir fá þessa þreyttu spurningu: "ert þú með einhverjar lausnir?"


| anna | 11:11 |
comments

Þetta er vissulega mjög áhugaverð tillaga. Ég sá líka eina sem mér leist mæta vel á líka en hún var eitthvað á þessa leið:
"Það er einföld lausn til en hún er sú að losa sig við þá starfsstétt sem heitir "stjórnmálamenn". Megingrundvöllur spillingar er tilvist þessa starfs að vera "stjórnmálamaður", af því leiðir svo margt annað.
Ef svo væri búið um hnútanna að venjulegt fólk veljist inn þing sem væri það borgaraleg skylda og þeir setja bara eitt kjörtímabil þá mætti losa þjóðina úr þessum heljargreipum samtryggingar og "umhyggju" fyrrverandi stjórnmálamanna. Út frá þessu prinsippi held ég að ætti að velja þingmenn en svo ætti að kjósa framkvæmdavaldið sérstaklega.
Væri kannski ráð að sameina embætti forseta og forsætisráðherra."

Meginatriðið held ég að sé að vald spillir og algjört vald gerspillir.

Nr. 1 | posted by: Depeche | 8.01.2009 | 13:57:23 | [+] |

Eins og presturinn sagði forðum, hvað á flokkurinn að heita?

Nr. 2 | posted by: Outlaw | 8.01.2009 | 18:47:27 | [+] |

Ef ég fengi að ráða myndi hann kallast "Jónas", en það er bara vegna þess að ég kalla allt sem ég þekki ekki nafnið á: "jónas".

Þannig festist t.d. nafnið Jónas við lítinn kúst á heimilinu því ég veit ekki hvort þetta kallast handkústur eða hvað, svo hann heitir Jónas.

Nafnið kemur væntanlega í ljós, ekki mitt að ákveða.

Nr. 3 | posted by: anna | 8.01.2009 | 18:51:38 | [+] |

Grein Egils er annars nokkuð góð, en ég er ekki viss um að nýr flokkur eða afl sé lausnin (þó svo að ég myndi hugsanlega styðja hann því hina helvítis flokkana kýs ég aldrei aftur).

Vandinn er hvernig er farið með lýðræðið. Íslendingar eru vanir meirihlutalýðræði. Það er, stjórnarflokkar hvers tíma hlusta nákvæmlega ekkert á minni hlutann. Á hinum Norðurlöndunum er það venja, að stjórnarflokkar boða minnihluta til umræðu um hina ýmsu málaflokka fyrir gerð fjárlaga, sem gerir það að verkum að breiðari stuðningur fæst við hvern málaflokk. Ástæðan er að velferðarkerfin þar byggja meira á jafnræði -- og jafnaðarmannastefnu -- en tilfellið er á Íslandi. Við fórum beint úr torfkofanum í hönnuðu glanstímarita-hýbilin, og þaðan beint á hausinn. wink

Nr. 4 | posted by: Outlaw | 8.01.2009 | 19:43:20 | [+] |

Outlaw:

Það er rétt hjá þér að vandinn er að hluta til hvernig farið er með lýðræðið. En til að leysa vandann þarf fyrst að greina hann rétt. Ég hef reynt að gera það.

Ein ástæðan fyri því vandamáli sem þú lýsir þ.e. að þingmenn vinni ekki saman hér á landi eins og annars staðar á norðurlöndum þó í mismunandi flokkum séu er einmitt vegna ofurvalds framkvæmdavaldsins. Það leiðir af sér sérhagsmunagæslu og spillingu. Hvernig færi ég rök fyrir þessu?

Jú, þegar þingmenn flokka eiga allt sitt undir framkvæmdavaldinu sem stjórnar öllum peningum og í raun löggjöfinni þá einfaldlega velur hinn almenni þingmaður að hlýða ráðherrum síns flokks.

Þess vegna sitja þingmenn á þingflokksfundum eins og hlýðnir rakkar og samþykkja frumvörp ráðherra eins og Chaplin á færibandinu í Nútímanum.

Ef aftur á móti löggjafarvaldið væri öflugra og vægi persónukosninga meira þá væri vægi þingmanna meira og ráðherra minna.

En ef þú lest tillöguna nánar þá er einmitt hugmyndin að reglum lýðræðisins yrði breytt þannig að löggjafarvaldið styrkist á kostnað framkvæmdavaldsins.

Ég mæli einnig með til að auka skilning á tillögunni að þú lesir slóðir á nokkrar fleiri bloggfærslur neðst í fyrrgreindri grein. Þar er einmitt fjallað um ýmsar fleiri lausnir og bendi ég sérstaklega á hugmynd til að styrkja 12 fastanefndir þingsins.

Nr. 5 | posted by: egill | 9.01.2009 | 0:14:23 | [+] |

Takk fyrir tilvísinir, Egill, þetta eru áhugaverðar vangaveltur, og í raun erfitt að vera ósammála.

Mér finnst það hafa komið berlega í ljós á síðustu mánuðum hve valdalítið (ef ekki -laust) löggjafarvaldið er; það hefur valdið í orði, en framkvæmdavald hefur það á borði.

Vandinn er að koma lausnum að. Það er búið að slá miklum múr í kringum valdagræðgina. Það er verið að bjarga flokkunum og flokkakerfinu, ég sé lítil ef nokkur sönnunargögn þess að eitthvað sé gert fyrir fólkið í landinu.

Vandinn er líka, það það er allt of mikið af kjósendum sem trúa blint á valdið.

Kaldhæðni örlaganna er, að þetta er samfélagið sem hippakynslóðin er að skila í hendurnar á okkur hinum, svo hún geti notið eftirlaunanna, heilbrigðiskerfisins og skuldlausu eignanna.

Nr. 6 | posted by: Outlaw | 9.01.2009 | 20:16:49 | [+] |

Outlaw:

Get varla verið meira sammála þér.

Nr. 7 | posted by: egill | 9.01.2009 | 22:46:29 | [+] |

Kannski að pólskt yfirvaraskegg og Samstaða sé málið?

Nr. 8 | posted by: Outlaw | 10.01.2009 | 15:02:21 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web