www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Víti
Miðvikudagur, 07. janúar 2009

Er enginn orðin þreyttur á íslensku vídeóleigu-aðferðinni?

Af hverju gefur fólk sér að vegna þess að það er búið að reisa álver, þá sé ekki hægt að gera neitt annað en það í framtíðinni?

Ég er með tillögu um hvað skal gera til að afla ríkinu tekna og hún er eftirfarandi:

Lögleiðum fjárhættuspil á einum stað á landinu. Setjum á laggirnar spilavíti fyrir ógeðslega ríkt fólk einhversstaðar útí óbyggðum, eða nálægt borginni. Hef ekki myndað mér skoðun um hvar þetta ætti að vera, enda er ég vanhæf til þess, þekki þetta land ekki - en ég hef það fyrir satt að hér sé fallegt land með fullt af fallegu landslagi og ég hef séð myndir sem styrkja þessar sögusagnir.

Huggulegt, sæmilega stórt hótel, ekki ofhlaðið og ekki kalt og gróðæris-ógeðslegt. Klassískt. Ritz thing. Fólkið getur slakað á og farið í nudd á daginn, svoleiðis juðað á sig allskonar íslenskum jurtum og leðju, borðað skyr og lambakjöt, andað að sér hreinu lofti og á kvöldin klæðir það sig upp og spilar fjárhættuspil fyrir obscene upphæðir. Allur ágóði fer í ríkissjóð.

Dílearar - slatti
Barþjónar - nokkrir
Bílstjórar - nokkrir
Þyrluflugmenn - allavega tveir, fólk þarf að komast á milli staða
Gengilbeinur - slatti
Þjónar - slatti
Kokkar - allavega sex
Dyraverðir/öryggisverðir - mökkur
Starfsmenn í móttöku - slatti
Vikapiltar (heitir það ekki það annars?) - slatti
Nuddarar - allavega tíu
Öryggisverðir - mökkur
Eftirlitsmenn - sjá um myndavélar, verða að vera nokkrir
Gjaldkerar - allavega sex (þrír á hverri vakt)
Ræstitæknar - mökkur
Herbergisþernur - slatti
Líkamsræktar.. eitthvað fólk - slatti
o.s.frv.

Ef þetta væri hæfilega stórt þá gæti það skapað fleiri störf en nokkurt álver. Arðvænlegra, umhverfisvænna og skemmtilegra.

Fjárhættuspil blómstrar alltaf í kreppu og heimurinn er going down the toilet. Á sama tíma er fullt af fólki búið að maka krókinn í gróðærinu og á svo mikið af peningum að þó það hefði fullan vilja gæti það ekki eytt öllu draslinu þó það yrði 200 ára. Þessu fólki leiðist lífið og þarf mikið af allskonar afþreyingu. Oftar en ekki er líka mikill metingur hjá svona ríku fólki svo það þarf ekki annað en að fá einn flottann ríkann pappakassa til að hinir komi líka.

Þá gætu útrásarvíkingarnir okkar sinnt þegnskyldu og markaðssett þetta í kreðsunum.

Við gætum haldið heimsmeistaramót í póker árlega þar sem pöpullinn fær að taka þátt með atvinnumönnum og auðmönnum og fullt annað skemmtilegt sem laðar hingað fleiri ferðamenn..

Þessi ríkisstofnun væri kölluð: Víti.

Eins og ég skrifaði áður þá er þetta ekki hugsað fyrir almenning, þetta er hugsað fyrir ríkt fólk, sem myndi mögulega skella sér í einhverjar ævintýraferðir og skoða landið og ef við markaðssetjum þetta rétt gætum við stórgrætt á þessu.

Við gætum líka alveg skírt þetta Helvíti. Stjórnvöld eru búin að selja skrattanum sál sína fyrir peninga. Ég legg til að við förum þá og náum í peningana okkar á réttum stað, á löglegan hátt og án þess að nauðga landinu okkar mikið á meðan við erum að því.

Þetta er sennilega töluvert ódýrara í uppsetningu en álver.


| anna | 19:29 |
comments

Mögnuð hugmynd. Nafnið Víti steinliggur. Staðarvalið er augljóst. Við "bláa" lónið á Mývatni.

Eftir hverju er verið að bíða?

Nr. 1 | posted by: egill | 7.01.2009 | 20:07:38 | [+] |

Nákvæmlega!

Nr. 2 | posted by: anna | 7.01.2009 | 20:11:34 | [+] |

Og já, Anna, landið er svona fallegt eins og af er látið.

Nr. 3 | posted by: egill | 7.01.2009 | 20:29:56 | [+] |

Anna,
Það er ólöglegt að stunda fjárhættuspil á Íslandi. Það er bara samkvæmt sérstökum leyfum sem má reka happdrætti. Spilavíti eru gróðrarstía spillingar og lauslætis og ekki viljum við slíkt siðferði í okkar fagra landi melodramatic
Þar að auki er afar litlar líkur á því að reist verði nýtt álver hér á næstunni einfaldlega vegna heimsmarkaðsverðs á áli. Ég væri hins vegar alveg til í svo sem 3-5 netþjónabú hist og her um landið en þá þarf að virkja meira og ekki má það , eða hvað ?

Nr. 4 | posted by: Depeche | 7.01.2009 | 20:30:00 | [+] |

Nei, Depeche.

Fjárhættuspil þarf ekki að vera ólöglegt. Sjáðu. Lottó. Háspenna. Happdrætti Das. Happdrætti háskólanns. IceSave.

Bara spurning um að ríkið gefi leyfi. Þá er málið í höfn.

Nr. 5 | posted by: egill | 7.01.2009 | 20:33:40 | [+] |

Það er bara hræsni þegar menn segja að fjárhættuspil sé ólöglegt hérna. Það eru spilakassar útum allt og lottó. Sýnist póker stefna í að vera þjóðarsport á einkaheimilum.

Það er fullt af spillingu hér fyrir svo spilavíti á vel við. Lauslæti. Já blessaður! Eigum við að ræða það eitthvað? Má ekki nýta þær náttúruauðlindir sem aðrar? (segi svona)

Hvar sagði ég að ég væri á móti netþjónabúi? Ég er mjög fylgjandi því. Má ekki gera bæði? Það þarf ekkert að virkja meira til að setja upp þannig. Það get ég ekki séð.

Nr. 6 | posted by: anna | 7.01.2009 | 20:38:44 | [+] |

ps. Egill, ég trúi þér með þetta að landið sé fallegt. Ég spái því að ég finni einhvertíma mann sem á eftir að draga mig um landið þvert og endilangt og þvinga mig jafnvel til að sofa í tjaldi.

Og ef ég sýni mikinn mótþróa verður mér REFSAÐ.

colgate

Nr. 7 | posted by: anna | 7.01.2009 | 20:42:50 | [+] |

Egill, mig vantar bíl
Anna, 3-5 netþjónabú kalla á virkjun(punktur) og þú horfir of oft á Næturvaktina angel

Nr. 8 | posted by: Depeche | 7.01.2009 | 20:46:35 | [+] |

Actually.. þá hef ég bara séð einn þátt af næturvaktinni. Þess vegna er ég svona hallærisleg og ári (eða tveimur árum) á eftir með slangrið. wink

Nr. 9 | posted by: anna | 7.01.2009 | 20:51:50 | [+] |

Depeche. Hafðu samband við mig. Ég á slatta.

Nr. 10 | posted by: egill | 7.01.2009 | 21:00:11 | [+] |

Ég er með aðra hugmynd og hún kviknaði í Grasagarðinum.

Af hverju látum við ekki þann ágæta garð standa undir nafni!

Girðum hann af og bjóðum útlendingum að reykja sig skakka eins og þeir vilja gegn vænri greiðslu. Þegar þeir fá the munchies geta þeir fengið keypt flatbrauð með hangiketi eins og þeir geta í sig látið (gegn vænri greiðslu). Í Evrum, Dollurum, Jenum eða Svissneskum. Landbúnaðurinn og ferðabransinn græða feitt.

Auglýsingin væri: Come to "Smokey Bay" and and spend three weeks in the "herbal-park"

Er eitthvað hægt að tapa á þessu eða?

Nr. 11 | posted by: Jón Heiðar | 7.01.2009 | 21:29:39 | [+] |

Anna,
Ég er með betri hugmynd. Það er gráupplagt að setja upp massíve dildófabríkku á Húsavík. Í fyrsta lagi eru Norðanmenn yfirlýst kyntröll eins og sú staðreynd að það voru stofnaðir c.a 10 nektardansstaðir á Akureyri þegar þetta var fyrst leyft en c.a 3 í Reykjavik sýnir .cool Í öðru lagi er þetta bara hrein ánægja og verðugt til útflutnings í titrandi fomi eða sem ID(Inert Dildo). what
Það er að vísu ansi mikið af plasti sem fer í þetta og plast er víst unnið úr olíu weepy

Nr. 12 | posted by: Depeche | 7.01.2009 | 21:32:02 | [+] |

Clean Icelandic weed!

Mér er reyndar meira illa við eiturlyf en fjárhættuspil.

Ég sé ekki massíva tekjumöguleika af titrurum. Í kreppu stundar fólk vissulega meira kynlíf, en yfirleitt með einhverjum því fólk sækir í nánd og hlýju mitt í allri ömurðinni.

En ég hvet þig til að prófa!

Nr. 13 | posted by: anna | 7.01.2009 | 21:37:40 | [+] |

Mér finnst þessi hugmynd mjög góð eftir langa meltingu. Þú verður líklega að fara í framboð til að tryggja framgang málsins. Ég kýs þig.

Nr. 14 | posted by: Kristín | 7.01.2009 | 21:45:25 | [+] |

Takk fyrir síðast Kristín!

Já ég held að það sé hægt að gera margt vitlausara en þetta.

Helvítis fokking, fokk flokkurinn.

Nr. 15 | posted by: anna | 7.01.2009 | 22:00:07 | [+] |

Ég veit þetta kemur mjög asnalega út, en ég held ég elski þig!

Nr. 16 | posted by: Pjétur G | 7.01.2009 | 22:27:49 | [+] |

Það þarf að virkja fyrir gagnaver, jámm. Taka hellings orku. Það verður virkjað, við verðum að horfast í augu við það, en plísplísplííhs, ekki fyrir fleiri álver. Nóg þegar!

Nr. 17 | posted by: hildigunnur | 7.01.2009 | 22:41:28 | [+] |

Takk sömuleiðis. Varðandi líkamsræktar... fólk eitthvað. Eru það ekki líkamsræktendur?

Nr. 18 | posted by: Kristín | 8.01.2009 | 7:39:57 | [+] |

Frábær að venju!!

Nr. 19 | posted by: Birna | 8.01.2009 | 8:41:18 | [+] |

Asskoti er ég ánægð með þessa hugmynd. Gerum'etta!

Fyrir mörgum, mörgum árum sagði ég að við ættum bara að gera smáríkið Ísland að fríríki eins og Mónakó - aldrei hlustað á mann - held að margt sé vitlausara en sú hugmynd...... en mér finnst þessi hugmynd frábær....ekki verra að ég gæti fengið vinnu þarna sem líkamsræktandi á sumrin með heavy tips og læti winky

Nr. 20 | posted by: lindablinda | 8.01.2009 | 9:12:06 | [+] |

úúúÚÚÚÚúúúú ég er komin á séns!

Já þetta á að vera "einkaþjálfarar" og þannig fólk, eins og Linda! Því ég reikna með að margir af þessum ríku vilji hreyfa sig í vernduðu umhverfi líka.

Nr. 21 | posted by: anna | 8.01.2009 | 10:04:27 | [+] |

Pjetur er kúl töffari, ég hef verið einn leyndra aðdáenda hans lengi.

Nr. 22 | posted by: AlanHudson | 14.01.2009 | 14:31:53 | [+] |

Já ég veit, og ég hræddi hann í burtu. It's the story of my life.

Getur einhver sagt mér af hverju taka menn því svona illa þegar ég bið þá um að giftast mér í fyrsta tölvupóstinum? Ætli það virki desperate?

HVAÐ ER ÉG AÐ GERA RANGT!

(Smá grín, ekki vera hræddur Pjétur)

Nr. 23 | posted by: anna | 15.01.2009 | 1:54:47 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web