Föstudagur, 30. janúar 2009
Dagurinn byrjaði á því að ég fékk góðar fréttir og get hætt að pæla í bréfi sem ég fann í póstkassanum um daginn sem var búið að liggja þar í einhvern tíma. Eins og venjulega er þetta sennilega versta leiðin til að ná í mig, að senda mér bréf.
Ég er búin að borga niður yfirdráttinn minn og láta fella heimildina úr gildi. Þrátt fyrir að þetta hafi verið eini drátturinn sem ég hef alltaf getað gengið að vísum, þá græt ég brotthvarf hans þurrum tárum.
Þetta gerist hægt, en bítandi. Ég er ekki með nein lán lengur í bönkum og nú þegar yfirdrátturinn er farinn er ég hætt að vera áskrifandi að vöxtum.
Er bara nokkuð ánægð með lífið og tilveruna - og haldiði að sólin hafi ekki verið að brjóta sér leið í gegnum skýin líka!
Svona á þetta að vera.