Mánudagur, 19. janúar 2009
Ég á ekkert erfitt með að trúa því að konur sem eiga ríka menn fái fleiri fullnægingar og lifi betra kynlífi en konur sem eiga... tökum nærtækt dæmi: engan mann.
Og það kemur mér ekkert sérstaklega á óvart heldur.
Hvernig var þetta í gamla daga?
Karlmenn sáu um að vernda konuna og börnin fyrir allskonar skrímslum og öðrum karlmönnum. Karlmaðurinn veiddi mat og sá um önnur praktísk atriði eins og að bera þunga hluti - eitthvað sem ég t.d. þreytist ekki á að horfa á.
Hvernig vernda menn konuna sína og börnin í dag? Með peningum. Með peningum geta þeir keypt húsnæði sem veitir skjól fyrir veðrum og vindum. Þeir hafa efni á að borga hita, sem gerir húsið notalegt, þeir geta keypt bíl sem bilar ekki, þeir kaupa mat og margir kaupa húshjálp svo engin þarf að eyða tíma í að þrífa.
Hvað veitir fólki vellíðan? Af hverju líður stórum hluta af Íslendingum ekkert vel þessa dagana? Af því við búum við óöryggi. Við búum samt við töluvert meira öryggi en stór hluti mannkyns, en núna vitum við ekkert hvernig staðan er, það virðist engin vita það. Það getur af sér óöryggi og vanlíðan og öryggið okkar minnkar í jöfnu hlutfalli við fréttir af allskonar rugl dílum og skuldaklafa sem hækkar bara og hækkar.
Kona sem er úttauguð af áhyggjum yfir því hvernig hún á að útvega börnunum sínum húsaskjól, mat, föt, læknisþjónustu og þessháttar er einfaldlega ekkert að fara að henda sér uppí rúm og slaka á til að fá einhverjar mega raðfullnægingar tímunum saman. Hún er of úttauguð til þess.
Ég held hinsvegar að það breyti engu hvort karlinn eða konan er rík, kynlífið verður alltaf betra ef þér líður vel og býrð við öryggi.
Þó ekki væri nema bara tilfinningalegt.