www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Procrastination
Mánudagur, 19. janúar 2009

Ég var að mæla hárin á fótleggjunum og fann eitt sem er næstum tveir cm að lengd! Hvað er í þessu spirulina dóti eiginlega?

Mér finnst ég standa á krossgötum: hvort á ég að fjarlægja hárin eða fara að safna fyrir alvöru? Hvað geta hár á fótleggjum eiginlega orðið löng? Er raunhæft að flétta eftir.. tvo mánuði? Hvernig kæmi það út við bikiní? Myndi maður nota litaðar teygjur?

Þetta er hluti af þeirri martröð sem fylgir því að vera fullorðin. Ég þarf að taka ákvörðun í þessu máli en mér finnst þetta orðið svo mikið að ég óttast aðskilnaðarkvíða ef ég tek þetta allt á einu bretti. Þetta er orðinn svo stór hluti af mér, hlutfallslega - í hárum.

Best að sofa á þessu.

Ég er samt ekkert smá fegin að það var hætt við "casual friday" í vinnunni þar sem allir áttu að mæta í stuttbuxum.


| anna | 20:25 |
comments

Ég er fimmtug og hef aldrei þurft að raka á mér leggina, það vaxa engin hár þar eða á handleggjum. Vinkonur mínar hata mig þótt þær ættu þar með að vita að ég verði aldrei rík.

Nr. 1 | posted by: Gurrí | 19.01.2009 | 20:53:31 | [+] |

Það eina sem ég er rík af eru hár á fótleggjunum þessa dagana. Mig langar að láta lasera mig í drasl.

Finnst nú overkill að hata þig Gurrí, en ég spyr mig af hverju vísindamenn eru ekki að kanna genin þín og reyna að finna út hvað veldur þessu - og af hverju það er ekki löngu búið að búa til varanlega lausn fyrir okkur hinar!

Sennilega er ég bara í vetrarham. Á fótunum.

Nr. 2 | posted by: anna | 19.01.2009 | 20:58:35 | [+] |

Þetta er mjög athyglisverð spurning. Ég legg til að þú látir hárið vera, en farir líka út í umfangsmiklar hárrannsóknir. Þannig getur þú rakað smá svæði og mælt svo vaxtarhraðann, borinn saman við viðmiðunarsvæði sem er órakað. Eins getur þú gert stinnleikapróf á hárunum frá þessum tveimur svæðum til að prófa tilgátuna um aukinn stinnleika rakaðra hára.

Nr. 3 | posted by: AlanHudson | 19.01.2009 | 20:58:49 | [+] |

Þú gerir þetta svo flókið Alan ég fæ kvíðakast og verður illt í öllum tilfinningunum mínum! melodramatic

Þetta er engin smá vinna!

Nr. 4 | posted by: anna | 19.01.2009 | 21:03:50 | [+] |

Quote: "Procrastination is like masturbation. At first you'll like it, but then you'll realise your justed fucking yourself."

Biðst velvirðingar á orðalaginu, en hef alltaf verið mjög hrifinn af þessu statement'i
Ég hef gjarnan verið frestari dauðans - titillinn þinn minnti mig bara á þetta hmmm

Nr. 5 | posted by: Baddi | 20.01.2009 | 0:17:41 | [+] |

Fucking yourself. Það minnir mig á - verð að rjúka..

Nr. 6 | posted by: anna | 20.01.2009 | 0:39:05 | [+] |

0 back in 10 meinarðu?

Justed þarna er greinilega nýrði annars ...

Nr. 7 | posted by: Baddi | 20.01.2009 | 0:42:49 | [+] |

lol nýrði augljóslega nýyrði líka...
Þvílíkur snillingur sem gaurinn er á lyklaborðinu.
Ertu annars ekki snillingur í arðsemisgreiningu? Er í þvílíkum frestunargír með þetta verkefni....úff úff

Nr. 8 | posted by: Baddi | 20.01.2009 | 0:48:49 | [+] |

lol nýrði augljóslega nýyrði líka...
Þvílíkur snillingur sem gaurinn er á lyklaborðinu.
Ertu annars ekki snillingur í arðsemisgreiningu? Er í þvílíkum frestunargír með þetta verkefni....úff úff

Nr. 9 | posted by: Baddi | 20.01.2009 | 0:49:32 | [+] |

Þetta var nú yndislegt.

Arðsemisgreiningu? Nei. Hvernig dettur þér að spyrja mig að svona þegar ég er nýbúin að.. þvo á mér hárið. ha? Jesús..

MÚHOHOHOHOHOHOHO

Nr. 10 | posted by: anna | 20.01.2009 | 0:58:37 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web