Föstudagur, 30. janúar 2009
Í kvöld hræktu örlögin framan í mig. Ég stóð, meðal fjölda fólks, og sá að vefurinn sem var tilnefndur til verðlauna hafði í raun ekki komist á blað. Í stað marel.com var varpað á skjáinn vefnum marel.is, sem var bara alls ekki í umræðunni. Que?
Að sjálfsögðu vann marel.is ekki, enda er það bara smávefur sem settur var upp fyrir einhverja glæpaþjóð sem býr útí sjó einhversstaðar og öllum er illa við. Neinei, segi svona. Það hefði reyndar liðið yfir mig ef marel.com hefði unnið þetta eins og vefurinn er í dag, en mér þótti verulega gaman að fá tilnefningu - og reikna með að hún hafi verið fyrir marel.com þó marel.is hafi verið presentaður þarna, mér til furðu.
Áður en ég fór út í kvöld sagði ég dóttur minni að ég væri að fara á verðlaunaafhendingu og ef Marel myndi vinna kæmi ég sennilega heim eftir mánuð, ennþá verulega drukkin. Ef Marel myndi ekki vinna kæmi ég heim eftir klukkutíma og við myndum horfa á Life of Brian saman. Henni leist ljómandi vel á þetta plan.
Hún veit er að ég er arfaslappur drykkjumaður og hún veit líka að ég setti endurnýjun á árskorti í líkamsrækt í fjárlögin fyrir febrúar svo ég fer sennilega frekar að æfa um helgina en á fyllerí.
Annars var þetta mjög flott umgjörð í ár utanum vefverðlaunin, haldið í Hafnarhúsinu. Ég komst því miður ekki á ráðstefnuna á undan eins og ég hafði ætlað mér, kom upp verkefni í vinnunni sem þurfti að sinna. Hitti marga snillinga í bransanum, m.a. einn úr dómnefndinni sem kvartaði sárann yfir að hafa ekki haft rænu á að hringja í mig svo ég gæti mútað honum. Helvítis rassgat var það. Besti vefurinn var siminn.is og besti fyrirtækjavefurinn var postur.is.
Það sem stóð uppúr hjá mér í kvöld var þegar Þórólfur Árnason, sem var heiðursgestur samkomunnar þar sem engin veit hver er ráðherra um þessar mundir, hvatti fólk til að taka þátt í umræðunni á vefnum, skipta sér af væntanlegu stjórnlagaþingi því það kemur okkur öllum við og taka þátt í lýðveldisbyltingunni á Íslandi.
Það þótt mér töff.
Núna ætla ég hinsvegar að tæta mig úr fötunum, sveipa um mig teppi, leggjast í sófann og glápa á Life of Brian með dóttur minni.
Og fuck it - líkamsrækt um helgina svo þetta er síðasti dagur í sukki, best ég panti pizzu líka..