www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Landafræði
Sunnudagur, 04. janúar 2009

Ég legg til að bandaríkjamenn rými Utah fylki og flytji Ísrael þangað. Gefi Palestínu landið sitt aftur og allir geta verið glaðir á ný. Þetta væri frekar auðvelt í framkvæmd, Ísraelar eru vanir menn. Bara ógna fólknu í Utah og taka húsin þeirra og eigur. Drepa þá sem eru með eitthvað múður. Er eitthvað að því?

Utah er miklu stærra landsvæði en Ísrael svo plássleysi væri ekki vandamál fyrr en eftir mörg ár og þá myndu þeir bara taka yfir næstu fylki.

Það verður aldrei samið um frið þar sem Ísrael er í dag. Það hefur aldrei verið neinn grundvöllur fyrir friði. Ekkert frekar en það væri grundvöllur fyrir friði í einbýlishúsi þar sem hverfaráð þremur bæjum norðar ákveður að þriggja manna fjölskylda fái stofuna hjá einhverju fólki sem veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Fólkið sem bjó í húsinu fyrir fær ekkert um þessa ákvörðun að segja og situr uppi með ókunnuga fjölskyldu í stofunni - sem veður uppi með frekju og yfirgang og fer að fjölga sér. Nú er svo komið að fjölskyldan sem átti húsið skuldlaust í upphafi er komin niður í kjallara í hlekki, matarlaust, rafmagnslaust, mannréttindalaust og þriggja manna fjölskyldan búin að fjölga sér svo mikið að þau þurfa meira pláss, svo þau eru byrjuð að skjóta fólkið í kjallaranum í hausinn til að rýma herbergi fyrir afkvæmi sín.

Mun þetta fólk einhvertíma búa saman í sátt og samlyndi?

Þarf að ræða þetta?

Það þarf ekkert að viðurkenna tilvist eins eða neins, þetta er bara spurning um staðsetningu og landsvæði. Utah er málið. Steinliggur og Ísraelum myndi líða alveg eins og heima hjá sér þarna með hatur í ríkjunum allt í kring.

Ég hugsa að hörðustu viðbrögð sem við sæum í heimnum ef þetta væri framkvæmt, væri "fordæming á ástandinu" og síðan hvenær hafa Ísraelar látið þannig væl brjóta sig niður?

Á eftir yrði þetta hinsvegar innanríkismál Bandaríkjanna sem gerir það ennþá auðveldara fyrir heiminn að ignora fjöldamorð Ísraela fullkomlega.


| anna | 22:01 |
comments

Jú þetta er rétt hjá þér. Það þarf alla vega að athuga þetta mál.

Skrýtnast finnst mér alltaf að fólki finnist skrýtið að friður ekki ríki þarna!

Nr. 1 | posted by: Birna | 5.01.2009 | 7:32:47 | [+] |

Mér finnst skrítnast og eiginlega flippað að grundvöllur þessa gjörnings, að úthluta Ísraelum þetta land á sínum tíma, er bók með inniheldur ævintýri og munnmælasögur!

Ég trúi því varla ennþá, mér finnst það svo absúrd.

Stríð er ekki rétta orðið yfir það sem er að gerast á Gaza.

Palestinian medical sources say Israeli forces have killed 37 Palestinians, both civilians and militants since moving into the territory Saturday night.

With those deaths, at least 507 Palestinians, including about 100 women and children, have been killed in the week-long military operation, and 2,600 Palestinians have been injured, most of them civilians, sources said.

An Israeli soldier was killed and another was seriously wounded near Jabalya in northern Gaza, according to the Israeli military. It marks the first Israeli military death since the ground operation was launched Saturday night.

Nr. 2 | posted by: anna | 5.01.2009 | 7:42:36 | [+] |

Mikið er þetta snilldarleg hugmynd hjá þér! Væru Bandaríkjamenn ekki bara hæstánægðir að fá þessa góðvini sína til sín? Það held ég.


Nr. 3 | posted by: Vala | 5.01.2009 | 17:58:47 | [+] |

Mér finnst þetta allavega betri hugmynd en að hafa þá þar sem þeir eru í dag.

Nr. 4 | posted by: anna | 5.01.2009 | 18:14:37 | [+] |

afbragðsgóð tillaga.

Nr. 5 | posted by: baun | 5.01.2009 | 19:54:42 | [+] |

Þetta er frábær hugmynd! Þeir gætu meira að segja farið í spásseritúra ofaní Salt Lake.

Nr. 6 | posted by: AlanHudson | 5.01.2009 | 21:35:50 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web