www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Hvað ef...
Miðvikudagur, 14. janúar 2009

Á fimmtudaginn í síðustu viku las ég blogg eftir Egil í Brimborg sem ég kynntist lauslega fyrir tveimur árum þegar markaðsdeild Brimborgar útvegaði mér Ford GT bíl eina kvöldstund vegna nokkurs konar gjörnings sem tengdist afmælinu mínu. Ég var með hann í tenglalistanum hér á blogginu en stuttu eftir að bankarnir féllu færði ég hann efst í tenglalistann vegna þess að mér fannst hann skrifa færslur sem meikuðu sense og mér fannst bara ekkert of margir vera að gera það.

En þennan fimmtudag las ég færslu sem hann kallaði "Nýtt sjálfseyðandi lýðræðisbreytingaafl" og ég sá í kommentunum tillögu um að koma þessu á wikipedia form svo fólk gæti þróað hugmyndina áfram saman.

Þar sem ég hef séð að margir eru að hugsa mjög svipað og Egill, setti ég inn færslu á bloggið mitt þar sem ég linkaði á færsluna hans, sendi Agli póst og spurði hvort hann hefði eitthvað á móti því þó ég myndi setja upp wiki fyrir þessar hugmyndir þar sem allir geta tekið þátt í að þróa þær áfram og eins og mig grunaði sagði hann já. Næst sendi ég nágranna mínum, sem er mikill snillingur, póst og spurði hvort hann gæti hjálpað mér með þetta verkefni, hann stakk uppá að finna lén fyrir verkefnið og taka þetta alla leið. Mér fannst þetta snilldarhugmynd og daginn eftir skráði ég lénið www.lydveldisbyltingin.is.

Eftir talsverða leit að hýsingu talaði ég við Stephen vin minn á Írlandi sem setti upp wikipedia fyrir mig og þann 13. janúar opnaði vefurinn alveg hrár. Það tók innan við sólarhring að finna mann sem bæði kann á wiki kerfið og bauðst til að taka að sér að vera umsjónarmaður, og engin smá umsjónarmaður, hann er að massa þetta!

Eins og áður sagði var vefurinn er kynntur til leiks algjörlega hrár, hugmyndin er að þátttakendurnir móti sjálfir verklagsreglur og taki þátt í að byggja upp vefinn frá grunni. Þetta er einfalt kerfi og hver sem er ætti að geta sett inn efni. Ég veit ekkert hvað gerist, það á eftir að koma í ljós. Ég veit ekki hvort lýðræði virkar í praxís, en ég hef trú á að það sé hægt að vinna tillögur svona "live". Og mér finnst fullkomlega þess virði að láta á það reyna.

Ég er strax farin að fá komment á msn frá hinum og þessum: "verður bara ekki skríll þarna inni?" "veit fólk hvað það er að gera?" Sumir spyrja "hverjir eru í forsvari?" "hver stjórnar?"

Ég spyr: hver stjórnar alfræðiritinu wikipedia? Þar eru fleiri milljón manna að vinna saman af skynsemi og.. hugsjón.

Hvað ef Íslendingar geta unnið saman af hugsjón og skynsemi?
Er það svo flippuð hugmynd?

Ég hlakka mikið til að sjá hvernig þetta þróast því í raun er þetta komið úr mínum höndum og yfir í hendurnar á öllum Íslendingum sem láta sig málið varða.

Og ég veit.. ég er vön því að vera "bubble gum" bloggari sem tek lífinu hóflega alvarlega - og ég er þannig - en það er líka löngu ljóst að það kynnist engin Önnu sem les bara anna.is.

Ég hef svo helvíti margar hliðar - it's a curse - og ég hef alltaf fengið kikk útúr því að sjá fólk og hugmyndir blómstra og ég er að vona að þetta verði til þess að hugmyndin fái að blómstra því ég held að þetta sé eitt af því sem Íslendingar þurfa núna: breytt stjórnkerfi.


| anna | 23:14 |
comments

Þú ert ekki bubble gum bloggari, heldur go go girl.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 15.01.2009 | 10:38:05 | [+] |

Er munur?

Nr. 2 | posted by: anna | 15.01.2009 | 11:04:00 | [+] |

Gott framtak!

Nr. 3 | posted by: Eirikur | 15.01.2009 | 11:36:55 | [+] |

Það ætla ég að vona, bubble gum bloggari er nefnilega of klístruð lýsing á fólki sem lætur verkin tala.

Nr. 4 | posted by: AlanHudson | 15.01.2009 | 12:13:45 | [+] |

Er það furða þó ég geri eitthvað.. búin að liggja í sófanum eins og dauð fluga mánuðum saman.

Ég vona svo heitt að fólk nái að vinna saman þarna. Það eru svo margar góðar hugmyndir að gerjast, gerir mig stolta af því að vera Íslendingur og það er eitthvað sem ég þurfti á að halda.

Nr. 5 | posted by: anna | 15.01.2009 | 13:46:17 | [+] |

Frábært framtak ... nú verða allir að leggjast á árarnar svo við náum landi á Íslandi hinu nýja.

Nr. 6 | posted by: Sliban | 15.01.2009 | 14:25:49 | [+] |

Þetta er brilliant hugmynd, og getur hæglega velt stórum steini ef vel tekst til!

Það er nákvæmlega nútíma upplýsingatækni sem hefur hjálpað öðrum þjóðum að brjótast úr viðjum einræðis og harðstjórnar, þar sem fjölmiðlum er stjórnað, og erfitt fyrir einstaklinga og hópa að mynda mótafl. Farsímarnir hafa tengt fólk saman á nýjan hátt, sbr. hérna: http://mobileactive.org/mobiles-in-mass-organizing

Það er krækja á Manuel Castells, sem er spænskur prófessor í félagsfræði, og hefur skrifað mjög margt áhugavert um þessa þróun. Ég held samt, Anna, að þú hafir tekið lengra skref, frá skoðanaskiptun til mótunar nýrrar stefnu með þessari tækni.


Nr. 7 | posted by: Outlaw | 15.01.2009 | 18:25:46 | [+] |

Já ég vona allavega að þetta skili einhverju góðu. Ég er komin í samband við manninn sem átti hugmyndina, sem er Íslendingur í Ástralíu, og hann ætlar að hjálpa við að strúktúra efnið.

Mér finnst hugmyndin um að fólk vinni þetta saman svo mikil snilld. En þetta fer auðvitað eftir þátttöku. Hvet alla til að fara inn og kíkja á þetta.

Nr. 8 | posted by: anna | 16.01.2009 | 14:03:19 | [+] |

Þetta er snilldar hugmynd og þú varst í raun fljótari til heldur en ég og félagar þar sem við vildum gera meira af sérsmíði til þess hreinlega að stýra lýðræðinu í gegnum wiki formið. Þetta er samt örugglega betra heldur en að láta nörda eins og mig fikta í fítusum í marga mánuði og koma aldrei neinu í loftið wahahahaha

Skal skrifa leiðbeiningar fljótlega fyrir það sem á kann á Mediawiki.

Nr. 9 | posted by: Örn Ingvar | 16.01.2009 | 17:01:25 | [+] |

Kærar þakkir Örn Ingvar, ég er svo ánægð með að fólk eins og þú sé tilbúið að taka þátt og öll hjálp við að koma leiðbeiningum á framfæri er vel þegin til að sem flestir hafi tækifæri til að taka þátt þarna inni.

Eitt sem ég hef lært er að stundum þarf maður bara að taka "nike" á málið: just do it. Ef hugmyndin er góð koma aðrir með og hugmyndin er þróuð áfram.

Ég kann ekki á wiki en lagði upp með að einhverjir hlytu að hafa áhuga sem kunna á það hefur svo sannarlega reynst tilfellið og mér finnst þetta bara frábært!

Auðvitað er fólk ekkert sammála um allt, það er ekki hægt að ætlast til þess, hinsvegar eru alltaf til skynsamlegar lausnir sem nær allir geta fellt sig við á öllum málum - það eina sem þarf að hafa í huga er að hugsa um heildina en ekki sjálfan sig og nota skynsemina.

Við tökum þetta á common sensinu. Það er ekki eins og þetta sé rocket science og allar þessar reglur og lög eru mannanna verk en ekki meitluð í stein. Það MÁ breyta hlutum, tala nú ekki um þegar þeir virka jafn illa og raun ber vitni.

Nr. 10 | posted by: anna | 16.01.2009 | 17:52:33 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web