www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ha? Getur það verið?
Laugardagur, 03. janúar 2009

Kosningar í vor komnar í sjónmál!

Ég fagna því.

Það er ekki vegna þess að ég veit nákvæmlega hvað ég ætla að kjósa sem ég fagna. Í dag er nákvæmlega engin flokkur til sem ég kæri mig um að kjósa. Ég fagna vegna þess að með því að boða til kosninga neyðast forsvarsmenn allra flokka að horfast í augu við raunveruleikann, hreinsa út úr flokkunum og stokka algerlega upp - þ.e. ef þeir ætla að eiga einhvern séns í kosningum. Steingrímur J er þarna undanskilin, hann heldur að hann sé "algjörlega meðða" þessa dagana.

Hvort flokkunum tekst að finna eitthvað fólk sem er skárra en það sem fyrir er á eftir að koma í ljós og mun skera úr um hvort stærsti ótti sjálfstæðismanna verði að veruleika: VG stjórn.

Mér finnst eiginlega orðið soldið sætt hvað þeir eru hræddir við VG.

Persónulega held ég að VG gæti ekki kallað jafn mikla ógæfu yfir landið okkar og núverandi stjórnvöld hafa gert - ekki einu sinni þó þeir reyndu það - en ég hef svosem ekki mikið álit á Steingrími J fyrir. Maðurinn gengisfelldi sjálfan sig algjörlega í mínum huga þegar hann hafði ekki dug í sér til að segja "nei" við eftirlaunafrumvarps-ruglinu. Steingrímur J er í raun dæmi um eitthvað sem ég vil bara alls ekki á þing, því hann er búinn að vera þar of lengi til að fúnkera í einhverju sem á að heita "ný hugsun". Sama gildir um Geir, Ingibjörgu Sólrúnu, Þorgerði Katrínu og aaaaaaalla hina.

We can't solve problems by using the same kind of thinking we used when we created them.
-Albert Einstein

Ég vil skúbba út úr ráðuneytunum líka og fá inn nýtt fólk. Grunar að þar séu margir steingerðir í stólunum og hefðu bara gott af því að snúa sér að öðrum málum.

Þess vegna vona ég að flokkarnir pilli nú af hrúðrið af því sem virðist halda saman þessu graftrarkýli sem stjórnkerfið okkar er. Ég vona að fólkið sem kemur í staðinn hafi, þó ekki væri nema dash af hugsjón, dug, þor og heilbrigða skynsemi. Réttlætiskennd. Ég vona líka að þetta fólk sé laust við að vera orðið löngu institutionalized af því að vinna í flokkastarfi eða í einhverri helvítis ríkisstofnun frá fermingu.

Ferskt fólk.

Það verður fróðlegt að sjá hvaða hræðsluáróður verður svo notaður í fjölmiðlum til að styðja stjórnarflokkana í kosningabaráttunni. Úúúúúúú! Þetta verður hræðilegt ef við fáum ekki að stjórna lengur! ÚÚÚÚ af því þó við séum búin að klúðra er hægt að klúðra MEIRA EN VIÐ! ÚÚÚÚ

Jejeje.


| anna | 23:25 |
comments

Ótrúlega var gott að lesa þetta. Bara að fá staðfestingu á því að til er annað fólk sem gerir sér grein fyrir að Steingrímur J. og fleiri hans líkar eru ekkert öðruvísi en næstum allir aðrir alþingismenn.

Steingrímur J. hugsar um sinn eiginn rass - punktur.

Ferskt fólk er alveg málið.

Gleðilegt ár og takk fyrir skemmtileg skrif síðustu árin.

Nr. 1 | posted by: Snorri | 4.01.2009 | 20:08:29 | [+] |

Í mínum huga er það sem hefur gerst þverpólitískt gjaldþrot og fólkið til að koma okkur út úr þessu er ekki sama fólkið og það sem kom okkur í þetta.

Atvinnupólitíkus sem er búin að vera þarna frá því ég var krakki (og ég er nota bene 37 ára) á klárlega EKKERT erindi í uppbygginguna.

Takk fyrir góðar kveðjur og ég vona líka að þetta verði gleðilegt ár! Hjá okkur öllum smile

Nr. 2 | posted by: anna | 4.01.2009 | 20:23:13 | [+] |

Anna,
Ég er einmitt farin að hugsa gott til glóðarinnar að taka þátt í prófkjöri míns ágæta flokks. Ég vildi losna við alla með tölu af listanum sem voru þar og líka þá sem eru í borgarstjórn. ég vill fá nýtt fólk, venjulegt ,heiðarlegt fólk sem ætlar EKKI að gera pólitík að sínu lífsstarfi.
Mig hryllir við VG í stjórn því þeir eru bara á móti öllu og get ekki ímyndað mér að þeir gætu komið nokkru uppbyggilegu í verk. Niðurrif og fjallagrasatínslu,jú ,eitthvað jákvætt og uppbyggilegt, nei.Never

Nr. 3 | posted by: Depeche | 4.01.2009 | 22:26:17 | [+] |

Þess vegna þarf að boða til kosninga. Það er eina færa leiðin til að veita þessum flokkum það aðhald sem þeir þurfa til að skilja að það þurfi að stokka upp. Eins og staðan er í dag virðist þetta fólk ENNÞÁ trúa að það sjálft sé rétta fólkið til að finna leiðina útúr mykjuhaugnum sem það keyrði inní af fullum krafti.

Þetta er mikill misskilningur.

Það er eitthvað verulega mikið að í þessu landi ef eitthvað af þessu fólki telur sig í alvöru eiga séns áfram í pólitík. Og þetta á við alla flokkana across the board.

Nr. 4 | posted by: anna | 4.01.2009 | 22:42:04 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web